Handabandið heldur áfram að vera varasamt fyrir alla.

Sífellt fjölgar þeim sem hafa verið bólusettir gegn kórónaveirunni og áunnið sér ónæmi. 

En nú rétt í þessu nefndi Kári Stefánsson það í sjónvarpfrétt að ekki væri hægt að segja að ónæmið væri alltaf 100 prósent; 90 prósent væri nær lagi. 

Útbreiddara ónæmi þýðir þar að auki ekki að hinir bólusettu geti ekki verið smitberar rétt eins og dauðir hlutir á borð við húna handföng og hlutir úr efni þar sem veiran getur haldist lifandi nógu lengi til að berast á milli fólks við snertingu. 

Ónæmur maður getur þessvegna með handabandi flutt veiruna sem milliliður með því að taka fyrst í höndina á einum og síðan í höndina á öðrum. 

Eitt þekktasta dæmið um þetta var það þegar Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, þá ósýktur, tók í blábyrjun faraldursins þar í landi í höndina á fjölda fólks á einum degi og fékk auðvitað veikina af þvílíku afli að hann varð mjög veikur og lenti í öndunarvél um tíma. 

Það er því langt frá því að allt sé unnið í baráttunni og sóttvörnunum um sinn, þótt áfram miði hægt og bítandi. 


mbl.is Snerta ekki lengur sama kaðalinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Já, og Kári Stefánsson virðist álíta að sé virkni bóluefnis 90% þýði það að einn af hverjum tíu hljóti að vera smitberi. Þessi ályktun sýnir glöggt hversu yfirmáta tregur þessi einstaklingur er, því ef þetta ætti að standast þyrfti að vera öruggt að allir sem fengið hafa bólusetningu hafi í kjölfarið komist í tæri við smitaðan einstakling og allir þeir sem bóluefnið virkaði ekki á smitast.

Það er verðugt rannsóknarefni að fólk skuli trúa þessum fáráði.

Þorsteinn Siglaugsson, 7.4.2021 kl. 19:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband