21.4.2021 | 01:13
Það var nóg fjör á gosstöðvunum í kvöld.
Vindátt var hagstæð á gosstöðvunum í Geldingadölum í kvöld þegar færi gafst til að fljúga yfir þær og skoða og taka myndir til að eiga.
Enda var þétt umferð flugvéla þarna í ljósaskiptunum, og stunduð flugumferðarstjórn í formi þess að skipta flugvélunum í hópa og hafa hluta þeirra í biðflugi.
Allur auka órói í átt til Þorbjarnar og Svartsengis er ekki góð frétt; mun skárra væri ef virknin ykist til norðausturs í átt að Keili.
Skjálfti upp á 4,1 og aukin virkni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Have we not seen nothing yet?
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 21.4.2021 kl. 03:32
Ekki, ef framundan er nokkurra alda óróatímabil með gosum á öllum fjórum sprungusveimunum eins var fyrir um átta hundruð árum.
Ómar Ragnarsson, 21.4.2021 kl. 07:16
Misritun: Geldingardalir ...
SH (IP-tala skráð) 21.4.2021 kl. 09:21
Takk. Innsláttarvilla. Búið að leiðrétta.
Ómar Ragnarsson, 21.4.2021 kl. 17:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.