Afsakið hlé, fjörbrot, eða aðdragandi af einhverju nýju?

Þegar þessr línur eru skrifaðar hefur staðið yfir býsna langt hlé á hraungosinu í Geldingadölum, þar sem varla hefur sést örla á hinni eldrauðu uppsprettu í gíg 5.  Eldgos.Keilir

Hins vegar ruku upp gríðarstórir kvikustrókar í dag, líkt og um fjörbrot sé að ræða. 

Þessi skrykkjótta atburðarás hefur sést allt frá Reykjavík, til dæmis þaðan sem gosmökkurinn sýnist koma upp úr Keili, sem er í sjónlínunni. 

Jarðfræðingar eiga erfitt með að fullyrða mikið að svo stöddu, svo sem því sem spurt er um í fyrirsögn þessa pistils. 

Ein skýringin er að eins konar fyrirstaða stöðvi flæðið og að þegar hún rofni, verði kvikstrókarnir jafn háir og raun ber vitn, allt í 2-300 metra hæð. 

2Myndirnar hér á síðunni voru teknar seint á sjötta tímanum með um korters millibili. 

Eldgos.Keilir 2.


mbl.is Hegðun eldgossins breyttist í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér finnst vera að sljákka í gosinu, a.m.k. í bili

Í gær sá maður þrjá liti í eldstólpanum, hvítan, gulan og rauðan, (litir sem myndavélin virðist nema). Nú sé ég ekki hvíta litinn lengur, en hann er heitastur.

P.s. En allur er varinn góður, hvíti liturinn kom fram í eldgusu sem kom upp, rétt í þessu.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 2.5.2021 kl. 21:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband