5.6.2021 | 07:39
Sérstaðan er dýrmætust.
Ísland er land tækifæra, sem hvergi bjóðast annars staðar, af því að landið sjálft og náttúra þess bjóða upp á sérstöðu af svo fjölbreyttu tagi að einstakt er.
Land hins einstæða samspil elds og ísa á sér ekki hliðstæðu á jarðarkringlunni.
Velgengni fyrirtækja, einskum tengd ferðamennsku, byggist því mest á hugkvæmni og útsjónarsemi þeirra Ísendinga, sem eru naskir á að finna möguleika til bjóða upp á eitthvað alveg sérstakt, sem hvergi býðst í öðrum löndum.
Þeir möguleikar eru hins vegar oft vanmetnir, af því að þeir felast í atriðum sem okkur sjálfum finnst ekkert sérstakir, af því að við erum orðin svo vön þeim.
Í þeim efnum gildir hið gamla viðskiptalögmál að viðskiptavinur hvers seljanda hefur alltaf rétt fyrir sér þegar hins eftirsótta er leitað.
Síðasti mánuður stjórnlaus | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.