25.8.2021 | 22:19
Er boltinn hjá Páli Bergþórssyni? Normandy er hérað.
Við Íslendingar eigum okkar Tom Rice þar sem er Páll Bergþórsson veðurfræðingur. Hann stökk í fallhlíf þegar hann varð 95 ára, Tom var 100 ára um daginn þegar hann fór í fallhlífarstökk.
Um daginn átti Páll 98 ára en auðvitað er engin ástæða til að krefjast þess að hann bæti árangur Tom Rice eftir tvö ár; 95 ára afmælisstökkið var frábært afrek hjá honum, sem og allt það sem hann hefur dundað við að gera undanfarin ár. .
Þess má geta, að viðtengdi frétt á mbl.is er sagt að Normandy sé bær í Frakklandi, en hið rétta er að Normandy er stórt hérað vestarlega á Ermasundsströnd Frakklands.
Aldargamalt afmælisbarn stökk úr flugvél | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Normandí er hérað
Björn S. Stefánsson (IP-tala skráð) 26.8.2021 kl. 04:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.