30.8.2021 | 06:48
Nú er bara að víkka þetta út.
Í borgum um alla Evrópu, einkum syðri hluta, leika reiðhjól og vélknúin hjól stórt hlutverk í því að koma í veg fyrir algert öngþveiti í umferðinni. Hver maður á hjóli losar eitt pláss fyrir bíl í þvögunni.
Í raun eru rafhlaupahjól vélhjól, því að þau eru vélknúin þótt rafmagn sé orkugjafinn.
Léttbifhjól með útskiptanlegum rafhlöðum er líka ný hlið á þessum málum.
Síðuhafi telur sig aldrei hafa eignast betra einkafarartæki en rafknúið léttbifhjól með orkukostnað á aðeins 0,30 krónur á ekinn kílómetra.
Sem sagt; skreppur á Selfoss og til baka fyrir 30 krónur!
Gullni hringurinn fyrir 200 kall.
Þau eru af ýmsum stærðum og gerðum, allt frá vespulaga hjólum með 26 km hámarkshraða upp í hjól með 46, 56, 64-70, 80 og 90 km/klst hámarkshraða.
Ótrúlegur vöxtur á tveimur árum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.