2.11.2021 | 13:24
Eitt margra dæma um það að covid sé gjörólík svinaflensunni?
Fimm milljónir manna hafa nú látist af kórónuveikinni COVID-19 en samt sást því haldið fram á dögunum, að gangur svínaflensunnar hér um árið sýndi að engin ástæða væri fyrir því að viðhalda núverandi sóttvarnaraðgerðum hér, heldur bæri að aflétta þeim.
Sóttvarnarlæknir hefur hins vegar gerólíka sýn á málið í ljósi reynslunnar af þessum tveimur sjúkdómum, sem hann segir bera þess vitni, að um tvo ósambærilega sjúkdóma sé að ræða hvað snertir eiginleika, meðferð og afleiðingar.
Reynala Sigga Gunnars, Jóns Ársæls og margra fleiri af covid eru tvö af ótal dæmum um illvíga eignleika farsóttarinnar, sem hefur sett mannkynið á hliðina á árunum 2020 og 2021.
Þegar þessi mjög svo misvísandi ummæli ráðherrans og sóttvarnarlæknisins eru skoðuð, vaknar spurningin hvort meira mark beri að taka á sóttvarnarlækninum eða stjórnmálamanninum.
Siggi Gunnars: Ég hef aldrei orðið svona lasinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll Ómar,
Aðalmunurinn á þessari Covid-19 farsótt og þessari svokallaðri Svínaflensu, er að Covid-19 er sérstaklega haldið uppi endalausum PCR- prófum. Ég er eiginlega á því að Þórólfur karlinn fái sérstaklega borgað fyrir það, að halda uppi þessu farsóttarstigi með PCR skimunum, þú?
Ofan á allt þegar að dómstólar í Þýskalandi, Hollandi, Austurríki og Portúgal hafa allir úrskurðað þessar PCR skimanir séu alls EKKI við hæfi að nota til að greina covid-19, svo og hefur þetta PCR drasl EKKI nein lagalegan og vísindalegan grundvöll til að byggja á varðandi allar þessar lokanir, samkomutakmarkanir o.s.frv.
Það er viðurkennt að það er EKKI til nein Gold Standard yfir þessar PCR skimanir eða smitgreiningar. Þá hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) auk þess staðfest að þessi PCR skimanir eða PCR smitgreiningar séu gallaðar og ekki áreiðanlegar. En þetta er allt saman eitthvað sem að hann Þórólfur passar mjög vel uppá að minnast alls ekki á.
Fyrir utan það þá eru þessar PCR skimanir sérstaklega keyrðar hér á 40 snúningum og/eða keyrðar yfir þennan 35 snúninga hringrásar mögnunar þröskuld til þess eins þá að geta framkallað allt að því 97% falskar jákvæðar niðurstöður (Clinical Infectious Diseases ciaa 1491 (28. sept. 2020), https://doi.org/10.1093/cid/ciaa1491), eða svo þessir líka ritstýrðu- og ríkisstyrktu fjölmiðar hér á landi geta verið i því að öskra greint smit, greint smit og aftur greint smit.
Það er greinilega mjög mikilvægt hjá heilbrigðisyfirvöldum hér á landi, að segja við heilbrigt fólk að það sé veikt (eða smitað) svo og til að koma inn einhverjum lokunum o.s.frv. Nú og einnig til þess eins að halda uppi farsóttarstiginu til að koma inn þessum svokölluðu bólusetningum.
KV.
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 2.11.2021 kl. 17:54
Gagnrýnin snýst um það að 2009 var brugðist við auknu álagi með því að auka afkastagetuna. En nú virðist afkastagetan álitin fasti, ekkert sé hægt að gera til að auka hana, sem er vitanlega bull og þvæla. Á þetta hefur meðal annars fyrrum yfirlæknir kóvítdeildarinnar bent.
Þorsteinn Siglaugsson, 2.11.2021 kl. 19:24
"..afkastagetan álitin fasti.."
Það er ennþá meira um alvarlegri aukaverkanir og dauðsföll eftir þessar svokölluðu bólusetningar, svo og meira að gera á bráðadeildinni hjá LSH. Nú og það er eitthvað sem að má alls ekki tala um í þessum líka ritstýrðu- og ríkisstyrktu fjölmiðlum.
En það er fyrirfram vitað að hér á landi stendur ekki til að gera ein einasta krufningu eða hvað þá ein heiðarleg rannsókn eftir allar þessar svokölluðu bólusetningar gagnvart þessum bóluefnafyrirtækjum.
KV.
MUST SEE "24,526 Deaths, 2,317,495 Injuries Following COVID Shots; EU Database" https://www.thelibertybeacon.com/24526-deaths-2317495-injuries-following-covid-shots-eu-database/
The EudraVigilance database reports that through September 11, 2021 there are 24,526 deaths and 2,317,495 injuries reported following injections of four experimental COVID-19 shots:
COVID-19 MRNA VACCINE MODERNA (CX-024414)
COVID-19 MRNA VACCINE PFIZER-BIONTECH
COVID-19 VACCINE ASTRAZENECA (CHADOX1 NCOV-19)
COVID-19 VACCINE JANSSEN (AD26.COV2.S)
Sjá einnig hérna:
https:/1000covidstories.com
vaxpain.us
https://www.c19vaxreactions.com/real-video-stories.html
https://www.vaxlonghaulers.com/
https://mypatriotsnetwork.com/patriot/wtf-over-1000-pages-of-horrifying-pictures-stories-facts-about-covid-vaccines/
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 2.11.2021 kl. 20:11
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 3.11.2021 kl. 17:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.