2.5.2022 | 10:44
Upphafslandið fer oft verst útúr skæðum farsóttum.
Spænska veikin kom ekki fyrst upp á Spáni, heldur í Bandaríkjunum, sem þá voru að senda hundruð þúsunda hermanna til Evrópu á síðasta ári Fyrri heimsstyrjaldarinnar.
Hún drap fleiri en féllu í bardögum stríðsins og því var gríðarlega mikilvægt fyrir stríðsþjóðirnar að láta hana ekki hafa of mikil áhrif á baráttuþrek herjanna.
Af því að Spánn og Portúgal voru hlutlaus í báðum heimsstyrjöldunum skipti plágan ekki eins miklu máli í þessum tveimur löndum, og því fékk Spánn að ósekju á sig þann stimpil sem heiti drepsóttarinar færði landinu.
Donald Trump og fleiri sóttu það fast á tímabili að nefna COVID-19 Kínaveikina, enda veiran með upphaf þar þegar í lok 2019.
Þegar litið var til upphafs spönsku veikinnar var það þó umdeilanlegt, en einkum voru rök Trumps fáránleg, sem hann hélt ákveðinn fram á blaðamannafundunum með doktor Fauci; sem sé þau að veikin væri kínverskt sýklavopn, sem Kínverjar hefðu framleitt eingöngu í þeim tilgangi að kom í veg fyrir endurkjör Trumps!
Í ljósi þess hve grátt kínverjar eru leiknir af veikinni sýnir þessi margtuggða skýring Trumps aðeins það eitt, að hann stendur ævinlega í þeirri trú að hann sé merkilegasta mikilmenni allra tíma og að allt snúist um eða eigi að snúast um hann.
Kínverska efnahagsundrið í uppnámi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll Ómar,
"Spænska veikin kom ekki fyrst upp á Spáni, heldur í Bandaríkjunum, sem þá voru að senda hundruð þúsunda hermanna til Evrópu á síðasta ári Fyrri heimsstyrjaldarinnar. "
Já, "í Bandaríkjunum", og með því að nota þessar grímur, nú og þess vegna mældi hann Anthony Fauci karlinn sérstaklega með þeim.
KV.
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 2.5.2022 kl. 22:58
"Carcinogenic plastics that are tracked for mask use"
"Carcinogenic plastics that are tracked for mask use"
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 3.5.2022 kl. 21:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.