Svöl veðrátta á Norður-Atlantshafi í samræmi við langtímaspár?

Þegar árið 1997 voru uppi spár um það hjá vísindamönnum að enda þótt loftslag á jörðinni myndi hlýna á 21. öldinni yrði hætta á því að á Norður-Atlantshafi myndi verða kólnun vegna áhrifanna af því að kalt og tært leysingavatn frá bráðnandi jöklum myndi streyma út á hafið og vegna léttleika síns leggjast yfir vatn Golfstraumsins, sem væri salt og því þyngra. 

Á flestum tölvuspám, sem birtar hafa verið síðan er loftið yfir jörðinni að mestu táknað með rauðum lit hækkandi hita, en undantekningar eru þrír ljósbláir blettir, og einn þeirra fyrir suðvestan Ísland. 

Þetta er í samræmi við dönsku spána frá 1997, sem túlkuð var og viðbætt á grunni danskrar heimildarmyndar og færð inn í íslenskan sjónvarpsþátt, sem hét "hið kalda hjarta hafanna."

Ef sumarið núna verður svalara en að meðallagi á sama tíma og sumrin verða með þeim heitustu á meginlöndunum sitt hvorum megin Atlantshafsins er það út af fyrir sig ekki á skjön við hið möguulega út af fyrir sig, hvað sem síðar verður. 


mbl.is Sú gula lætur sjá sig í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur Hrafn Gíslason

Sæll Ómar þá ættu hinir tveir bláu blettir að vera suðvestan við syðsta odda Grænlands og síðan milli Alaska og Kamchatka.

Hallgrímur Hrafn Gíslason, 3.8.2022 kl. 08:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband