8.8.2022 | 00:03
6,2 km undir Eldvörpum.
Fyrir suðvestan Svartsengi liggur ríflega tíu kílómetra þráðbein gígaröð, sem nefnist Eldvörp.
Þau liggja á svo beinni línu, að þau eiga sér ekki jafnoka nema farið sé austur í Lakdagíga.
Gígaröðin segir sína sögu um það, sem nú er á ferðinni á þessu svæði allt norðaustur til Meradala, og er eitt af því sem gefur til kynna stærð þess viðfangsefnis sem nýjar aldir eldvirkni á Reykjanesskaga geta fært íbúum hans.
Skjálfti í morgun af stærðinni þremur beint undir Eldvörpum er að vísu hvergi nærri eins nálágt yfirborðinu og hraunkvikan undir Meradölum var dagana fyrir gosið þar.
Nú er bara að vona það, að ekki stefni í nýja útgáfu af Eldvörpum á svæðinu næst Grindavík og Svartengi heldur verði eldurinn áfram á svipuðum slóðum og hann hefur verið í gosunum í fyrra og i ár.
Þriggja stiga skjálfti sjö kílómetra frá Grindavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.