4.2.2023 | 19:27
Boeing 757 leikur sér að innanlandsflugi.
Þegar Kárahnjúkavirkjun var í smíðum tók Landsbankinn Boeing 757 þotu Icelandair þrívegis á leigu þrjú sumur í rðð til að fljúga með tæplega 180 farþega í hverri ferð frá Reykjavík til Egilsstaða og til baka aftur.
Þetta voru valdir vildarviðskiptavinir bankans sem nutu dagskrár allan daginn í fimm rútum um virkjanasvæðið með samræmdu útvarpi og málsverðum um morguninn og hádegið og gala kvöldverði.
Boeing 757 þotan leysti þetta verkefni með glæsibrag á flugvöllunum í Reykjavík og á Egilsstöðum.
757 hefur um þriðjungi stærri vængflöt en álíka stórar þotur á borð við Aibus 320 og Boeing 737, og þegar hún er létthlaðin eins og í stuttu innanlandsflugi er hún það létt, þótt full sé af farþegum, að hún leikur sér að flugtaki og lendingu í Reykjavík og á Egilsstöðum með fullu öryggi.
Í þau skipti af þeim sex flughreyfingum, sem voru framkvæmdar í þessum ferðum, var það aðeins einu sinni, í lendingu á Egilsstöðum í logni, var brautin í stysta lagi fyrir vélina, því að rétt fyrir lendingu, lenti hún í óvæntum meðvindi, sem lengdi lendingarbrunið til norðurs, af því að nokkur hundruð metrar á suðurendanum eru ónothæfir vegna ljósastaura á Þjóðvegi eitt þvert fyrir brautarendann.
Flugvöllurinn er mikilvægur varavöllur fyrir flug og furðulegt að gera ekki úrbót í þessu efni.
Boeing 757-flugvél nýtt í innanlandsflug | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Boeing 757 leikur sér að innanlandsflugi....Í þeim flughreyfingum sem voru framkvæmdar var það aðeins í 16,66% lendinga sem lá við stórslysi!
Vagn (IP-tala skráð) 4.2.2023 kl. 20:55
Það lá ekkert við "stórslysií" lendingunni, sem um er rætt í pistlinum. Ég sat "á prikinu" frammi í hjá flugstjórunum í þessari lendingu og eftir meira en tíu þúsund lendinga flugferil minn ætti að sitja eftir reynsla af því hvað er lending innan marka og hvað ekki.
En það er eftir sem áður afleitt að lendingarbrun í norðurátt skuli vera minnkað um nokkur hundruð metra með hindrun, sem hægt er að lagfæra með hliðrun á veginum sem liggur þvert fyrir brautarendann.
Boeing 757 lék sér því að þessu innanlandsflugi í 100% flughreyfinganna.
Ómar Ragnarsson, 5.2.2023 kl. 00:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.