Mikilvæg skilgreiningaratriði á mismun orkugjafa.

Ýmis athyglisverð álitamál hafa komið fram í umræðum um skattalegt umhverfi orkuvinnslu með tilliti til orkugjafa.

Sem dæmi má nefna, að ekki séu rök fyrir því að þeir sem beisla vindorkuna séu skattlagðir, því að vindurinn leiki um alla alls staðar og ekki hægt að segja með nákvæmni hvaðan hann komi né hvert hann blási.  

Að þessu leyti sé hann ólíkur vatnsafli og jarðvarma eða gufuafli, sem hægt sé að staðsetja í vatnsfarvegum og jarðvarma- og háhitasvæði. 

Þessu má að vísu andmæla með því að benda á það að staðsetja vindorkuna þar sem vindorkumannvirkin er byggð, stafrækt og hafa áhrif. 

Hið gríðarlega vindorkuvinnsluæði, sem farið er af stað með tilheyrandi landakaupum, vekur grun um að ásókn sé í auðtekinn gróða af þessari nýfundnu auðlind. 

Því er nauðsynlegt að setja sem fyrst upp lagaramma um nýtingu orkuauðlinda sem setur hana í farsælan farveg.  

  

 


mbl.is Kanna nýja skattalega umgjörð um orkuvinnslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Væntanlega dugir núverandi lagaumgjörð til þess að þessi fyrirtæki borgi alla þá skatta sem fyrirtæki almennt borga. Hvort ástæða sé til að leggja einhverja auðlindaskatta á þessi fyrirtæki, sem nota vind frekar en þau sem nota auðlindina Íslenskt vinnuafl sem við höfum lagt í kostnað við að halda heilbrigðum og mennta, er svo mál sem ætti ekki að litast af því hvort einhverjir græði á því að reka fyrirtækin. Persónulega hugnast mér ekki sú vinsæla krafa að fyrirtæki séu skattlögð út úr hagnaði.

Vagn (IP-tala skráð) 8.6.2023 kl. 12:26

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

"Það á aðeins að rýja kindina en ekki að flá hana" sagði spakvitur bóndi forðum. 

Ómar Ragnarsson, 8.6.2023 kl. 21:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband