18.7.2023 | 08:05
Að mörgu að hyggja varðandi skemmtiferðaskip.
Á tímum kolefnisfótspors er að ýmsu að hyggja varðandi ásókn í skemmtiferðaskip. Ferðamátinn sjálfur hefur ýmsa kosti, svo sem í innhöfum eins og Miðjarðarhafi og Karíbahafi, þar sem ekki þarf sífellt að vera að vesenast með farangur inn og út úr húsum hvern einasta ferðadag vegna þess að hótelherbergið ferðast með ferðalöngunum dag frá degi.
Fyrir sjóveika verður það leiða fyrirbæri að teljast neikvætt fyrirbæri þegar sumir áfangarnir eru langir.
Við Ísland er lang tilkomumest að sigla meðfram fjöllóttum og fjörðóttum ströndum eins og Hornströndum og inn og út Eyjafjörð, en auðvitað er virkt eldgos með sérstöðu hvað aðdráttarafl varðar plús "hringirnir" á Suðurlandi og Norðausturlandi.
En nú er nýtt strik komið í reikninginn sem varðar annars konar orðspor Íslands, en það er kolefnisfótspor landsins vegna þess að siglingar skemmtiferðaskipa koma afar illa út á því sviði.
Reikningsdæmið gæti orðið flóknara en virðist í fljótu bragaði, því athuga verður spurninguna um það hvert ferðafólkið um borð hefði annars farið. Ef svarið felst í því að fara yfir Atlantshafið þvert, til dæmis til að skoða Yellowstone, kemur Ísland skár út.
Farið í markaðsátak til að laða að skemmtiferðaskip | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.