Þegar rykið sest: Of neikvæð umræða um sveiflurnar í liði Íslands?

Þegar rykið hefur nú sest eftir hamaganginn á EM sést, að skammirnar sem íslenska liðið fékk eftir stórar sveiflur í leik liðins, voru full harðar þegar litið er á svipaðar sveiflur í leik annarra liða, svo sem úrslitaleikjanna. 

Þar sáust iðulega tíu mínútna langir kaflar þar sem allt gekk upp hjá öðru liðinu og síðan jafnvel kaflar þar á eftir sem þetta snerist algerlega við. 

Flest liðin lentu í því að ganga í gegnum "hrun" leiks síns þar sem ekkert gekk upp og ekkert eða eitt mark var skorað í hálfum hálfleik.   

Þetta bendir til þess að handboltinn sé einfaldlega íþrótt, þar sem sveiflukenndur leikur liggi í eðli leiksins, sem þrunginn geti verið óheppni og heppni á víxl. 

Guðjón Valur Sigurðsson minntist á það, að á glæsiferli hans sjálfs hefði hann tvívegis orðið að bíta´í það súra epli að missa af Ólympíuleikum.

 


mbl.is Frakkland Evrópumeistari eftir magnaðan úrslitaleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér fannst þeir standa sig nokkuð vel. Og grunar að skammirnar séu aðallega frá fólki sem ekki er að sýna neinn stjörnuleik í sínu lífi og þarf einhverja útrás fyrir gremjuna.

Vagn (IP-tala skráð) 29.1.2024 kl. 01:57

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sammála ykkur.

Helga Kristjánsdóttir, 29.1.2024 kl. 14:16

3 identicon

Einn góður leikur á mótinu gegn Króatíu - Ómar Ingi ekki með.

Ģóður fyrri hálfleikur á móti Austurríki - Ómar Ingi ekki inná. Kemur inná í seinni hálfleik og liðið skorar ekki mark í rúmlega 13 mínútur. Tekinn útaf að það næst að knýja fram sigur.

2+2 eru 4.

Bjarni (IP-tala skráð) 29.1.2024 kl. 14:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband