Meginlínurnar og húsið á sandinum.

Alþekkt er dæmisagan úr Biblíunni um mennina tvo sem byggðu sér hús, annar á bjargi og hinn á sandi. Hún kemur vissulega í hugann núna þegar við blasir sú hugsun að viðhalda 4000 manna byggð á svæði, þar sem jörð getur umturnast hvenær sem er af sprungum og jafnveld eldgosum í sigdæld, sem er hluti af 15 kílómetra löngum kvikugangi af sömu gerð og gígaröð, sem myndaðist á fyrra umbrotaskeiði, sem stóð öldum saman. 

Rof Grindavíkurvegur sýnir að engin þeirra þriggja leiða sem legið hafa inn í Grindavík er óhult fyrir eyðingarafli jarðeldsins.  

Þótt Suðurstrandarvegur sé enn opinn, skeikaði litlu í Fagradalseldum að hann rofnaði í framhaldi af því að hraun rann í átt að honum við Nátthaga.  

Glögglega hefur sést á gögnum sem fyrir lágu fyrir áttatíu árum, að sprungusvæðið sem hótar að viðhalda eyðileggingu byggðarstæði Grindavíkurbæjar, liggur til suðvesturs út í sjó. 

Ekki er að sjá að hægt sé að tryggja að allar veglínurnar þrjár, sem hingað til hafa verið óskemmdar til Grindavíkur standist hugsanleg áhlaup jarðeldsins sem nú ræður í raun ríkjum á þessu svæði. 


mbl.is Kvikugangurinn 15 kílómetra langur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hefur eitthvað verið hugsað út í það hvað gæti gerst ef það fer að gjósa út af Reykjanesi?

Hördur Þormar (IP-tala skráð) 9.2.2024 kl. 11:28

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Vitað er að Eldey og sker og boðar þar út af eru mynduð í Eldgosum, svipuðum þeim sem mynduðu Vestmannaeyjar. Í slíkum gosum getur komið öskufall líkt og gerðist í Surtseyjargosinu og gosinu í Eldfelli á Heimaey, en þó varla mikið. 

Ómar Ragnarsson, 9.2.2024 kl. 23:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband