8.9.2007 | 00:14
FRÁ PAVAROTTI TIL KRISTINS SIGMUNDSSONAR.
Andlát Pavarottis hefur hleypt af stað vangaveltum um tenórsöngvara sem varpa ljósi á þann mátt sem spilun af diskum og í útvarpi og sjónvarpi hefur á mat nútímafólks á söngvurum. Það væri synd ef frammistaða stórsöngvara í óperuhúsum án hljóðnema fengi engu að ráða um þetta mat. Pavarotti var jafnvígur á hvort tveggja og enginn söngvari hefur leikið það eftir honum að syngja hljóðnemalaus í Laugardalshöll og fylla hana af beljandi rödd sinni en þó svo undursamlega fagurri.
Frábær lýsing Stefáns Jóns Hafsteins daginn eftir á einstæðum fagnaðarlátum gesta á þessum tónleikum og frammistöðu Pavarottis er mér enn í fersku minni.
Ég missti af tónleikunum, - var þetta sama kvöld upptekinn ásamt Guðjóni Einarssyni við að yfirheyra frambjóðendur til embættis forseta Íslands í sjónvarpinu.
Þegar The Telegraph nefnir fjóra söngvara sem hugsanlega arftaka Pavarottis, þeirra á meðal Garðar Þór Cortes, þá er það gríðarleg upphefð fyrir þennan frábæra íslenska söngvara. Hann á ekki langt að sækja það, - faðir hans hefur alla tíð sungið sérstaklega vel.
Frammistaða Garðars yngri gefur ástæðu til að hrósa honum sérstaklega fyrir það hve vel hann spilar úr sínum spilum, enda unun að hlusta á hann.
Björninn er samt ekki unninn, - hann á eftir að sanna sig í frægustu óperuhúsunum áður en endanlegum sigri er fagnað. Þar þarf hann ekki síður á raddstyrk og fyllingu raddar að halda en frábærri túlkun og fagurinn rödd.
Í mínum huga er Jussi Björling álíka jöfur meðal tenóra liðinnar aldar eins og Pavarotti en mér er ekki eins ljóst hve voldug rödd hans var í óperuhúsum án hljóðnema.
Jussi Björling kom að vísu til Íslands að mig minnir 1954 en olli miklum vonbrigðum í Þjóðleikhúsinu, þreyttur og timbraður eftir erfitt flug og farinn að dala eftir margra ára óreglu.
Því er ég að tala um þetta að eitt sinn fórum við Helga með alla fjölskyldu okkar, alls níu manns, á óperettuna Leðurblökuna í Íslensku óperunni. Þar sungu meðal annarra Garðar Cortes og Júíus Vífill Ingvarsson eins og englar.
Í Leðurblökunni kemur jafnan fram gestasöngvari í hvert sinn og kvöldið sem við vorum þarna kom Kristján Jóhannsson þarna fram, þá á hátindi getu sinnar.
Þá fannst það vel hvernig þessi volduga og hljómmikla rödd fyllti salinn út í öll horn svo að það varð eftirminnilegasta atriði þessa kvölds.
Þarna kom í ljós að þessi helsti kostur Kristjáns gat ekki notið sín á hljómdiskum og því er það borin von að kynslóðir framtíðarinnar muni geta metið Kristján með því að hlusta á upptökur af söng hans, því að hljómstyrkur raddarinnar er sterkasta hlið hans.
Á sínum tíma var rætt um það að Mario Lanza gæti orðið annar Caruso eftir frammstöðu hans í kvikmynd um Caruso. Lanza naut sín að sjálfsögðu best á hljómplötum og fljótlega kom í ljós að miklu nær væri að Benjamino Gigli væri nefndur í þessu sambandi.
Ekki get ég fjallað hér um íslenska stórsöngvara án þess að minnast á þann söngvara íslenskan sem best hefur sungið að mínu mati, - Kristin Sigmundsson.
Bara eitt dæmi varðandi það. Kristinn fékk stutta umsögn í einu virtasta tónlistarblaði Evrópu um flutning óperunnar Töfraflautunnar í sænskri óperu. Umsögnin um túlkun og söng Kristins á sínu stóra hlutverki í verkinu hljómaði svona ef ég man rétt: "Kristinn Sigmundsson söng hlutverk sitt svo að betur verður ekki gert."
Ég get ekki ímyndað mér að neinn annar íslenskur söngvari hafi fengið slíka umsögn um frammistöðu sína á óperusviði í jafn virtu tímariti.
Kristinn er hins vegar ákaflega yfirlætislaus og hógvær maður sem ekki þarf að hreykja sér eða trana sér fram og þessi frétt um umsögnina lofsamlegu var flutt í útvarpsfréttatíma klukkan 16:00 og síðan ekki söguna meir.
Þar að auki geldur Kristinn þess að vera ekki tenór.
Athugasemdir
Ágæti Ómar takk fyrir fína grein.
Ég verð samt að segja hreint eins og er að öll sú umræða sem átt hefur sér stað á blogginu eftir andlát Pavarotti hefur oft gengið fram af mér. Allur þessi samanburður og vangaveltur um arftaka eða jafnvel samanburð við þennan meistara sem nú er fallin er gersamlega glórulaus.
Ég held að löng bið verði á því að við fáum að njóta annarar eins raddar, hæfileika og tækni sem hann hafði yfir að búa. Hann var yfirburða söngvari á allan hátt.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.
Karl Tómasson, 8.9.2007 kl. 02:38
Já ég er sammála Kalla. Pavarotti stóð dálítið uppúr flórunni. Af ópersöngvurum á síðustu öld stóð hann og Jussi Björling mjög svo uppúr að mínu mati. Björling geldur smá fyrir að hafa verið uppi þegar upptökutæknin var ekki uppá sitt besta og eru því hljóðritanir með söng hans ekki eins góðar og t.d. Pavarotii.
Með fullri virðingu fyrir Garðar Thor Cortes sem er mjög fínn söngvari, þá getur smá misskilinings í þessari umfjöllun um arftaka Pavarotti. Telegraph var með 2 flokka Talents og Popularity og lenti Garðar Thor í þeim síðarnefndu sem er að sjálfsögðu mikill árangur. En engu að síður voru þeir að spá frekar í hver væri líklegastur til að ná "commercial" vinsældum frekar en jafnoka Pavarotti á söngsviðinu. Einnig nefndu þeir að "Cortes can sing, but is his operatic potential already lost to the commercial Dark Side?"
Listarnir voru svona
Heirs to Pavarotti talent crown
Rolando Villazón
Roberto Alagna
Salvatore Licitra
Marcelo Alvarez
Juan Diego Florez
Heirs to his popularity crown
Andrea Bocelli
Alfie Boe
Russell Watson
Gardar Thor Cortes
Paul Potts
Tek enn og aftur fram að árangur Garðar Thor er mikill á stuttum tíma og það verður gaman að fylgjast með honum í framtíðinni.
Kristján Kristjánsson, 8.9.2007 kl. 13:23
Tek undir það að vonlaust er að bera söngvara saman. Söngvari eins og Björling var svokallaður lýriskur tenór, á meðan Kristján Jóhannsson var meira í ætt við hetjutenór. Þessar söngtýpur hæfa hver sýnu hlutverki. Einnig eru raddir misbjartar þó þær syngi sama tóninn. En um Pavarotti má segja að hann hafi verið óvenju hæfileikaríkur og fjölbreyttur því tækni hans var afburðagóð. Segja má um Kristján að akkilesarhæll hans hafi verið tæknihliðin, það vantaði mýktina og valdið yfir röddinni sem t.d. tenórarnir 3 höfðu allir yfir að ráða. Enda byrjaði Kristján sitt söngnám ekki fyrr en 26 ára gamall, sem er mjög seint.
Stundum er sagt að Jose Carreras hafi verið sístur af þeim þremur, en ég er ekki sammála því, heldur aðeins öðruvísi og annarskonar aríur hentuðu honum betur en hinum. En þegar hann var á sinni hillu, þá var engin honum fremri.
En það er ekki óeðlilegt að segja að Pavarotti hafi verið fremstur meðal jafningja.
Gunnar Th. Gunnarsson, 8.9.2007 kl. 15:10
Sæll Ómar. Má til að þakka þér fyrir að minna á Jussi Bjorling, sem er mörgum gleymdur en var einn örfárra tenóra siðustu aldar sem þola samjöfnuð við Pavarotti. Hjá honum fóru saman frábær tónlistargáfa og þessi stórkostlega bjarta klingjandi rödd en þó svo þýð og mjúk. Meðan ég skrifa þetta er ég að hlusta á hann syngja Ideale eftir Tosti. Í einu orði sagt; undursamlegt. Þakka fyrir góða grein
Þorvaldur Ágústsson. (IP-tala skráð) 8.9.2007 kl. 21:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.