29.1.2009 | 19:10
Ekki nýtt fyrirbæri.
Það er ekki nýtt fyrirbæri að kosið sé tvisvar á sama ári. Þetta hefur gerst þegar stjórnarskrárbreytingar hafa verið á dagskrá.
1942 var kosið tvisvar og það ár var sérlega örlagaríkt í stjórnmálunum. Þá varð trúnaðarbrestur milli foringja stærstu flokkanna, Ólafs Thors og Hermanns Jónassonar sem hafði áhrif á íslensk stjórnmál í 14 næstu ár.
Í kjölfarið fóru stjórnarkreppa og utanþingsstjórn 1942-44.
Meiri verðbólga en þekkst hafði hélt innreið sína. Ólafur Thors hafði ekki miklar áhyggjur af henni og sagði að hægt yrði að slá hana niður með einu "pennastriki". Það gerðist þó ekki fyrr en 48 árum síðar.
1959 voru tvennar kosningar vegna róttækrar breytingar á kjördæmaskipan. En í kjölfar þeirra fór eitt mesta stöðugleikaskeið aldarinnar, Viðreisnarstjórnin, sem sat í þrjú kjörtímabil eða tólf ár.
Athugasemdir
JÁ enn þá voru menn með sverð á sér, nu eru breytir tímar og þetta bull mun kosta okkur gjaldþrot á ollum islendingum ef við kjósum og forum i EES ég var að horfa á ÍNN Sjónvarpið hja ingva og þar sagði einn sammfylkinga maður svona útundan ser þegar ingvi byrjaði að tala við hinn þá heirðist, já við verðum gjaldþrota það er augljóst og him svona bringuhlátur hvaða virðin er það villjum við þetta?
ég vill kljúfa norðurland frá suðurlandi þið eruð að ganga frá okkur hvað ætli við séum buinn að borga i vegakerfið enn við hofum ekki einusinni góða vetrastaura til að keyra eftir i blind bil það myndi einhverjir skæla ef það sama myndi gylda hja ykkur...
SYDRIX, 29.1.2009 kl. 22:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.