11.6.2009 | 18:45
Rússnesk rúlletta með mannslíf.
Einn angi sársaukafulls niðurskurðar á ríkisútgjöldum blasir við í samdrættinum hjá Landhelgisgæslunni. Málið er mjög einfalt, - það verður einfaldlega spilað áhættuspil með mannslíf bæði á sjó og landi.
Þetta blasir mun betur við varðandi þyrlureksturinn en á ýmsum öðrum sviðum í öryggis- og tryggingarkerfi landsmanna þar sem niðurskurðarhnífnum verður beitt, til dæmis í heilbrigðisþjónustunni.
Næstu samdráttarár verða að meðaltali tíu dagar á ári sem engin þyrla verður til taks. Enginn veit hvaða dagar þetta verða og hvenær kemur að því óhjákvæmilega, að mannslífi eða mannslífum verður fórnað fyrir sparnaðinn.
Í útreikninginn mæti bæta líkindareikningi á því hve mörg mannslíf eða hlutfall af mannslífum muni missast við þetta.
Hvert íslenskt mannslíf telst vera um 200 milljóna króna virði í beinhörðum peningum. Líkast til gildir um þetta það sama og um nánast allt nú sem fyrr, köldu mati á peningunum einum en ekki hinni andlegu hlið þjáninga og óbeins tjóns vegna missis manna, sem fórnað kann að verða í ískaldri og tilfinningalausri rússneskri rúlletu.
Engin þyrla tiltæk í 10 daga á ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þó allt tal um peningavirði mannslífa sé heldur nöturlegt, má samt geta þess að fyrir um 15 árum var mannslífið talið um 4 milljóna dollara virði. Er ekki rétt að reikna það með nýju gengi og almennri heimsverðbólgu? Bestu kveðjur, Trausti J.
Trausti Jónsson (IP-tala skráð) 11.6.2009 kl. 22:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.