4.10.2009 | 11:20
Til hamingju með Framarakveðju.
Ég er búinn að vera lengur skráður félagi í Fram en ég hef lifað og það má nærri geta hve mikið ég lifði mig inn í þann hluta bikarúrslitaleiksins, sem ég hafði tök á að horfa á í sjónvarpi á ferð um Eyjafjörð í gær.
Mér fannst það skemmtilegur leikur sem þessi lið buðu upp á og spennan mikil, eins og sést á því hve litlu munaði oft að mitt lið skoraði og hve litlu munaði að skot Paul McShane færi inn.
Það er haft að orðtaki að "sætt sé sameiginlegt skipbrot" og það er svo sem hægt að nota það um þessa bikarkeppni.
Úr því að mitt félag varð ekki bikarmeistari var það þó huggun harmi gegn að KR varð það ekki heldur, heldur félag sem aldrei hefur hampað bikarnum.
Þess vegna flytur gamli Framarinn Breiðabliki hamingjuóskir með þennan áfanga í sögu þess félags.
Breiðablik bikarmeistari í fyrsta skipti eftir vítakeppni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er misjafnt hvort mönum finnst snjórinn góðu eða vondur.
Þegar snjórinn gerist góður
gaman er að leika sér
Oft þá brekkur brunar óður
Bjarni fel þar niður fer.
Þegar snjórinn verður vondur
varla ferðast nokkur hér
Færast ekkert fastar Hondur
og fatalausir spinna sér.
Offari, 4.10.2009 kl. 11:41
Þessi athugassemd hjá mér lenti greinilega á vitlausum stað. Þarna ætlaði ég að svara góðum snjó á Ólafsfirði.
Offari, 4.10.2009 kl. 12:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.