30.11.2009 | 19:40
Geri ekkert af mér.
Það er auðvelt að velja lag sem túlkar heit Tiger Woods um að hafa sér skár í framtíðinni.
Hinn drykkfeldi og léttlyndi bandaríski píanóleikari Fats Waller samdi og flutti lagið "Ain´t misbehaving" fyrir meira en 70 árum og nokkrum sinnum hef ég sungið lagið á skemmtunum með íslenskum texta sem ber heitið "Geri ekkert af mér."
Læt hann flakka hér svona til gamans.
GERI EKKERT AF MÉR.
(Lag: Ain´t misbehaving)
Æsandi konur á ýmsan veg /
eru í kringum mig en kvíddu´engu, ég sver að ég /
geri´ekkert af mér, geymi mig fyrir þig, - bara þig, aðeins þig , bara þig.
Ó, hve þær lokka - á ýmsan veg /
með yndisþokka ´og mikla fegurð, en ég sver að ég /
geri´ekkert af, mér, geymi mig fyrir þig,
aðeins þig, bara þig.
Skvísur anga við minn vanga, /
við það fer mann margt að langa /
en blessuð vertu, þær blikna við hliðina´á þér, /
ó, í hjarta mér.
Banda þeim frá mér, - syng til þín söng, - /
sé þig í anda´er pilsin líða framhjá, stutt og þröng, - /
geri´ekkert af mér, - geymi mig fyrir, bara þig. /
Geri´ekkert af mér, - geymi mig fyrir þig !
Skvísur
Mér að kenna, segir Woods | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.