Mikilvægt að súlan sé tendruð allan umsamdan tíma.

Friðarsúlunni í Viðey er ætlað að lýsa eftir föngum allan tímann frá fæðingardegi John Lennons til dánardægurs hans.

En á því virðist geta orðið misbrestur og vegna stórvaxandi ferðamannastraums er slíkt meira áberandi nú en áður var. 

Til dæmis var það ætlun okkar Friðþjófs Helgasonar að taka sérstaka mynd af henni um daginn vegna tónlistarmyndbandsins "Let it be done!" á YouTube, en það kvöld og þá nótt var hún ekki tendruð.


mbl.is Friðarsúlan fer í sitt árlega frí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fikt, bæði til góðs og ills.

Fikt, grunnþráin til að kanna það ókunna, og upplifa eitthvað nýtt, er afar mikilvægur þáttur á þroskaskeiði barna og unglinga.

Að sama skapi er gagnstæð hegðun, óttinn við að gera mistök með því að fikta, oft afar hamlandi hjá hinum eldri.

Í æsku var Thomas Alfa Edison hættulegur sér og öðrum vegna hins villts huarfugs síns, sem síðar reyndist ómetanlegt þegar búið var að beisla og beina því á rétta braut.

Eitt sinn var ég á stórri samkomu þar sem hljómflutnings- og myndasýningarkerfið var stopp vegna tæknibilunar sem enginn viðstaddur tæknimaður gat lagað fyrr en 9 ára gamall drengur gaf sig fram og leysti vandann á augabragði.

Áður en fram komu nógu litlar og ódýrar ratsjár til að hafa í litlar flugvélar var slíkt talið óleysanlegt.

Einn framleiðandi leitaði þá uppi nokkra nýútskrifaða afburða nemendur úr háskólum sem höfðu aldrei komið nálægt ratsjám og þeir leystu verkefnið af því að þeir komu að þessu með autt blað með opnum huga án nokkurra fyrirfram mótaðra mótbára né fordóma og voru óhræddir við að fikta og fara nýjar brautir.

 

 

 


mbl.is Meðalaldur tölvuþrjóta 17 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er vel hægt.

Fyrsta bílferð sögunnar náði fyrir húshorn, nokkur hundruð metra hjá Karli Benz.

Festyrsta bílferðin utanbæjar var rúmlega 100 kílómetra löng hjá konu hans.

Fyrsta vélflug Wright-bræðra var 37 metra langt og flugvélin náði mest 3ja metra hæð.

Í öll skiptin voru hrakspár á lofti og bullandi vantrú.

Þetta væri gott að hafa í huga þegar úrtöluraddir eru hvað háværastar varðandi árangur í loftslags- og orkuskiptamálum.


mbl.is Dregur úr útblæstri á þessu ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 8. desember 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband