28.8.2015 | 20:04
Samsvarar meters djúpum snjó í frosti.
Það er þumalfingursregla, að hver millimetri sem fellur af úrkomu í vatnsformi, samsvari að meðaltali einum sentimetra af snjó, ef hún fellur í frosti.
Samkvæmt því samsvaraði dagsúrkoman á Siglufirði því að fallið hefði jafnfallinn snjór, einn metri á dýpt, en veghæð undir fólksbíla er um 15 sentimetrar og 30 sentimetrar á jeppum á stórum dekkjum, svo að engu farartæki hefði verið fært nema þeim, sem fljóta ofan á snjónum.
Þetta er álíka mikil úrkoma á einum degi og nemur allri meðalúrkomu á Akureyri þrjá sumarmánuði samtals.
Íbúar reyna að bjarga eignum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.8.2015 | 07:10
Segir mikið um eðli vandans.
Líkin 70 í vöruflutningabílnum, sem skilinn hafði verið eftir í Austurríki, og þúsundir flóttamanna, sem drukknað hafa á Miðjarðarhafi í flótta frá ósegjanlegri neyð, segja aðra sögu af flóttafólkinu, sem reynir að komast til Evrópu, en haldið hefur verið á lofti af mörgum hörðum fylgismönnum þess, að reisa múr á suðurlandamærum Evrópu og Bandaríkjanna og vísa öllu "glæpahyskinu" til síns heima, sem streymi til Evrópu og Bandaríkjanna í þeim staðfasta og einbeitta brotavilja að kollvarpa vestrænum ríkjum, taka þar völdin og koma í Evrópu á Sharialögum með handaafhöggum og aftökum.
Donald Trump fær góðan hljómgrunn í Bandaríkjunum fyrir því að vísa 11 milljónum innflytjenda, sem þangað eru þegar komnir, úr landi, og álíka sjónarmið eiga vaxandi fylgi að fagna í Evrópu.
Þegar þannig er talað er stutt í það að leitað verði róttækra ráða, sem ein dugi til þess að "leysa múslimavandamálið" í Evrópu og "ólöglegra innflytjendavandamálið" í Bandaríkjunum.
Ellefu milljóna manna vandamál sitt hvorum megin Atlantshafsins er álíka stórt að umfangi og 10,5 milljóna "Gyðingavandamál" var fyrir 75 árum.
Fundu yfir 70 lík í bílnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (34)