11.1.2016 | 22:30
Endurskipulagning og þjónusta alla daga?
Ég dvaldi langdvölum sumrin 2010-2013 á Hvolsvelli og þurfti í nokkur skipti á þjónustu heilsugæslu og apóteks að halda.
Í eitt skiptið slasaðist ég það mikið að ég hefði þurft að fara á heisugæsluna, en hitti ekki á réttan vikudag til að meiðast.
Ekki aðeins lokað um helgar heldur einnig lokað vegna sumarleyfa, en í þeim tilfellum bent á heilsugæsluna á Hellu, sem er í 13 kílómetra fjarlægð.
Er möguleg lausn að hafa aðeins eina heilsugæslu á þessu svæði en hafa þjónustuna þeim mun betri í staðinn?
Auðveldara fyrir kýr að fá þjónustu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2016 | 21:52
Rafaflið sækir á.
Tveir söluhæstu fjórhjóladrifsbílarnir í Noregi bjóða upp á rafafl, og Tesla model S er eingöngu knúinn rafafli.
Heildarsala Mitsubishi Outlander nýtur góðs af því að bæði er boðið upp á bensín- og olíuknúna bíla og "stinga í samband tvinnbíla", "plug-in hybrid".
Raunar er merkilegt að það skyldi taka áratug að þróa slíka tvinnbíla upp úr fyrstu tvinnbílunum.
Ein ástæða þess að Sádi-Arabar halda áfram að dæla olíu inn í yfirfullan markað fyrir olíu kann að vera sá að með því að þrýsta verðinu niður minnka þeir samkeppnismöguleikana fyrir aðra orkugjafa.
En það mun ekki takast nema í afmarkaðan tíma.
Outlander vinsælasti fjórhjóladrifsbíllinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 12.1.2016 kl. 12:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
11.1.2016 | 16:18
Týnda teskeiðin.
Þegar tengd frétt á mbl.is er lesin kemur leikritið Týnda teskeiðin eftir Kjartan Ragnarsson upp í hugann.
Það var afar vel skrifað og lærdómsríkt leikrit sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu fyrir um 40 árum.
Það fjallar um mannlega veikleika þegar bregðast þarf við alvarlegum vanda sem kemur óvænt upp í samskiptum fólks, er algerlega klassískt og tímalaust og á við fjölbreytilegar aðstæður í lífi einstaklinga og jafnvel þjóðfélagshópa og þjóða.
Leikritið myndi koma vel út sem kvikmynd og hafa alþjóðlega skírskotun.
Gaman væri að sjá það sem skáldsögu eða á fjölunum á ný.
Lést mögulega í kyrkingarleik | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)