Einn af síđustu "ávölu" nýju bílunum 1957.

Dante Giacosa hét bílahönnuđurinn, sem hannađi Fiat bíla frá 1936 til 1972. Hann var snillingur í ađ hanna minnstu bíla fyrirtćkisins eins og Fiat Topolino 500 frá 1936 ber vitni um.

Síđan komu bílar eins og Fiat 1400 áriđ 1950 og Fiat 600 áriđ 1956.

Um ţađ leyti voru bílar í örri breytingu útlitslega í ţá átt ađ vera kantađir, og Bandaríkjamenn réđu ţar ferđinni, en einnig kom viđ sögu ítalski hönnuđurinn Pinin Farina, sem hannađi međal annars Nash 1952, sem var fyrsti fjöldaframleiddi fólksbílinn, ţar sem "frambrettin" voru hćrri en vélarhlífin. 1970_Fiat_500_L_--_2011_DC_1[1]

Ţađ kom ţví dálítiđ á óvart ađ Fiat 500, sem kom fram 1957, skyldi vera međ ávalari línum en Fiat 600 og ţeir bílar, sem ţá voru nýir á markađnum. Fiat 500 var eini nýi bíllinn á ţessum tíma sem var alls ekki međ framljósin skagandi fram úr framhornum bílsins, heldur međ ávalt bogadregnar línur í ávölum framenda.

Eina eftirgjöfin var fólgin í örlítiđ framstandandi framljósum, en sú "villa" var síđan leiđrétt í nýja Fiat 500 sem er reyndar svo miklu stćrri en fyrirrennarinn ađ viđ liggur ađ ţađ sé um of.

 Ávalar línur voru einfaldlega komnar úr tísku 1955, enda leiđ ekki nema rúmur áratugur ţar til Fiatverksmiđjurnar neyddust til ađ láta breyta útliti minnasta bíls verksmiđjanna á róttćkan hátt, svo púkalegur og úreltur í útliti ţótti Fiat 500 vera.

Undirvagn, vél og driflína Fiat 126 voru hin sömu og á Fiat 500, en útlitiđ gerbreytt til ađ ţjóna tískunni, enda entist Fiat 126 í 28 ár, eđa tvöfalt lengur en Fiat 500.

En síđustu tvo áratugi hefur tískan sveiflast alla leiđ til baka og vel ţađ, svo ađ núna ţykja hinn upprunalegi Fiat 500 og ekki síđur hinn nýi vera einhverjir allra fallegustu bílar allra tíma, - sá eldri meira ađ segja valinn kynţokkafyllsti bíll heims!

En Fiat 126 ţykir hins vegar úreltur í útliti, og 3-4 faldur verđmunur er jafngömlum Fiat 500 og Fiat 126 frá 1972-1975, ţeim eldri í vil.


mbl.is Agnarsmátt listaverk
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Steinsson

Ég bý í Austurríki og hér eru bílaáhugamenn mjög stoltir af "sinni" útgáfu af Fiat 500 en hér var hann framleiddur af Steyr-Daimler-Puch og seldur sem Puch 500. Ţeir keyptu boddíinn af Fiat en settu sína eigin drifrás í bílinn og hér vilja menn halda ţví fram ađ Puch 500 sé miklu betri og skemmtilegri bíll heldur en orginalin. Vélin var líka 500cc en boxer í stađ línu. Ţeir smíđuđu líka í lokinn 126 bílinn međ sömu drifrás.

http://de.wikipedia.org/wiki/Puch_500_(Kleinwagen)

Einar Steinsson, 13.11.2013 kl. 19:18

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband