Sumargleðin 35 árum eða jafnvel enn lengra á undan !

Tímamót, skeggjuð manneskja í kjól á sviðinu sem heillar alla upp úr skónum, Austurríkismaður sem sigrar í Eurovision?

Nei.

Á facebooksíðu Þuríðar Sigurðardóttur má sjá ljósmynd, sem hún hefur legið á eins og ormur á gulli í 35 ár og sýnir eitt af eftirminnilegri atriðum Sumargleðinnar á áttunda áratugnum, skeggjaða hljómsveitarkonu.

Það var fátt sem þeim hópi datt ekki í hug. Meðal annars sumarafbrigðið af jólasveini í fullum jólasveinabúningi, svonefndur júlísveinn, látinn fara hamförum á Norðurlandi um hásumar og slær í gegn hjá Skagfirðingum, þegar hann kveðst aðspurður vera tvíburabróðir Ketkróks og heita Sauðárkrókur !

Enn er ekki runninn upp sá tími þegar hægt verður að telja árin afturábak frá júlísveini í Júróvision aftur til Sauðárkróks á Króknum ! En hver veit nema sá tími muni koma þegar júlísveinn leggur Evrópu að fótum sér.  


mbl.is Skeggjaða konan sigraði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband