"Túrbínutrixið" í milljarða fjárútlátum.

"Túrbínutrixið" frá 1970 er í fullum gangi í dag. Það fólst í því að kaupa stórar túrbínur í margfalt stækkaða Laxárvirkjun sem drekkt hefði Laxárdal og tekið vatnið af Aldeyjarfossi í Skjálfandafljóti með því að veita því yfir í Kráká og Mývatn í svonefndri Gljúfurversvrikjun. 

Þegar búið var að eyða feikna fjármunum í rannsóknir og kaup á túrbínum var andófsfólki stillt upp við vegg gegn gerðum hlut og sagt: "Þið berið ábyrgð á tjóninu ef ekkert verður af virkjuninni." 

Sigurður Gizurarson verjandi andófsfólksins sneri dæminu við í réttarhöldum og gerði þá sem beittu "túrbínutrixinu" ábyrga. 

Búið er að beita túrbínutrixinu við allar stórvirkjanir á þessari öld og verið er að beita því vegna álveranna á Suðvesturlandi. 

Eytt er, eða eyða á, milljörðum í kostnað vegna fyrirhugaðrar uppþurrkunar Aldeyjarfoss og Hrafnabjargafoss í Skjálfandafljóti, Urriðafoss, Búðafoss, Gljúfurleitarfoss, Dynks og Kjálkaversfoss í Þjórsá, fossanna í Skaftá, Hvalá og flúðanna í ánum í Skagafirði svo að dæmi séu tekin.

Og þetta er bara talið hið fínasta mál. 


mbl.is Rannsaka 26 orkukosti í sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Samkvæmt því plani sem ég hef séð, hélt ég að amk. að ekki stæði til "uppþurrkun" Urriðafoss?

Fossbúinn (IP-tala skráð) 24.8.2015 kl. 09:59

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

HVaða plan sást þú?  Farðu inn á Wikipedia og sjáðu hvernig á að gera þetta. Stífla Þjórsá nokkru fyrir ofan gömlu brúna, leiða vatnið í göngum í gegnum hverfla í Stöðvarhúsi neðanjarðar og leiða vatnið þaðan út í farveg Þjórsár NEÐAN við Urriðafoss. 

Heldurðu virkilega að það vatn, sem skapa á 130 megavött geti bara rétt si svona hoppað upp fyrir foss-stæðið og runnið aftur niður? 

Svo ótrúlega algeng sú trú á Íslandi að hægt sé að eiga kökuna áfram en éta hana samt strax. 

Ómar Ragnarsson, 24.8.2015 kl. 11:13

3 identicon

Þetta hefur einhvern veginn farið fram hjá mér. Verð að játa hálf skömmustulegur að hafa horft á eitt einhverja harðsoðna fréttaskýringu um lítið og sætt lón. Annars tók ég af fullri hörku þátt í baráttu Hollvina Skógafoss, gegn hóteli sem var búið að teikna upp við fossinn, og sveitarstjórn greinilega með í ráðum, annars hefði það aldrei verið teiknað. Þau áform var hætt við - amk. að sinni. Skammast mín ekkert fyrir það andóf....

Fossbúinn (IP-tala skráð) 24.8.2015 kl. 15:04

4 identicon

Ég vil bara meðan man,

mikið til þá rofar,

málið híf’á hærra plan,

og hafa fossinn ofar! surprised

Þjóðólfur á Urriða (IP-tala skráð) 24.8.2015 kl. 15:16

5 identicon

http://www.visir.is/vill-sja-urridafossvirkjun-sem-fyrst/article/2014141128834

sealed

Bændur hafa orðið (IP-tala skráð) 24.8.2015 kl. 15:29

6 identicon

hann sé fluttur á mölina? Það þýðir ekki að standa og ýlfra úlfur, úlfur og pissa í skóinn sinn!  Spurt er: Hvaða aðrar leiðir bjóðast til að sinna orkuþörf komandi kynslóða?   yell

Sá á kvölina, sem á völina, nema... (IP-tala skráð) 24.8.2015 kl. 16:56

7 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þarna vorum við baráttufélagar, fossbúi góður, gegn stórslysi við Skógafoss og örfáum atkvæðum munaði í byggðakosningunum að eilífur meirihluti Framsóknar félli! 

Ómar Ragnarsson, 24.8.2015 kl. 19:58

9 identicon

Viva Skógarfoss!
Þarna átti frúin mín einhver puttaför í að breyta þessu....

Jón Logi (IP-tala skráð) 25.8.2015 kl. 08:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband