Minnir á Balkanskagann fyrir rúmri öld.

Balkanskaginn var nefndur "órólega hornið á Evrópu" í upphafi 20. aldarinnar. Þar rákust á hagsmundir Rússa, Tyrkja, Austurríkismanna, Þjóðverja, Breta og Frakka og þess vegna voru þar staðbundin stríð og átök þótt friður ríkti við önnur landamæri Evrópu, norðar í álfunni.

Á nýlendusvæðum í Norður-Afríku höfðu stórveldin stundað samningapólitík, en á Balkanskaganum var hins vegar vettvangur fyrir beinni átök og vopnaglamur.

Í gangi var heiftúðugt vopnakapphlaup á höfunum.

Allt fór þetta úr böndunum þegar serbneskur þjóðernissinni myrti ríkisarfahjónin austurrísku.

Núna er hafið vopnakapphlaup á höfunum og "órólega hornið" er í Miðausturlöndum eftir að "arabíska vorið" snerist upp í andhverfu sína.

Rússar eru á ný aðilar að stríðsleikjum og hernaðarbrölti sem Vesturveldin áttu mestan þátt í að koma af stað með allt öðrum afleiðingum en þau höfðu vonast eftir.

Óvænt morð á ríkisarfa setti allt í bál og brand 1914. Enginn hafði séð það fyrir og á sama hátt er ekki víst að menn sjái óvænta uppákomu nú fyrir með afleiðingum í formi atburðarásar sem fer úr böndunum.

 


mbl.is Rússar valda vandræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þeir eru á einkennilegri göngu Sjálfstæðismenn þessa dagana.  Björn Bjarnason vitnar í bandarískan flotaforingja í kjölfar þess að Bandaríkjamenn sprengja sjúkrahús í tætlur og Kristján Þór Júlíusson vill fara að skima unglinga.  Hvað er að þeim?  

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 8.10.2015 kl. 09:47

2 identicon

Heima er bezt....

Skaftárhlaup sagt er að sjatni,

og skapið á svæðinu batni,

þau vart eru vot,

þó verði  “Landbrot” -

svo vel heldur nafngiftin vatni! sealed

Þjóðólfur að Vatnsleysu (IP-tala skráð) 8.10.2015 kl. 11:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband