Hver er sektin hér? Nokkurn tíma sektað?

Sekt fyrir það að leggja ólöglega í stæði hreyfihamlaðra hér á landi er ekki á almanna vitorði, enda hef ég aldrei séð frétt um að sektað hafi verið eða að lögregla hafi gert neitt í slíkum málum.

Í Bandaríkjunum eru sektir fyrir þetta á bilinu 40-130 þúsund krónur.

Árum saman átti ég erindi í Landsbankann í Hamraborg og þar kom ekki sá dagur sem fullfrískt fólk lagði ekki í stæði hreyfihamlaðra þar fyrir framan.

Einnig á ég oft erindi í Austurver þar sem eru tvö bílastæði fyrir hreyfihamlaða, verslanir, apótek og hundruð íbúða fyrir aldraðra í næsta nágrenni.

Nákvæmlega sama þar og sömu svörin.

Í áranna rás hefur aðeins ein ökumaður beðist afsökunar í mín eyru 

Allir hinir, margir tugir, höfðu réttlætingu á reiðum höndum. Hér eru nokkur dæmi um orðaskipti. Orð hinna brotlegu skáletruð.

 

1. Ég ætla bara að skreppa inn smástund. 

- Hvernig á hinn fatlaði að vita það þegar hann kemur að á bíl sínum hvað þú ætlar að vera lengi inni?

 

2. Ég ætlaði bara að skreppa inn og vera fljótur, en vissi ekki að það væri svona mikil biðröð inni.

Af hverju fórstu þá ekki út og færðir bílinn?

-  Ég vissi ekki strax að tæki svona langan tíma að afgreiða biðröðina.

-  Þú varst með miða og ef biðröðin var svona löng gastu skroppið út og fært hann.

-  Nei, það hefði getað farið að ganga betur og þá hefði ég misst af röðinni.

-  Þér hefur ekki dottið í hug að það væri rangt hjá þér í upphafi að leggja bílnum í stæðið? Hvernig gat aðvífandi hreyfihamlaður maður vitað hvenær þú kæmir út?

- Hvaða andskotans afskiptasemi er þetta? 

 

3. Það eru tvö stæði hérna fyrir fatlaða og þeir þurfa ekki bæði stæðin.

- Jú, það þarf tvö stæði. Hér eru bankaútibú, heilsugæsla, íbúðablokkir aldraðra og apótek auk fleiri verslana. Stæðin eru tvö af því að hér er óvenjulega margt hreyfihamlað fólk á ferð. 

Ég vissi það ekki.

- Þú máttir vita það að stæðin væru tvö af því að þeir sem ákváðu það vissu það. Og það skiptir svo sem heldur ekki máli. Þú mátt einfaldlega ekki leggja í þessi stæði.   

 

4. Ég er að útrétta fyrir konuna mína, sem á bílinn, og leyfismerkið fyrir stæðið er í glugganum á bílnum. 

- En þú ert ekki hreyfihamlaður og þetta miðast við þann, sem þarf að fara út úr bílnum.

- Nei, þetta miðast við það hver er eigandinn. Þú sérð merkið við framrúðuna.

 

5. Konan mín á bílinn og er hreyfihömluð. Hún situr inni í bílnum á meðan ég er að útrétta fyrir hana.

- En þú ert ekki hreyfihamlaður og þú ert að útrétta.

- Nei, en hún er fötluð og þetta er hennar bíll og hennar erindi sem ég er að reka.

 

6. Þér kemur þetta andskotann ekkert við.

- Jú, ég á hreyfihamlaðan son og mér kemur það við þegar brotið er á honum og öðrum hreyfihömluðum. Þetta kemur öllum við.  

 

7. Það er bara eitt skilti og er bara fyrir eitt stæði.

- Nei, hér eru tvö blámáluð stæði fyrir hreyfihamlaða.

- Ég sá það ekki fyrr en of seint. Það er bara eitt skilti.

- Sástu það of seint? Er ekki bakkgír á bílnum þínum?

- Hættu þessu andskotans nöldri. Annað stæðið er autt.

- Hér eru heilsugæsla, apótek og íbúðablokkir fyrir aldraða. Það þarf tvö stæði fyrir hreyfihamlaða af því að hér er óvenju mikil umferð fyrir þá.

- Það koma nú ekki tveir fatlaðir á meðan ég er inni.

- Hvernig veistu það?

 

8. Það er nóg pláss núna fyrir fatlaða að leggja í önnur stæði hér. Það var bara svo margfalt meiri umferð þegar ég kom hér áðan, og ég var að flýta mér.

 

Eitt dýrlegt tilfelli. Maður kemur og leggur bíl sínum á skáletraða svæðið milli tveggja bílastæða hreyfihamlaðra, svo að bíll hans stendur inn á bæði stæðin. Honum er bent á að hann sé að brjóta reglur.

 

9. Nei. Það er pláss til að leggja bílum báðum megin við mig.

- Rangt hjá þér. Sumir hinna hreyfihömluðu þurfa að geta opnað dyrnar nógu mikið til að koma hjólastólum út og hafa rými fyrir þá. Þess vegna er þetta skáletraða svæði á milli stæðanna.

Ég vissi það ekki.

- En þú máttir vita að skáletraða svæðið væri þarna ekki bara upp á skraut.

- Það eru ekki allir hreyfihamlaðir með hjólastóla í bílum sínum.

- Hvernig veist þú það fyrirfram hvort sá hreyfihamlaði sem kemur hér, sé ekki með hjólastól? 

 

Hverjir af þessum kumpánum, sem eru reyndar af báðum kynjum, skrapar botninn?

Mér finnst það vera þeir, sem eiga náinn hreyfihamlaðan ástvin og ættu að vita hve mikils virði það er fyrir hreyfihamlaða að ekki sé gengið á rétt þeirra, en misnota samt aðstöðu sína til að sleppa við að labba smá spöl.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Ofurfyrirsæta nýtir sér stæði fatlaðra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Annars vegar er um að ræða stöðubrotsgjald vegna banns við að leggja ökutækjum nema á sérstaklega merktum stæðum, að eigi megi stöðva eða leggja ökutæki á gangstétt, gangstíg, umferðareyju, á gangbraut, gatnamótum, í merktu stæði fyrir leigubifreiðar eða á biðstöð fyrir hópbifreiðar.

Gjald vegna brots gegn ofangreindu hækkar úr 5.000 krónum í 10.000 krónur.

Hins vegar er um að ræða stöðubrotsgjald ef ökutæki er lagt í merkt stæði fyrir bifreiðar fatlaðs fólks.

Gjald vegna brots gegn ákvæðinu hækkar úr 10.000 krónum í 20.000 krónur."

Steini Briem, 23.8.2015

Þorsteinn Briem, 22.1.2016 kl. 08:03

2 Smámynd: Ragna Birgisdóttir

Hafa sektirnar bara nógu háar hvort sem það er um að ræða að ökutækjum er lagt ólöglega eða önnur umferðalagabrot. Það eina sem dugir er að koma við pyngjuna hjá fólki.Það virðist sem að ekkert annað dugi.

Ragna Birgisdóttir, 22.1.2016 kl. 11:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband