Hvílík býsn af fé og fuglum!

Það var sérkennileg upplifun að fara Fjarðaleiðina svokölluðu á vespuhjóli frá Egilsstöðum til Djúpavogs og Reykjavíkur í gærmorgun. Inni í bíl verður ekki til sú nálægð við náttúruna, sem útivera gangandi og hjólandi fólks veitir. DSCN7944

Hjólið Léttir er að visu millistig á meðan verið er að þróa betur rafknúin hjól sem geta komist hratt yfir og þannig nýst að öllu leyti eins og bílar til að fara erinda sinna. 

Það eru að vísu til rafhjól, sem geta komist langt yfir löglegan vegahraða hér á landi og komist hátt á þriðja hundrað kílómetra á einni hleðslu. 

En þau eru dýr, kosta 17000 evrur í Þýskalandi og myndu líklega kosta hátt í fjórar milljónir króna ef þau væru boðin til kaups á íslenskum markaði.2016_zero-s_product-page_sr-order-image_16635[1]

Og það tekur hálfa aðra klukkustund að hraðhlaða slíkt hjól og meira en tíu klukkustundir að hlaða það til fulls.Sólarupprás, Stöðvarfirði

Fyrir bráðum þremur árum lofuðu þáverandi forsætisráðherra og forseti Íslands því á ráðstefnu að drífa í því að koma upp hraðhleðstustöðvum á hringveginum, en ennþá vantar alveg upp á að hægt sé að komast meira en upp í Borgarfjörð eða austur á Hvolsvöll.

Í gærmorgun voru dýr og fuglar að fara á stjá og allt að lifna við þegar sólin var að reyna að brjótast í gegnum þokuna, sem tafði förina mikið en gaf þó dulúð, sem blandin var spennu.

Myndin er tekin yst í Stöðvarfirði norðanverðum.  Bíll kemur út úr þokunni. Skiptist á dýrð morgunsólarinnar ofan við hina frægu lágþoku, Austfjarðaþokuna.  

Ein myndin er tekin í Berufirði, þar sem sólin var að brjótast í gegn inni í firðinu og leysa upp þokuböndin, en utar var allt á kafi í þoku og súld. DSCN7948

En full mikið var þó af fé við veginn og jafnvel inni á honum.

Maður verður smeykari við að lenda í árekstri á hjóli á 90 kílómetra hraða en á bíl og reynir að hafa augun hjá sér.

Tvívegis var alls ekki hægt að sjá hvað lá í leyni við veginn.

Þegar komið var yfir eina brúna spratt allt i einu upp kind, sem hafði verið bak við hægri brúarstólpann og prjónaði með framfótunum í átt að hjólinu.

Á öðrum stað fór stærðar álft upp úr felustað sínum og skaust yfir veginn, svo að framhjólið sleikti afturendann á henni.Á hjóli er ekkert hægt að gera til að sveigja hjá kindum; sem hlaupa fyrir þau, nema að reyna að hemla.DSCN7947

Þótt úðinn stæðí framan hjálminnn á ferðinni var það bara hressandi, og í þau skipti, sem stansað var stuttlega til að njóta þess að heyra og sjá náttúruna taka við sér í dögun, var það yndisleg upplifun.  


mbl.is Fólkinu verulega brugðið eftir óhappið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 "There's a great future in plastics. Think about it. Will you think about it?" var sagt í frægri mynd. 

Nú er framtíðin rafmagn. 

https://www.youtube.com/watch?v=u-PV_ZBnJsM

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 20.8.2016 kl. 10:44

2 Smámynd: Ragna Birgisdóttir

Takk fyrir þetta kæri Ómar. Frábært að fá að fylgjast með þessu ævintýri þínu.smile

Ragna Birgisdóttir, 20.8.2016 kl. 11:31

3 Smámynd: Sumarliði Einar Daðason

Það er svo heillandi að fylgjast með þér að gera svona hluti. Í mínu tilfelli þá er það einkum flugið, nýtingu rafmagns á skynsaman hátt, faratæki og náttúran.

Keep on going!

Sumarliði Einar Daðason, 20.8.2016 kl. 15:53

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Skjóta helvítin!"

Þorsteinn Briem, 20.8.2016 kl. 16:21

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

Alltaf best fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn að láta allar nýjungar eiga sig.

Þorsteinn Briem, 20.8.2016 kl. 16:59

9 Smámynd: Már Elíson

Góðar myndir hjá þér Ómar, og flott veður til myndatöku. - Það mætti nú samt láta myndirnar njóta sín betur ef þú auglýstir ekki hjólið svona mikið. - En þetta eru þínar myndir og þú fókusar ekki bara á landslagið og náttúruna.

Már Elíson, 20.8.2016 kl. 17:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband