Golf og fimleikar í hágæðaflokki, - hver hefði trúað þessu?

Það er stutt síðan nafnið Ólafía Þórunn Kristinsdóttir var alveg óþekkt hér á landi. 

Og sú var tíð að ýmsir gerðu góðlátlegt grín að þeim Íslendingum sem létu sér detta í hug að örþjóð eins og við ættum nokkuð erindi í keppni í íþróttum eins og fimleikum og golfi erlendis. 

En skyndilega eigum við konu í hópi þeirra bestu í golfinu og fimleikaflokka kvenna sem vinna gull á stórmótum. 

Þetta er hreinlega yndislegt og glæsileg frammistaða Ólafíu Þórunnar kemur eins og skært ljós inn í dimmasta mánuð ársins hjá okkur. 


mbl.is Ólafía í hóp þeirra bestu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Glæsilegt!

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 5.12.2016 kl. 05:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband