Jeppi valt, bravó! - Æ! Afsakið!

Loksins hillir undir sigur í "bílvelta varð"- málinu sem ég hef rekið hér á bloggsíðu minni mánuðum saman í að því er virtist vonlausri baráttu fyrir því að þessi málleysa verði lögð af. 

Í stað fyrirsagnarinnar "bílvelta varð" um óhapp í Austur-Húnvatnssýslu í kvöld eða jafnvel "jeppavelta varð", kemur þessi fína fyrirsögn hér á mbl.is "jeppi valt".

Þessu hlýt ég að fagna útaf fyrir sig þótt að sjálfsögðu ætti ég að biðjast afsökunar á því að láta slíka tilfinningu í ljósi yfir leiðinlegum atburði og votta að sjálfsögðu manninum samúð mína sem í þessu lenti. 

 




mbl.is Jeppi valt í A-Húnavatnssýslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband