11.1.2024 | 09:24
"Virkasta eldstöðin" ber nafn með rentu.
Grímsvötn hafa einhverja mestu reynslu af heilabrotum vísindamanna hér á landi. Þegar Agnar Koefoed-Hanson hóf að nota Klemm flugvélina þýsku 1938 urðu þau tímamót, að hægt var að nota nútíma flugtækni til rannsókna á eldsumbrotum.
Og þá þegar var kominn grundvöllur fyrir mismunandi útskýringar á því hvort olli hinu, eldgos í grímsvönum og hlaup úr þeim.
Síðasta gos, 2011, var svo stórt, að ekki fór á milli mála að gosið réði ferðinni í það sinn.
![]() |
Stærsti skjálfti frá upphafi mælinga: Órói mælist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2024 | 23:58
Lausnarmiðað og vant fólk ætti að geta leyst þetta mál.
Mál Svandísar Svavarsdóttur sýnist mörgum snúið, en nú, þegar öll atriðði þess koma betur fram, ætti fjarvera ráðherra á samskipta- og fjarskiptaöld ekki að verða að afsökun fyrir því fyrir lausanamiðaða og sjóaða stjórnmálamenn að sigla því í höfn eins og gert hefur verið áður.
Kristján Loftsson var búinn að draga lappirnar lengi og nánast stefna í þær ógöngur sem gerði ráðherra illmögulegt að komast hjá því að gera upphaflegu ákvörðun sína fyrirsjáanlega.
Afleiðingin varð einstaklega klaufalegt mál, sem vefst fyrir aðilum þess.
![]() |
Guðlaugur Þór staðgengill í fjarveru Katrínar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.1.2024 | 12:33
Mannslíf njóti vafans.
Eins og oft áður eru ýmsar skýringar á sveimi varðandi stöðuna í umbrotunum á Grindavíkursvæðinu.
Sem fyrr ætti það að hafa forgang hjá öllum að mannslífin, sem í húfi eru, hafi forgang.
![]() |
Ástæða fyrir lítilli skjálftavirkni á mælum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2024 | 12:31
Eftirköst mikilsvægs fundar frá því fyrir næstum aldarfjórðungi?
Sjónvarpsstöðin Al Jazeera fjallaði fyrir áratug um stefnumarkandi fund í æðstu stjórn Boeing verksmiðjanna fyriir um aldarfjórðunigi, þar sem rætt var um nauðsynlegrum viðbrögðum andstpænis vaxandi velgengni Airbus.
samkvæmt gögnum Al Jazeera var ákveðið að í forgangsröð yrði sett markaðsástand framar öryggi.
Í kjölfarið fór mikið átak varðandi atriði á borð við framleiðslu á Boeing 787 Dreamliner.
Þegar frá leið lenti Boeing í mesta basli við Dreamliner, sem olli vandræðum með að standa við tímaáætlanir í framleiðslu og sölu vérlarinnar.
Vandræðin með Boeing 737 Max urðu síðan heimskunn.
Nýjustu vandræðin, sem rakin eru nú í fréttum, leiða líkur að því, að Boeing hafi ekki enn náð að bíta að fullu úr nálinni með meinta tilslökun í öryggismálum hér um árið.
![]() |
Hurð Boeing-vélarinnar fundin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2024 | 14:14
Undarlegur seinagangur.
Þótt nú hafi verið brugðist við hinu undarlega sleifarlagi, sem ríkti í því að kyrrsetja Boeing Max flugvélar Alaska airlines hið snarasta eftir að hluti gólfs hennar féll útbyrðis, er málið enn þannig að varla er hægt að nota annað orð en ófremdarástand ríki í þessu fáheyrða máli.
![]() |
Leita að hlutanum úr skrokki flugvélarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Upp úr 1950 fóru fyrstu stóru þoturnar að fljúga í áætlunarflugi og þessar þotur, af De Havilland Comet-gerð skópu Bretum nokkurra ára forskot í þotuflugi og þotusmíði.
En þegar Comet þotur fórust hver af annarri með því að tætast sundur þegar þær voru að komast í farflugshæ, var framleiðslu þeirra hætt, og í hönd fór tímamótarannsókn á leifum einnar þeirra, sem leysti gátuna: Gluggarnir voru ferkantaðir og nokkuð stórir.
Vegna þrýstingsbreytinga þegar vélarnar náðu farflughæð, komst svonefnd málmþreyta að í gluggarömmunum, sem að lokum gáfu sig og sprengdu skrokkinn út frá sér.
Lausnin fólst í að styrkja gluggana og gera þá minni og ávalari. En þessi slys urðu til þess að Bandaríkjamenn náðu forystunni í smíði farþegaþotna með fyrstu Boeingþotunni, sem enn í dag er með sama þversniði skrokksins og Boeing mjóþoturnar í dag.
Ef hið furðulega atvik á Boeing Max þotu núna hefur gerst í aðeiðns 16 þúsund feta hæð, má furðu gegna að þotunum sé ekki bannað að fljúga hærra meðan verið er að rannsaka þetta stórfurðulega mál.
![]() |
Nauðlenti eftir að gat kom á farþegarými vélar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.1.2024 | 13:54
Eldvirknin hefur farið sínu fram, og gerir það nú og framvegis.
Fyrir um aldarfjórðungi var Axel Bjðrnssyni jarðeðlisfræðingi falið að gera tillögur um hugsanlegar varnaraðgerðir gegn hugsanlegum umbrotum á Reykjansskaga.
Axel hóf starfið á því að skipta svæðinu í tvennt, annars vegar sunnan Hafnarfjarðar og hins vegar norðan.
Hann skilaði bráðabirgðaáliti og fékk þau svör, að byrjað yrði á vinnu við suðursvæðið en norðursvæðiðið yrði látið bíöa, vegna þass að þar væri miklu meira af mannvirkjum og fólki en á suðursvæðinu!
Dæmigert fyrir stjórnmálamenn, að víkja verkefninu sem lengst frá sér, og því lengra sem hægt er að víkja viðfangsefninu, því betra.
Þegar skoðuð er eldvirkni á línunni frá Ögmundarhrauni og norður undir Óbrinnishóla sunnan Kaldársels, sést að hún hefur komið fram í eldgosum og hraunstraumum úr mörgum gígum á um hundrað kílómetra löngu svæði og meðal annars runnið til sjávar við Straumsvík og Vellina í Hafnarfirði.
Þegar jarðvísindamenn benda á þetta núna fá þeir skömm í hattinn hjá stjórnmálamönnum, sem sýnir að framsýnin hefur ekkert skánað síðasta aldarfjórðunginn.
![]() |
Engir varnargarðar ráðgerðir um Hafnarfjörð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.1.2024 | 11:01
Hinar nýju gosaldir?
Eftir um það bil átta kyrrstððualdir eldsumbrota á Reykjanesskaga og fyrstu þrjú ár nýs umbrotatímabils var giskað á það hér á síðunni fyrir tveimur árum, að nýtt og hugsanlega margra alda tímabil umbrota væri að hefjast, sem allt eins gæti á endanum breitt sig út um allan skagann, allt frá Reykjanestá og norðaustur til Hengilsvæðisins.
Tilgáta um slíkt tímabil sem ekki væri einskorðað við Svartsengi sýnist alls ekki ólíklegri en hvað annað.
![]() |
Gætu verið ótengdir Svartsengi: Gosreinar að vakna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.1.2024 | 21:40
Rót hjá frændþjóðum vegna þjóðhöfðingjaskipta.
Avörp þjóðhöfðingja Íslendinga og Dana koma af stað ákveðnu róti um sinn. Margrét Danadrottning tekur skynsamlegt skref í óhjákvæðilegum kynslóðaskiptumm, en hér á landi munu margir, sem áður hafa orðið hugsi í aðdraganda forsetakosninga, sennilega velta eitthvað vöngum upp á nýtt, jafnvel á annan tug manna.
Enginn veit hve stór þessir hópur hugsanlegra vonbiðla verður né hve miklu róti tilkoma þeirra á eftir að valda.
Núverandi forseti okkar hefur verið farsæll í starfi og kannski hefði verið betra að hann sæti þriðja kjörtímabil sitt.
![]() |
Danir í áfalli eftir ávarp drottningar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.12.2023 | 21:20
Tenerife síðbúin uppgötvun.
Það var ekki fyrr en uppúr 1980, sem Íslendingar gerðu þá síðbúnu uppgötvun, að fyrir þjóð, sem öldum saman hafði verið þrúguð af rysjóttu veðri og köldum sumrum, var suður í höfum að finna slóðir með mun jafnara og heitara veðri, sem gæti orðið nokkurs konar annað heimili norrænnar þjóðar, sem hefði efni á að lifa að stórum hluta lífi farfuglanna sitt hvorum megin á hnettinum.
Þegar litið er á landakort sést svo vel, hve þetta virðist liggja beint við, til dæmis varðandi gang klukkunnar sem tryggir eins heppilegan gang klukkunnar og hugsast getur.
Hitt hefur reynst taka furðu langan tíma að átta sig á helstu kostum Tenerife sem sumarlands Íslendingsins þegar það nýtist hvað best.
Gran Canaria hélt þessum sessi merkilega lengi og það án þess að landinn háttaði sig á að eyjan býður upp á fleira en Ensku ströndina.
![]() |
Tenerife slær í gegn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)