17.12.2015 | 11:57
Sameiginlegir hagsmunir Le Pen og Ríkis íslams.
Villimannlegar aftökur Ríkis íslams og þó einkum birtingar skelfilegra mynda af þeim og afleiðingum ódæðisverkann er ætlað að þjóna þeim tilgangi samtakanna að vekja ógn og skelfingu hjá öllum andstæðingum ISIS.
Með myndbirtingunum er áhrifamáttur vestrænnar fjölmiðlunar og kapphlaup þeirra við að birta sem svæsnast efni "sem selur", virkjað út æsar til þess að svipta vestræn lýðræðisþjóðfélög þeirri friðsæld og öryggi, sem hryðjuverkamennirnir hatast við.
En Ríki íslams virkjar ekki aðeins samkeppni þeirra fjölmiðla sem telja sig græða á birtingu sem svæsnastra mynda.
Marie Le Pen birtir hryllilega mynd af hauslausum manni til framdráttar sínum málstað, sem meðal annars felst í því að skapa almenna andúð á útlendingum og öllum múslimum heimsins.
Að þessu leyti fara hagsmunir hennar og Ríkis íslams saman.
Að sjálfsögðu eiga fjölmiðlar að birta nauðsynleg gögn varðandi málefni allra tíma.
En allir sem starfað hafa við fjölmiðlun vita að takmörk eru fyrir því hve langt eigi að ganga við birtingu viðkvæmasta efnisins.
Og umrædd myndbirting eins og hún hefur verið framkvæmd gengur of langt í miskunnarlausu tillitsleysi sínu og þjónar blóðþyrstum böðlunum mest.
![]() |
Birti myndir af líki Foleys |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
17.12.2015 | 01:58
Spilað með mannslíf.
Þráfaldlega hefur verið þrætt fyrir það að fjársveltið og óróinn vegna kjaramála í heilbrigðiskerfinu hafi kostað mannslíf eða eigi eftir að kosta mannslíf.
En maður þarf ekki annað en að koma dagstund inn á biðstofu í spítala til þess að heyra reynslusögur sjúklinga sem eru alvarleg áminning um óviðunandi ástand.
Erillinn er mikill og því gafst drúgur tími í heimsókn á spítala í morgun til skrafs í alls fjórum biðröðum.
Gamall vinur minn sagði mér frá því hve heppinn hafði verið að drepast ekki fyrr á árinu á meðan hann var látinn bíða hálfan dag í stórhættulegu ástandi eftir því að framkvæmd á honum væri greining sem hefði verið bráðnauðsynlegt að gera strax, en dróst á langinn vegna manneklu.
En þessi töf kostaði hann slæm og óþörf veikindi, sem urðu margfalt langvinnari, erfiðari og dýrari fyrir alla, ekki síst heilbrigðiskerfið sjálft, en ella hefði orðið.
Áður hef ég greint frá því hvernig ég vann í rússneskri rúllettu varðandi hættu á krabbameini fyrr á þessu ári, en vegna óheyrilegs biðlista lengdist hámarks bið eftir greiningu úr 3 vikum upp í 7.
Með því að skoða biðlistatölur blasir við að það voru ekki allir eins heppnir og ég og vinur minn.
Það veldur mér hugarangri og einnig það hvernig reynt er að fela afleiðingar fjársveltisins með hundakúnstum með tölur, sem fengnar eru út með því að nota kolrangar forsendur.
![]() |
Atkvæðagreiðsla stendur enn yfir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
16.12.2015 | 19:41
Sótt að Malala úr báðum áttum öfganna.
Malala Yousafzai er einhver merkasti einstaklingur sem nú er uppi. Barn að aldri reis hún gegn villimannlegri kúgun öfgamúslima og mátti þakka fyrir fýrir að sleppa lifindi frá banatilræði.
En hún þarf ekki aðeins að takast á við þessi illu öfl heldur líka að tala gegn og andæfa harðvítugri hatursumræðu manna eins og Donalds Trumps, sem virðast aðhyllast eins konar alls herjar krossferð gegn öllum múslimum heims eins og þeir leggja sig.
Þar er ekki um að ræða einhverjar þúsundir fólks, heldur eitt þúsund og fimm hundruð milljónir manna, þrefalt fleiri en allir íbúar ESB.
Í fréttum hefur verið sagt frá því að meira en 30 þúsund manns hafi streymt frá Vesturlöndum til Ríkis Íslams.
Malala horfir úr stöðu sinni til beggja átta öfganna og varpar ljósi á ástand, sem kallar á spurningar.
Er kannski það næsta frá Trump að banna öllum Vesturlandabúum að ferðast til landa þar sem múslimar eru í meirihluta?
![]() |
Malala svarar Donald Trump |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.12.2015 | 09:08
Eins og eftir loftárás mánuðum saman, en það virðist ekki nóg.
Það virðist ekki einasta standa til að niðurlægja menntamálaráðherrann okkar á óvenju rætinn hátt og reyna að koma Ríkisútvarpinu ekki aðeins á kné eins og gert hefur verið með einstæðri aðför að því, heldur eigi að rústa því endanlega.
Nánar um þetta eftir 1-2 tíma.
Sæl aftur. Það reyndist taka tvöfalt lengri tíma en áætlað var að "skreppa" í eftirlitsskoðun vegna beinbrots og ljúka þeim leiðangri áður en haldið yrði áfram með þennan pistil.
Fyrr á þessu ári var það líkast því að koma inn í byggingu eftir loftárás að koma inn í Útvarpshúsið við Efstaleiti, svo mjög þurfti að umturna öllum innviðum hússins til þess að minnka rými RUV og flytja inn alls óskylda starfsemi.
Dæmi var um að einn starfsmanna væri fluttur níu sinnum til áður en þessar miklu ráðstafanir voru kláraðar til þess að fullnægja miklum niðurskurðarkröfum sem hafa kostað stórfelldar uppsagnir starfsfólks og sársaukafullar aðgerðir árum saman.
Hafi einhvern tíma blasað við eitt opinbert fyrirtæki og starfsfólk þess hafi gengið nærri sér við að þjóna óbilgjörnum kröfum valdhafa var það á þessu ári.
En þetta virðist ekki vera nóg.
Það virðist ekki vera nóg að útvarpsgjaldið hér á landi sé lægra á hvern mann en hjá 200 sinnum stærri þjóð, Bretum, heldur á að ganga svo hart að RUV að augljóst er að ef farið verður inn í vítahring minnkaðrar þjónustu, sem mun gefa þeim byr undir vængi vilja Ræikisútvarpið feigt, verður þeim óvildarmönnum að ósk sinni sama árið og sá stjórnmálaflokkur, sem gekkst fyrir stofnun og vexti og viðgangi RUV fagnar aldar afmæli sínu.
![]() |
RÚV-frumvarp fast í ríkisstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
16.12.2015 | 01:36
Margbrotnir bardagamenn.
Sumum bardagaíþróttamönnum er hættara við að beinbrjóta sig en öðrum.
Oft er þetta vegna þess að bein þeirra eru einfaldlega ekki nógu sterk, en fyrir kemur að óhappi er um að kenna, og einnig er mikilvægt að hendur og úlnliðir séu nógu vel reifaðir undir boxhönskum.
Rothögg McGregors var beinskeytt og eldsnöggt gagnhögg, sem Jose Aldo hljóp á án þess að sjá það koma.
Slík högg eru oft þau hörðustu allra.
Sumir af bestu boxurum heims áttu í vandræðum með veikbyggðar hendur.
Einn þeirra var Arturo Gatti sem var afar höggþungur. Oscar DeLa Hoya sem barðist við alla þá bestu á ferli sínum, sagði að Gatti hefði verið sá höggþyngsti.
Í einum hinna frægu bardaga sinna við Mickey Ward handarbraut Gatti sig í miðjum bardaga.
Hann lét samt ekki á neinu bera heldur tókst að leyna þessari afleita ástandi sínu nógu lengi til að vinna á stigum.
Þegar Ken Norton vann Muhammad Ali óvænt í fyrsta bardaga þeirra kjálkabrotnað Ali í bardaganum en kláraði hann samt.
Eftir á var deilt um hversu snemma þetta gerðist, en atvikið þótti samt sýna hörku og viljastyrk Alis.
Rocky Marciano nefbrotnaði illa í einum titilbardaga sinna, en beit á jaxlinn og rotaði andstæðinginn.
Jack Johnson rotaði Stanley Ketschel í titibardaga og nokkrar tennur úr Ketschel fundust grafnar inn í hanska Johnsons eftir bardagann.
Svipað gerðist þegar Joe Louis rotaði Paolino Uzcudon í höggi sem hann sagði síðar að hefði verið "the hardest punch I´ve ever trown."
Og þurfti þó nokkuð til.
![]() |
Handarbrotnaði McGregor í rothögginu? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.12.2015 | 19:09
Missagnir á hverju strái.
Björk Guðmundsdóttir er stödd í friðsældinni úti á landi á Íslandi þegar henni er fjarstaddri borið á brýn að borga ekki skatta á Íslandi, hafa talað niðrandi um dreifbýlisfólk á Íslandi í viðtali við Sky sjónvarpsstöðinni með því að segja að stjórnarherrarnir á Íslandi væru sveitalubbar, og nú síðast velta menn sér á blogginu upp úr hugmyndum Róberts Marshalls um hreina utanþingsstjórn og að þar muni ætlunin að Björk láti til sín taka.
Hér eru missagnir á hverju strái.
Björk borgar skatta á Íslandi.
Það sem hún sagði um stjórnarherrana var ranglega þýtt úr ensku.
Robert Marshall lagði til að stjórnarandstaðan beitti sér myndun ríkisstjórnar þar sem hluti ráðherra gæti verið utanþingsfólk.
![]() |
Já ég borga skatta á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
15.12.2015 | 12:21
Minnir á 17. öld í Evrópu.
17. öldin var einhver óróasamasta öld sögunnar í Evrópu og ástandið þar að auki eitt hið flóknasta, enda ríki álfunnar óhemju mörg og flækjustig stjórnmála- og trúarbragðahagsmuna svo hátt.
Flest ríki álfunnar drógust meira og minna inn í styrjaldarátök og ekki fór að greiðast úr þeirri flækju, sem ríkjafjöldinn í Þýskalandi og á Ítalíu olli einn og sér, fyrr en á 19.öld.
Ástandinu, sem verið hefur að myndast í Miðausturlöndum síðan stríð Íraks og Íran hófst á níunda áratug síðustu aldar, svipar um ýmislegt til 17. aldarinnar í Evrópu og getur þessvegna tekið aldir að vinda ofan af því þarna eystra rétt eins og í Evrópu.
Stríð Íraks og Írans var dæmigert fyrir hið flókna ástand á svæðinu og var að mörgu leyti tímamótastyrjöld.
Ef litið var eingöngu á leiðtoga ríkjanna tveggja sýndist þetta vera stríð milli súnní múslima og shíta múslima, en enda þótt Saddam Hussein einræðisherra Íraks væri súnni múslimi, er mikill meirihluti Íraka shíta múslimar.
Sem oftar voru það önnur atriði en trúarleg sem réðu undir niðri mestu um það að þessi styrjöld og fleiri stríðsátök síðan hafa brotist út á svæðinu og munu halda áfram að brjótast út um ófyrirsjánlega framtíð.
Rétt eins og í Evrópu spila stórveldi á ástandið í Miðausturlöndum samræmi við hagsmuni sína með hliðsjón af stöðu sinni og annarra stórvelda á svæðinu.
Öldum saman var það aðalatriði í utanríkismálastefnu Breta að hamla gegn því að nokkurt stórveldi næði yfirburðastöðu á meginlandi Evrópu, og svipaðan leik leika Bandaríkjamenn og Rússar í Miðausturlöndum.
Á meðan Bandaríkjamönnum sýndist hætta á að rísandi veldi harðlínuklerka í Íran gæti náð yfirburðastöðu og "ógnað stöðugleika" á svæðinu, studdu þeir Saddam Hussein í stríðinu gegn Íran.
Þegar Saddam gerðist síðan frekur til fjörsins snerist dæmið snarlega við.
![]() |
Hernaðarbandalag 34 landa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.12.2015 | 01:21
"Tek 50 þúsund fyrir að gera þetta, en..."
Fráleitt er að tala um tímakaup fyrir 13 sekúndna langan bardaga af því tagi sem er aðalbardagi á stóru bardagakvöldi á borð við það sem var í Las Vegas á laugardagskvöld.
Að baki þessum eina bardaga Conors McGregors lágu margra vikna eða jafnvel mánaða samfelldar daglegar æfingar hans og þjálfunarliðs hans og annars aðstoðarfólks, sem líkja má við pyntingar með blóði, svita og tárum.
Auk þess minnir þetta mig á símtal, sem ég varð vitni að fyrir mörgum áratugum, þegar ég var staddur heima hjá einum af allra bestu útsetjurum og tónlistarmönnum þess tíma.
Í símanum var fulltúi kórs sem vildi fá útsetningu á ákveðnu lagi og spurði hvað það myndi kosta.
"250 þúsund krónur" var svarið.
Manneskjunni í símanum svelgdist á við að heyra þetta og spurði hneyksluð:
"Á ég að trúa því að þú takir svona mikið fyrir að gera þetta, 250 þúsund krónur?"
Svarið var snaggaralegt:
"Nei, ég tek 50 þúsund fyrir að gera þetta, - en 200 þúsund þúsund fyrir að geta það."
![]() |
Fékk 150 milljónir króna á sekúndu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.12.2015 | 22:53
Klárað það sem eldinum tókst ekki 1947.
Amtmannsstígsbruninn 1947 er mér enn í fersku minni, en þá mátti ekki miklu muna að hús KFUM og K yrði eldinum að bráð.
Urðu menn því fegnir að þetta merka hús skyldi fá að halda áfram að fóstra einhvert merkasta og mikilvægasta menningarstarf síðustu alda hér á landi.
Ég er í hópi þeirra tugþúsunda sem eignuðust góðar og jafnvel magnaðar minningar úr þessu húsi, bæði frá KFUM-fundunum á æskuárunum og menntaskólaárunum, því að rúmum áratug eftir brunann mikla flutti M.R. hluta af kennslu sinni yfir í húsið og hefur þetta góða hús þjónað menntagyðjunni síðan og fengið heitið Casa Christi.
Vonandi hefur það verið íhugað vel áður en lagt var í það að ljúka því sem eldinum tókst ekki 1947, að það sé ómögulrgt að nota húsið í þágu menntagyðjunnar.
![]() |
Afar ánægjulegur áfangi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2015 | 19:00
Þarf að vanda vel reglur um höfuðhögg.
130 ára saga nútíma hnefaleika hefur gefið gnægð tíma til rannsókna á afleiðingum þeirra meiðsla sem íþróttin hefur í för með sér.
Þar er stór munur á atvinnumanna hnefaleikum, sem eru ekki leyfðir hér á landi, og ólympískum hnefaleikum, sem eru leyfðir á þeim forsendum að neikvæð líkamleg áhrif séu ekki meiri en í flestum öðrum íþróttagreinum.
Til dæmis er uppi umræða um það að banna börnum innan ákveðins aldurs að skalla í knattspyrnu.
Það fer mikið eftir persónulegum líkamseiginleikum og heppni eða óheppni hve vel eða illa atvinnuhnefalekarar fara út úr iðkun sinni.
Margir af bestu hnefaleikurunum hafa náð hárri elli við góða líkamlega og andlega heilsu eins og til dæmis Max Schmeling, sem var oft barinn illa á löngum ferli sem stóð fram að fimmtugu.
Hann varð 99 ára gamall þrátt fyrir öll höfuðhöggin.
Öðru máli gegndi um Floyd Patterson sem á efri árum glímdi við heilabilun sem mátti rekja til of margra og óheppilegra hðfuðhögga á löngum og sviptingasömum ferli.
Þegar sagt er "óheppilegra" högga er einkum átt við þau dómaramistök að stöðva ekki fyrsta bardaga hans við Ingemar Johansson strax þegar Floyd hafði verið sleginn í gólfið og skjögraði svo meðvitundarlítill á fætur, að hann hafði greinilega ekki hugmynd um hvar hann var og sneri bakinu í Ingo þegar hann staulaðist í áttina frá honum.
Ingo sló hann sex sinnum niður eftir þetta.
Í atvinnuhnefaleikum eru sum högg bönnuð, svo sem hnakkahögg og högg með olnboga, en ekki hefur verið mikið fjallað um hvort og þá hvaða högg eru bönnuð í MMA.
Fjöldinn einn segir ekki alla söguna.
Þegar Max Schmeling rotaði Joe Louis 1936 sló hann Louis 51 beint hægri handar högg þangað til hann hafði að lokum lagt Louis.
Í venjulegum atvinnumannabardaga geta höfuðhögg á báða bóga orðið mun fleiri samtals en Gunnar fékk á sig í bardaganum í fyrrinótt.
Talið er að óvejulega mörg hörð höfuðhögg, sem Muhammad Ali stóð af sér í síðustu bardögunum á ferli sínum hafi getað átt þátt í heilabilun sem skóp jarðveginn fyrir Parkinson sjúkdóminn, sem hann fékk.
Þetta verður þó aldrei sannað til fulls.
![]() |
Heilabilun afleiðing höfuðhögga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)