4.2.2016 | 21:15
Eykur orðið "samnemandi" fjölbreytni málsins?
Í skoðanaskiptum um íslenskt mál hér á síðunni hefur það verið ein af röksemdum þeirra, sem vilja sem mest frelsi í töluðu og rituðu máli, að ýmis ný orð, sem málvöndunarmenn fetta fingur út í, "auki fjölbreytni málsins" og séu því til góðs.
Eitt slíkt nýtt orð hefur nú rutt sér svo rækilega til rúms, að það er á góðri leið með að útrýma fjölda eldri orða um sama hugtak, og ekki bara það, heldur að koma i veg fyrir að hægt sé að tala um þetta fyrirbrigði af einhverri nákvæmni ef það getur skýrt málavexti.
Þetta orð er orðið "samnemandi" sem er svo rækilega notað í fjölmiðlum, að það er orðið langt síðan ég hef heyrt notuð eldri orð um þetta hugtak.
Þau þykja greinilega ekki nógu fín, - eru ekki "in."
Samnemandi og samnemendur á við alla, sem eru í sama skóla og sá nemandi, sem í hlut á.
En áður en þetta tískuorð kom til skjalanna var hægt að nota mörg heiti um samnemendur.
1. Skólafélagi.
2. Skólafélagar, ef um fleiri en einn er að ræða.
3. Skólasystkin.
4. Skólabræður, ef um fleiri en einn karl eða dreng er að ræða.
5. Skólabróðir, ef um einn karl er að ræða.
6. Skólasystir, ef um eina konu eða stúlku er að ræða.
7. Skólasystur, ef um fleiri en eina konu eða stúlku er að ræða.
8. Bekkjarsystkin ef um nemendur í sama bekk er að ræða.
9. Bekkjarbróðir, ef um einn karl eða dreng í sama bekk er að ræða.
10. Bekkjarbræður, ef um fleiri en einn karl eða dreng er að ræða.
11. Bekkjarsystir, ef um eina konu eða stúlku er að ræða.
12. Bekkjarsystur, ef um fleiri en eina konu eða stúlku er að ræða.
Nú vinnur fjölmiðlafólk að því hörðum höndum að útrýma öllum þessum orðum og nota orðin samnemandi eða samnemendur í staðinn.
Ég hef heyrt og lesið fréttir þar sem orðið samnemandi er notað aftur og aftur í sömu fréttinni.
Og þetta er gert í nafni aukinnar fjölbreytni.
Áður hefur verið minnst á tískuorðlagið "með þessum eða hinum hætti" sem er á góðri leið með að útrýma orðunum svona, hinsegin, hvernig, þannig.
Sífellt les maður eða hlustar á orðræðu þar sem staglast er á að eitthvað sé með þessum eða hinum hættinum, eða með einum eða öðrum hætti.
Ef amast er við þessum orðalengingum og einsleitni í orðavali er svarið: Það verður að leyfa fjölbreytni í málinu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.2.2016 | 13:40
Að vera eða vera ekki frjálhyggjumaður í Pírötum, það er spurningin.
Fullkomnlega eðlilegar og fyrirsjáanlegar deilur eru komnar upp hjá Pírötum varðandi stefnu þeirra og fylgismanna þeirra og það, hverjir geti verið í flokki þeirra.
Þær snúast um það hvort andstæðurnar frjálshyggja-félagshyggja, öðru nafni markaðshyggja-velferðarhyggja skipti máli fyrir flokk Pírata eða ekki.
Birgitta Jónsdóttir kapteinn Pírata sagðist um daginn vera hætt við að bjóða sig ekki fram í næstu kosningum af ótta við að frjálshyggjumenn yrðu of sterkir í flokknum.
Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður segir í gær að jafnt frjálshyggjumenn og félagshyggjufólk geti verið innan raða flokksmanna og nú segir formaður Frjálshyggjufélagsins óhugsandi að félagar í því geti stutt Pírata.
Að vera eða vera ekki, það er spurningin, sagði Hamlet. Að vera eða vera ekki frjálshyggjumaður í Pírötum, það er spurningin núna.
![]() |
Sögusagnir um yfirtöku frjálshyggjumanna úr lausu lofti gripnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (29)
4.2.2016 | 08:12
Jarðskjálftar í Bárðarbungu ekki lengur fréttnæmir.
Sjá má á korti Veðurstofunnar að jörð skelfur í Bárðarbungu og að tveir skjálftar um og yfir 3 stig hafa komið þar undanfarna tvo daga.
Einnig eru skjálftar á Öskju-Herðubreiðarsvæðinu.
Um hugtakið fréttir eru notuð orðin news og nyheder í málum nágrannaþjóða okkar.
Það verður að vera eitthvað nýtt á ferð til þess að það teljist fréttir.
Þess vegna eru þriggja stiga skjálftar í Bárðarbungu ekki lengur fréttir nema þeim fari að fjölga verulega sem og smærri skjálftum.
![]() |
Jarðskjálftinn fannst í Hafnarfirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.2.2016 | 23:36
Eru þessar tvær staðreyndir ekki nóg?
Stórskemmtilegur og fræðandi þáttur um sykur var í Sjónvarpinu í kvöld. Dýrlegt var að sjá gamlar myndir af talsmönnum tóbaksiðnaðarins á sínum tíma halda því fram af mikilli sannfæringu fyrir framan bandaríska þingið að tóbaksneysla væri ekki ávanabindandi.
Nú er það hins vegar viðurkennt að ekkert fíkniefni er erfiðara að hætta að neyta en nikótín, ekki einu sinni heróin.
Ævinlega grípur viðkomandi stóriðnaður til yfirburða í fjármagni og aðstöðu til þess að verja hagsmuni sína.
Hve margar milljónir mannslífa skyldi vel heppnuð varnar-áróðursherferð tóbaksiðnaðarin hafa kostað?
En tvær staðreyndir blöstu við í þessari heimildarmynd um sykurinn.
1. Róttækasta breyting í sögu mannsins varðandi neyslu, fjórföldun á neyslu sykurs á örfáum áratugum.
2. Fjórföldun á tíðni sykursýki.
Eru þessar tvær staðreyndir ekki nóg? Tvær fjórfaldanir og enn verra framundan?
Jónas Kristjánsson ritstjóri benti á það fyrir mörgum, mörgum árum, að hvítasykur væri lang hættulegasta fíkniefnið.
Vona að hann hafi séð þessa sjónvarpsmynd, sem og Pálmi, sonur hans, en við Pálmi erum báðir sjúklega fíknir í Kók og Prins og erum meðvitaður um það.
![]() |
Biggest Loser bjargaði lífi mínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3.2.2016 | 20:44
Píratar, - flótti frá óhjákvæmilegum viðfangsefnum?
Á síðustu árum hefur orðið vaxandi þungi í þeirri umræðu að þau viðfangsefni stjórnmálanna séu orðin úrelt og óæskileg, sem tengjast hægri - vinstri, markaðs/frjálshyggju annars vegar og velferðar/félagshyggju hins vegar.
Þau stjórnmál séu ekki bara úrelt séu öll stjórnmál orðin úrelt og spillt og í staðinn eigi að koma alveg ný nálgun og fersk, sem sniðgengur hin gömlu og úreltu stjórnmál.
Það eigi sem sagt að vera hægt að hafa áhrif á þjóðfélagið og stjórnun þess án þess að "lenda í pólitík".
Orðin "flokkur" og "flokkapólitík" þykja ljót og bráðnauðsynlegt að útrýma slíkum fyrirbærum og koma með "hreyfingar" og önnur ný orð í staðinn.
Og ef orðið flokkur sé notað sé það kannski verjandi ef í því felst "djók" og húmor eins og í nafninu Besti flokkkurinn.
Ef stefnuskrá einhvers flokks snertir í engu pólitísk viðfangsefni eins og opinberan rekstur og einkarekstur, halda margir, að nú sé búið að leysa öll vandamál og viðfangsefni og að engu skipti hvort menn séu hægri eða vinstrimenn, aðhyllist frjálshyggju eða félagshyggju.
Þess vegna nægir að "aðhyllast grunnstefnu Pírata" og skiptir til dæmis engu hvort menn eru feministar eða ekki.
Nú síðast í kvöld var greint frá því í útvarpsfréttum, að taka þyrfti afstöðu til þess hvort áfram eigi að vera opinber rekstur á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli eða hvort taka eigi þar upp einkarekstur.
Samkvæmt orðum þingmanns Pírata má ætla að það nægi að aðhyllast grunnstefnu Pírata í þessu viðfangsefni, rekstri skíðasvæðisins, og þá muni allt leysast af sjálfu sér, væntanlega án þess að þurfa að taka afstöðu til einkareksturs eða opinbers reksturs. Eða hvað?
Gömlu "óhæfu" stjórnmálaflokkarnir eru stimplaðir sem "einsmálsflokkar", Samfylkingin með aðeins eitt mál, inngöngu í ESB, og Sjálfstæðisflokkurinn fyrir þá sem vilji "græða á daginn og grilla á kvöldin".
Þó eiga báðir þessir flokkar, sem hér eru nefndir sem dæmi, sér stefnuskrár um fjölmörg svið stjórnmála og þjóðlífs.
Og greinir meira að segja á um þau mörg.
Þannig er til dæmis lagst gegn fyrirhugaðri olíuvinnslu í lögsögu Íslands í stefnuskrá Samfó, en ekki í stefnuskrá Sjalla.
Samfylkingin heitir raunar líka "Jafnaðarmannaflokkur Íslands" og í því einu felst krafan um að skilgreina nánar á ýmsum sviðum í hverju stefna flokksins, sem hefur norræna velferðar- og jafnaðarstefnu að fyrirmynd, felst í ýmsum málaflokkum.
Í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins nálgast stefnuskráin, samþykkt á landsfundi, það viðfangsefni hvernig stefnan sem setur einstaklingsfrelsi sem flestra í öndvegi,( með nauðsynlegum takmörkunum þó varðandi það að frelsi eins endar þar sem frelsi annars byrjar ) verði best útfært í samfélagslegu tilliti í hinum ýmsu málaflokkum.
Píratar halda að vísu marga fundi um þessar mundir þar sem farið er yfir hina ýmsu málaflokka, og er vonandi að þar átti fólk sig á því, að líka Píratar eigi á hættu að áhrínsorðin um "einsmálsflokk", sem notað er um flokka, sem sannanlega marka sér stefnu í mörgum málum, geti lent á Pírötum sjálfum nema þeir taki afstöðu í krefjandi álitaefnum og úrlausnarmálum, þar sem mismunandi grunngildi varðandi einstaklinga og samfélag vegast á, þeirra á meðal spurningarnar um vinstri-hægri, frjálshyggju-félagshyggju, einkarekstur-opinber rekstur.
![]() |
Frjálshyggjumenn alltaf verið í Pírötum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
3.2.2016 | 18:57
Hreinn hernaðarlegur ósigur Breta 1976.
Lokasigur Íslendinga í þorskastríðunum 1976 byggðist á því, að vegna heildar hernaðarhagsmuna NATO gátu Bretar ekki beitt fallbyssum herskipa sinna, en hins vegar gátu Íslendingar beitt fallbyssum varðskipanna.
Ef Bretar hefðu getað beitt herskipunum til fulls hefðu þeir unnið hernaðarsigur strax haustið 1958.
En það hefði þýtt það að Íslendingar hefðu gengið úr NATO og þar að auki hefði meginhugsunin að baki NATO, sem hernaðarbandalags gegn utanaðkomandi ógnun, verið gereyðilögð.
Það merkilegasta við úrslit þorskastríðsins 1976 var það að vegna mikils tjóns á bresku freigátunum í árekstrum við íslensk varðskip og íslenska skuttogara, sem voru útbúnir sem varðskip, höfðu Bretar ekki lengur nógu mörg herskip til að halda baráttunni áfram.
Pétur Guðjónsson skrifaði fanta góða blaðagrein þetta vor og fór yfir það hvar bresk herskip væru að störfum á heimshöfunum til að gæta hernaðarhagsmuna sinna og bresku samveldislandanna.
Niðurstaðan var skýr: Of mörg herskip voru dottin út vegna skemmda á Íslandsmiðum, og var freigátan Falmouth eitt magnaðasta dæmið um það eftir áreksturinn við Tý.
Falmouth yrði úr leik út árið og missir þess skips var dropinn sem fyllti mælinn.
Bretar voru í engri stöðu í viðræðunum til að halda fram kröfum sínum.
Niðurstaðan var, svo ótrúlegt sem það virðist, hernaðarlegur sigur Íslands.
![]() |
Töldu kröfur Íslands brandara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.2.2016 | 07:48
Reikna þarf dæmið í heild.
Lækkað verð á olíu á heimsmarkaði hefur reynst grundvöllur þess að hægt hefur verið að hamla eitthvað gegn verðbólgu hér á landi.
Minni eldneytiskostnaður hefur líka hjálpað til við að hækka gengi krónunnar, en það á líka að geta skilað kjarabótum til almenning
Varla er þó hægt að ætlast til að seld vara eða þjónusta fylgi eldsneytislækkun algerlega eftir, því að launakostnaður hefur hækkað með hærri launum.
Mikilvægt er að fylgja því vel eftir að sparnaður vegna eldsneytiskaupa skili sér til neytenda, en ekki er síður mikilvægt að reikna út heildardæmið og taka alla kostnaðarliði seljenda með í reikninginn.
Síðan er umhugsunarvert, að atriði eins og breyting á kjarnorkuáætlun Írana skuli hafa jafn afgerandi áhrif á efnahag og stjórnmál hér við ysta haf og raun ber vitni.
Svo virðist sem lágt olíuverð muni haldast áfram næstu misserin þegar olían frá Íran bætist við oliuframleiðslu á heimsvísu og það geta haft áhrif á næstu Alþingiskosningar ef kjarasamningar halda.
Þess ber þó að gæta að sama lága eldsneytisverðið áfram þýðir að áhrif sífelldrar lækkunar hverfa og þá virðist vöxtur ferðaþjónustunnar verða það eina sem geti viðhaldið auknum kaupmætti hér á landi.
![]() |
Lágt olíuverð skilar sér ekki í verð farmiða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.2.2016 | 00:31
Efndir fylgja enn ekki orðum.
Í hitteðfyrrahaust var haldin ágætis ráðstefna á vegum Verkfræðingafélags Íslands um komandi útskipti á orkugjöfum hvað varðaði rafbíla.
Hástemmdar yfirlýsingar heyrðust hjá forsætisráðherra og forseta Íslands og gefin loforð um átak í þessum efnum, til dæmis varðandi það að setja upp hraðhleðslustöðvar á hringveginum sem gerði það kleyft að aka hann allan án þess að stöðvast vegna orkuþurrðar.
Kaupendur rafbíla eru óánægðir með það að komast ekki einu sinni á milli Reykjavíkur og Akureyrar.
Og þar að auki verður ekki hraðhleðslustöð í Varmahlíð, heldur á Sauðárkróki, svo að rafbílum verður að aka um Þverárfjall 25 kílómetrum lengri leið en öðrum bílum.
Milli Sauðárkróks og Borgarness eru 217 kílómetrar sem er of langt fyrir alla rafbíla nema Tesla, sem er langdýrasti rafbíllinn og raunar svo mikill lúxusbíll, að forsetaembættið ætti að nota slíkan á Suðvesturlandi.
Hvers vegna í ósköpunum er ekki komin hraðhleðslustöð í Hrútafirði á þessum kafla, sem á vantar til að brúa bilið?
Á leiðinni milli Akureyrar og Reykjavíkur eru ellefu bensínstöðvar.
Og síðan heyrir maður íslenska ráðamenn halda fast við það að við Íslendingar verðum olíuþjóð og leggjum okkar skerf til meiri olíuvinnslu og þar með meiri olíunotkunar.
Á meðfylgjandi línuritum sést hitinn á jörðinni frá 1900 á rauðri línu og hitinn á Íslandi á sama tíma.
Bláu hitatölurnar sýna hitann á Íslandi en rauðu setja núll við aldamótin 1900 og síðan þá hefur sá hiti hækkað um meira en heila gráðu.
Þessi línurit segja allt sem segja þarf, til dæmis það, að hitinn á Íslandi, sem er innan við 0,01% af flatarmáli þurrlendis jarðar, sveiflast miklu meira en meðalhitinn á jörðinni.
Af tæknilegum ástæðum fóru línuritin tvisvar inn á síðuna hjá mér, en Emil Hannes Valgeirsson birti þau nýlega á bloggsíðu sinni, skýringarnar við þau eru hans og ég bendi í bloggpistil hans ef menn vilja kynna sér hann nánar.
![]() |
Fráleitt að halda olíuvinnslu áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
2.2.2016 | 18:31
Þetta hefði Sigurður Ben átt að frétta.
Sigurður Benediktsson hét mætur og snjall maður, verkfræðingur að mennt, skemmtilegur flugáhugamaður, sem lést fyrir allmörgum árum.
Hann var mjög virkur og áhugasamur svifflugmaður og komst oft skemmtilega að orði, ekki hvað síst þegar mörg r voru í orðunum sem hann sagði, því að hann var dálítið gormæltur eins og það var kallað.
Frægt varð það atvik þegar Sigurður lenti í vandræðum efst í Mosfellsdal á svifflugu og varð að lenda henni á úfnu landi vestast á Mosfellsheiði, þannig að svifflugan fór að miklu leyti í mask.
Sigurð sakaði ekki og gat sent út af talstöðinni, sem var í lagi þessa orðsendingu, og er stafurinn r skrifaður með stafnum g, það er að segja linu g, svipað og í sögninni að laga:
"Geykjavík flugstjógn. Sigugðug Alfgeð Kgistján tótal kgassaðug á Mosfellsheiði."
Mönnum brá eðlilega við að heyra þetta á bylgjunni, - að vera "tótal krassaður" þýddi nánast eitt, og því kom þetta svar til baka:
"Hvaðan kallar þú eiginlega?"
Við Sigurður bjuggum í nokkur ár í blokkinni að Sólheimum 23.
Einn morgun urðum við samferða að morgni til í lok apríl út úr blokkinni, og þegar við opnuðum útidyrnar blés austan stórhríð upp í nefið á okkur, svo að erfitt var að komast út.
Ég leit á Sigurð og sagði: "Það er varla hægt að una við þetta, að það skuli vera að koma maí, og hríðin stendur beint upp á mann."
Sigurður svaraði um leið: "Vegtu gólegug. Þetta heldug Tygkjunum fgá."
Framsýnn maður, Sigurður, sagði þetta 25 árum áður en flóttamannabylgjan frá Tyrklandi skall á Evrópu.
En það hefði verið gaman ef hann hefði lifað það að frétta af Tyrkjanum, sem tjaldaði á Egilsstöðum í fjögurra stiga frosti og snjó í gærkvöldi og gisti í tjaldinu fram á morgun.
![]() |
Ungur Tyrki tjaldaði í snjónum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2016 | 14:46
Sem betur fer liggur enginn þjóðvegur til Bolungavíkur.
Nafn á tveimur víkum á Vestfjörðum hefjast á "Bolunga..." þ. e. eyðivíkin Bolungavík á Hornströndum og kaupstaðurinn Bolungarvík yst við sunnanvert Ísafjarðardjúp.
Slappleikinn í meðferð Íslendinga á örnefnum gæti hafa valdið miklum vandræðum er Bolungavík væri í byggð og þangað lægi vegur.
Sem betur fer er ekki þannig því að ekki er nóg með að margir stafi ekki nafnið Bolungarvík rétt, heldur segja þar á ofan "á Bolungarvík", svona rétt eins og Bolvíkingar myndu segja að einhver ætti heima á Reykjavík.
Svipað er að segja um Neskaupstað.
![]() |
Af Laugarvegi og Laugavegi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)