Hómópatía gerði víst gagn og nálarstungur gera það !

Fréttin um að hómópatía og "lyfjalausar lækninar" geri ekki gagn felur í sér ansi mikla alfhæfingu og getur skapað misskilning. Mér rennur blóðið til skyldunnar gagnvart bæði hómópatíu og þeirri "lyfjalausu lækningu" sem felst í nálastungum.

Runólfur Bjarnason í Hólmi, langafi minn, var hómópati eða smáskammtalæknir, hafði til þess tilskilin leyfi og bjargaði áreiðanlega lífi og heilsu fjölda fólks í Vestur-Skaftafellssýslu meðan hans naut við.

Um 1890 var sýslan vegalaus með óbrúuð stórfljót, ekkert rafmagn og engin samgöngutæki nema hestinn. Fólkið bjó í torfbæjum og lífsbaráttan var afar hörð í landi, sem ekki gat brauðfætt vaxandi þjóð.

Þegar á bjátaði var ekki hægt að hringja á hjúkrunarfræðing eða lækni eða þyrlu Landhelgisgæslunnar eða fara á heilsugæslustöð. Köllun Runólfs Bjarnasonar átti hug hans allan, allur tími hans fór í lækningar og lækningaferðalög og Rannveig Bjarnadóttir, langamma mín varð að sjá um búskapinn að mestu.

Börnin voru átta og sulturinn svo mikill að þau Runólfur og Rannveig neyddust til að skipta á Ólöfu, ömmu minni, þá sjo ára, og kú. Langafi fór með ömmu austur í Öræfi og kýr var leidd til baka.

Líknandi starf hómópatans varð að hafa forgang og lækningar hans voru ekki lyfjalausar, heldur bjó hann sjálfur til ýmis lyf og fékk eitt þeirra meira að segja alþjóðlega viðurkenningu. 

Enginn skyldi því tala niður til lækninga hómópatanna þótt nú sé öldin önnur.

Kátlegt er þegar sagt er um hinar "lyfjalausu" lækningar sem felast í nálastungum, að það séu "óhefðbundnar lækningar" og því að litlu hafandi, en að vestrænar lækningaaðferðir, sem eru kannski sumar ekki nema nokkurra ára eða áratuga gamlar séu nefndar "hefðbundnar lækningar."

Ég get vitnað um það af reynslu sjálfs mín, að nálastungulækningar geta gert gagn í tilfellum þar sem ekkert annað dugði.  

Fyrir um áratug fóru frammámenn í íslenskum lækningum í heimsókn til Kína og þegar heim kom far sagt frá því að hugsanlega væri hægt að nýta kínverska þekkingu.

Mætti hugsa sér að einhverjir íslenskir læknar færu á stutt námskeið þangað.

Nálastungulæknirinn, sem bjargað hefur mér þurfti hins vegar fram undir þetta að sæta því að litið væri niður á margra ára háskólanám hans í Bandríkjunum á sviði nálastungulækninga sem óhefðbundnar skottulækningar sem "gerðu ekki gagn".

Það sýnir mikið yfirlæti og dramb þegar sagt er að lækningaaðferðir, sem eiga þúsunda ára reynslu að baki séu "óhefðbundnar lækningar" og hindurvitni á sama tíma og nokkurra ára eða áratuga gamlar lækningaaðferðir á Vesturlöndum séu "hefðbundnar lækningar" og það eina sem geri gagn.      


mbl.is Hómópatía geri ekki gagn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrgðarleysi og firring stjórnmálamanna.

Ábyrgðarleysi íslenskra stjórnmálamanna er greypt í framkomu þeirra árum og áratugum saman.

Nýjasta dæmið er hvernig þeir haga sér gagnvart starfsemi flugskóla og einkaflugs á Reykjavíkurflugvelli.

Á næsta ári á að reka fólk út úr Fluggörðum á Reykjavíkurflugvelli með 85 flugvélar og starfsemi á annað hundrað manna hið minnsta og gera byggingarnar upptækar án nokkurra bóta og án þess að hafa haft neitt samráð við viðkomandi, þrátt fyrir allan fagurgalann um "samræðustjórnmál" og "þátttöku almennnings í stjórnvaldsákvörðunum.  

Á sínum tíma reistu þeir, sem þarna starfa, byggingarnar á þessum reit (sem er minni en bílastæðin ein við Háskólann) fyrir eigið fé, lögðu akbrautir og yfirborð, skólplagnir og raflagnir á eigin kostnað með fullu samþykki þáverandi yfirvalda.

Þessu á öllu að eyða og reka fólkið burt bótalaust.

Að vísu er vitnað í undirritað samkomulag borgar og ríkis um að starfseminni verði fundinn annar staður, en ekkert er farið að gera í því og verður að sjálfsögðu ekki mögulegt, enda engir peningar til og eru ekki í sjónmáli.

Enginn annar staður hefur fundist með þeirri nauðsynlegu aðstöðu sem bóklegt og verklegt flugnám þarf, enda virðist stjórnmálamönnum ekki varða neitt um það og tala jafnvel um að allt nám í flugi verði flutt til útlanda.

Ætli næsta skref í þéttingu byggðar verði ekki að flytja starfsemi ökuskóla,  Sjómannaskólans og Vélskólans til útlanda, rífa niður húsin sem þetta hefur verið í, og reisa íbúðabyggðir í staðinn ?


mbl.is Enginn vill einka- og kennsluflugið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stökurnar stökkva fram.

Ummæli og stökur stökkva fram hjá ýmsum á þessum vordegi þegar fréttir af árangri 70 milljarða króna framlags vegna skuldavandamála heimilanna og af leyninefnd sem forsætisráðherra hefur skipað án vitneskju þingsins.

Framsóknarþingmenn hafa bent á það að stóri pakkinn opni ýmsa möguleika, til dæmis á því að konur geti nú látið lita á sér hárið, ýmist sjálfar eða á hárgreiðslustofum.

Sigurður Bogi Sævarsson segir í fésbókarathugasemd að eftirfarandi rím hafi dottið af vörum:

 

Konan litar lokkinn,

lipran, fagran, hrokkinn.

Stígur hún á stokkinn

og styður Framsóknarflokkinn.

 

Þegar ég sá þetta hraut eitthvað í þessa veru af vörum:

 

Gjafaféð notast af miklum móði,

í margs konar líkn rennur þessi gróði.

Þær setjast í leiðslu

í sælli hárgreiðslu

fyrir 70 milljarða´úr ríkissjóði.

 

Björn Valur Gíslason spyr hneykslaður í frétt á DV yfir skipun leynilegs starfshóps án vitundar Alþingis, hvort mönnum sé orðið andskotans sama. Í athugasemd við fréttina segist viðkomandi vera hissa.  

Þá koma upp í hugann þrjú rímorð í limru eftir Gísla Rúnar Jónsson af allt öðru tilefni fyrir mörgum árum og þar með sprettur fram þessi limra:

 

Nefndirnar fá mikinn frama

í feluleik, sem býr til drama, -   

á Alþingi dissa

en enginn er hissa

því öllum er andskotans sama.

 

 


mbl.is Fyrir fólk sem litar sjálft á sér hárið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fráleit, dýrkeypt og skaðleg tíska.

Allar gagnrýnisraddir karlmanna vegna kvenfatatískunnar verða hjáróma þegar kostnaður vegna hennar er borinn saman við bílatískuna, sem ég vil kalla nafninu "karlmannatíska í stáli". Land_Rover_Freelander_front_20080521[1]

Bílatískan er oft sérlega heimskuleg, dýrkeypt og jafnvel skaðleg.

Eitt dæmi þess er sú árátta að gera æ erfiðara fyrir bílstjórana að sjá út úr bílunum, svo að jafnvel sést nánast ekkert aftur úr bílnum.

Þetta er orðið svo mikil plága, að það er jafnvel farið að verða erfitt að sjá fram úr minnstu bílunum eins og þeim sem meðfylgjandi mynd er af. Kia_Picanto_(front_quarter)[1]

Engin skynsamleg skýring finnst á þessari tísku, enda er hún aðeins sveifla í eina átt eftir að tískan hafði árum saman verið sú að stækka gluggana, lækka vélarhlífarnar og bæta útsýnið.

Ég á einn bíl frá þessum tíma, árgerð 1988,  sem sýnir þetta vel, sjá mynd hér fyrir neðan og mynd af bíl sömu gerðar, árgerð 2000.  Daihatsu Cuore 00

Fyrsta grófa dæmið, sem ég sá um þetta var upphaflega gerðin af Land Rover Freelander.

Sá bíll var með alveg sértaklega hárri og kantaðri vélarhlíf, sem virtist eiga að gefa til kynna hvað þetta væri töff og karlmannlegt torfærutröll með svona hernaðarlegt útlit vegna þess hve aflmikil og stór vélin þyrfti mikið rými.

En þegar vélarhúsið var opnað, kom í ljós svo mikið óþarfa autt rými fyrir ofan vélina, að auðvelt hefði verið að koma þar fyrir varahjólbarða, jafnvel tveimur hjólbörðum.

Síðan hefur þetta bara versnað og nú er höfuðið bitið af skömminni með því að fara að pranga inn á bínotendur sérstökum myndavélum, svo að eitthvað sjáist fram fyrir bílinn. Daihatsu Cuore ´88


mbl.is Horft á veginn í gegnum vélarhlífina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sóknarfæri og orðspor.

Hlutur Íslendinga í því að nýta vistvæna orku í þróunarlöndunum felur bæði í sér sóknarfæri fyrir okkur og færir okkur gott orðspor. Í fátækum og vanþróuðum löndum fela tiltölulega litlir hlutir í sér byltingu í kjörum fólksins, sem þarna býr, og einnig er þetta þáttur í að sporna gegn of hröðum og miklum breytingum á lofthjúpi jarðar.

Þrjú atriði verður samt að hafa í huga:

1. Segja verður sannleikann um það ef þessar jarðvarmavirkjanir fela í sér rányrkju eins og víðast er hér á landi og helst að forðast svo ágenga nýtingu.

Það á að vera hægt með góðri yfirsýn og gætni í nýtingunni að gera hana sjálfbæra ef á heildina er litið, en því miður skortir mikið á að þetta sé gert hér á landi. Þegar ég spurði um þetta atriði á ráðstefnu Isor í haust var mér svarað út í hött.

2.  Í öðru lagi ættum við að hafa í huga að í löndum eins og Kenía og Eþíópíu verða yfirleitt margfalt minni óafturkræf neikvæð umhverfisspjöll af virkjunum en á hinum eldvirka hluta Íslands, sem er eitt af helstu náttúruundrum veraldar.

3.  Í þriðja lagi er það ósiðlegt af okkur að selja okkar orku á svo lágu gjafverði til erlendra fyrirtækja, að við séum að keppa við örfátækar þjóðir og taka í raun frá þeim þá nýju lífsbjörg sem falist getur í nýtingu nýrrar lífsbjargar í löndum þeirra.


mbl.is Virkja í Kenía fyrir 12 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vafasamt að nota orðið gettó.

Það er vafasamt að nota orðið "gettó" um Oddeyrina á Akureyri eða þau hverfi í bæjarsamfélögum Íslands sem þykja hafa neikvæða ímynd á sér.

Til þess er munurinn á þessum hverfum og raunverulegum gettóum í erlendum borgum einfaldlega allt of mikill hvað varðar raunverulega örbirgð og neyð, sem ríkir í alvöru gettóum erlendis.

Og varla getur Oddeyrin náð þeim stimpli sem braggahverfin í Reykjavík, eins og Kamp Knox, Múlakampur, Laugarneskampur og Höfðaborgin fengu á sig á sínum tíma.

Ég á að minnsta kosti erfitt með að ímynda mér það.


mbl.is Eyrin er gettó Akureyrar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumt finnst og sumt finnst ekki.

Sumarið 1916 týndi Jónatan Líndal á Holtastöðum í Langadal, hreppsstjóri Engihlíðarhrepps, forláta vasaúri í hulstri uppi í fjallinu fyrir ofan bæinn.

Liðu nú 35 ár en þá gekk hann fyrir hreina tilviljun fram á úrið þar sem það lá í laut, að mig minnir.

Hann opnaði hulstrið og trekkti úrið upp og viti menn: Það gekk eins og ekkert hefði í skorist. Varð úr þessu blaðafrétt.  

1964 var ég á leið frá Akureyri til Reykjavíkur við fjórða mann á NSU-Prinz 4 í sérlega góðu sumarveðri, sól og hita. Þá var malarvegur alla leiðina.

Þegar komið var í Hrútafjörð fór að draga af krafti vélarinnar og var bíllinn stöðvaður við Þóroddsstaði til að gæta að ástæðunni.

Kom í ljós að svo mikið ryk hafði sogast inn í lofthreinsarann að hann hann var stíflaður, fylltur af þéttum köggli sem var blanda af mold, möl og oliu.

Þessir bílar voru með vélina að aftan og loftflæðið afar óheppilegt við svona aðstæður.

Olíuhreinsarinn var þannig, að loftið lék um liggjandi olíu svo að rykið festist í henni, en það var svo mikið að hreinsarinn fylltist og stíflaðist.

Ég mokaði út úr hreinsaranum, hellti olíu í staðinn í hann, en var þá orðinn svo skítugur á höndunum, að ég þvoði þær með bensínblönduðum tvisti á túninu við veginn og reyndi að nudda höndunum við hátt grasið sem þarna var.

Þegar ég kom inn í bílinn varð ég þess var að giftingarhringurinn minn hafði óvart runnið af fingri mínu, og gat ég ekki með nokkru móti fundið hann í þessu háa grasi. 

Ég átti ekki aftur leið þarna um fyrr en sumarið eftir, en þóttist muna nákvæmlega hvar hringurinn lægi og leitaði að honum, en árangurslaust.

Ég gerði það einu sinni enn á ferð þarna um, en sá að þetta var of vonlítið til að það gæti gengið upp. 

Enn í dag er það svo, að þegar ég á leið þarna framhjá verður mér hugsað til hringsins góða.

Nokkrum árum síðar týndi ég lykli af TF-FRÚ á bílferðalagi sjónvarpsmanna um norðanvert Snæfellsnes og áttaði mig á því eftir bílberðina að hann hefði dottið í gegnum gat á buxnavasa. 

Vini mínum á Gufuskálum tókst að tengja framhjá og við hófum flugferðina suður.

Þá mundi eftir því hvar ég hefði fyrst farið út úr bílnum í bílferðinni fyrr um daginn, en það var á veginum frá Hellissandi sem þá lá á ská upp í Ólfafsvikurenni, og datt þá í hug að sjá hvort það gæti glampað á hann í björtu sólskininu.

Það gekk upp, - þegar ég flaug yfir veginn sá ég glampa á hann og ég lenti flugvélinni rétt hjá og hljóp að staðnum. Þá komu þar aðvífandi ökumenn og spurðu með andköfum hvort ég hefði nauðlent.

"Nei" svaraði ég, "en ég týndi lykli á ferð hér um norðanvert nesið fyrr í dag og datt í hug að leita að honum úr lofti! Og sjáið þið bara, hér liggur hann!" sagði ég um leið og ég gekk að lyklinum og tók hann upp.

Ég gleymi seint undrunarsvipnum á fólkinu sem átti greinilega erfitt með að trúa þessu, þótt það væri dagsatt.  

En svona er þetta: Sumt finnst og sumt finnst ekki.


mbl.is Hringurinn fannst 6 árum seinna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flug er ekki "hátækni"?

Svo virðist sem í fæðingarborg minni sé að komast til æ meiri áhrifa fólk, sem hefur einkennilega andúð á flugi sem samgöngumáta og atvinnugrein.

Á nýlegum fundi stjórnmálamanna með þeim, sem starfa í svonefndum Fluggörðum við Reykjavíkurflugvöll kom í ljós, að sumir þeirra héldu að ekkert flugnám færi fram í Reykjavík og að slíkt færi fram og ætti helst að fara fram erlendis.

Hundruð fólks vinnur samt við þetta en litið er á flugið og flugfólk sem undirmálsfólk og flugið sem óæskilega starfsemi.

Talað er um "hátækni" af ýmsum toga á hástemmdan hátt og undir það eru háskólagreinar eins og húmanisk fræði felld, en litið er niður á flugið eins og eitthvað óæskilegt fitl skítugra flugvirkja við véladrasl.

Flugið má ein allra samgöngugreina búa við þessa fórdóma í höfuðborg landsins, sem að sjálfsögðu á að vera miðstöð allrar samgöngustarfseminnar, sem borgin skapaðist í kringum.

Þeir, sem nú bjóða sig fram sem "þjónar almennings" mega ekki heyra það nefnt að yfir 70% borgarbúa vilja hafa flugvöllinn þar sem hann er núna, en auðvitað að sníða hann sem best að annarri byggð.

Flugvöllurinn er 4 kílómetra frá þungamiðju íbúðabyggðar höfuðborgarsvæðisins og fimm kílómetra frá stærstu krossgötum landsins og því nákvæmlega á besta stað hvað það snertir, að ekki sé talað um veðurfarslega þáttinn.

Leitun er að borg, þar sem aðalflugbraut vallarins stefnir í báðar áttir að óbyggðum svæðum eins og austur-vesturbrautin gerir, annars vegar yfir sjó, og hins vegar yfir autt svæði í Fossvogsdal.

Með lengingu þessarar brautar leysast flest þau "vandamál" sem menn setja fyrir sig vegna flugumferðar en myndu aukast með færslu upp á Hólmsheiði.

170 kílómetra lenging ferðaleiðar fram og til baka miill Reykjavíkur og landsbyggðarinnar með færslu innanlandsflugsins til Keflavíkur yrði fyrsta og langstærsta samgönguspor aftur á bak í sögu þjóðarinnar.


mbl.is Segir framgöngu borgarinnar harða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjarðarheiðin vegur þungt.

Flutningur afgreiðslu Norrænu frá Seyðisfirði til Eskifjarðar getur haft áhrif langt út fyrir þessa tvo staði.

Það er drjúgur munur á því hvort hinn erlendi ferðamaður er staddur innst í Reyðarfirði þegar hann ákveður, hvort hann ætlar suður með Austfjörðum eða hvort hann er staddur á Egilsstöðum.

Vegna beinna tengsla sinna við Seyðisfjörð hafa Egilsstaðir sem helsta miðstöð samgangna, verslunar og þjónustu notið þess að  öll umferðin, sem kemur úr Norrænu, fer þar í gegn.

Ef Norræna leggst að á Eskifirði, mun einhver hluti umferðarinnar ekki fara í gegnum Egilsstaði, heldur halda áfram suður um til Hornafjarðar, einkum ef veðrið er betra þar en á norðanverðu landinu. 

Umferð ferðamanna mun aukast um Suðurfirðina ef Norræna leggst að á Eskifirði, vegna þess að eins og nú er, aka margir um Öxi eða Breiðdalsheiði á hringferð um landið og fara framhjá leiðinni um Stöðvarfjörð, Fáskrúðsfjörð og Fjarðabyggð.

Það er skiljanlegt að Smyril Line vilji færa sig frá Seyðisfirði til Eskifjarðar. Tvennt kemur til: Annars vegar talsvert styttri siglingarleið Norrænu og hins vegar öryggisleysið sem fylgir veginum yfir Fjarðarheiði.

Síðustu árin hefur hún verið sérstaklega leiðinleg og það vegur þungt.  

Af kynnum mínum við landshlutana í meira en hálfa öld hef ég því miður hvergi fundið fyrir eins djúpum ríg á milli byggða og á Austurlandi.

Þetta er þeim mun dapurlegra vegna þess hve Austfirðingar eru gott og skemmtilegt fólk sem býr í fallegu og fjölbreytilegu landslagi.

Ég hygg að ekkert hafi verið eins mikill dragbítur fyrir Austurland og þetta gríðarlega skæklatog. Og nú bætist þetta við. Það kann að fara svo að þingmenn kjördæmisins eigi enn einu sinni eftir að biðja Guð að hjálpa sér.    


mbl.is Norræna vill sigla til Eskifjarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Skuggi" fjarri góðu gamni eða öflug afturganga ?

Hver er hvar, hvar er hver og hver er hver? gæti verið titill á tengdri frétt á mbl. sem kemur upp í hugann varðandi dularfullan feril og útlit bíls, sem ég hef átt.FRÚ og Eagle

Hann kom við sögu þegar ég skrapp austur á Selfoss síðdegis í þrennum erindagerðum. Það er koma koma vor, farfuglar af öllu tagi að fara á kreik og ég ákvað að sinna einum þeirra, TF-FRÚ og taka tvö önnur verkefni með. 

Til að koma FRÚnni undan yfirvofandi verkfalli hjá Isavia, enda hvort eð er kominn tími til að flugvélin fari á þær slóðir, sem hún hefur verið á undanfarin þrjú ár. Suzuki Samurai

Í leiðinni lá beint við að liðka og dytta að bílnum, sem er "viðhald" FRÚarnnar á vellinum, AMC Eagle fornbíll árgerð 1981, sem FRÚin er bundin við öðru megin.

Í þriðja lagi fór ég að kanna, hvort "Skuggi", svartur Suzuki Samurai árgerð 1986, sem ég hef átt síðan 2002, væri enn á sama stað á Selfossi og hann hefur alltaf verið á síðustu þrjú árin sem ég hef komið að honum þar sem hann hefur legið óökufær og einhver búinn að hirða af honum öll hjólin.

Ég var forvitinn um ástand hans og verustað, vegna þess að hann hefur verið sakaður um að hafa valdið það hörðum árekstri á Sæbraut klukkan þrjú síðasta föstudag, að kalla varð lögreglu til.Samurai 7.4.14

Næsti bloggpistill á undan þessum greinir einmitt nánar frá því og af því að útilokað er að ég hafi verið á Sæbrautinni á þessum tíma er lágmark að maður reyni að hafa eftirlit með því hvað Skuggi er að gera af sér, að því er virðist upp á eigin spýtur.  

Vegna þess að enginn hefur ekið Skugga nema ég síðan ég keypti hann, lék mér forvitni á því, hvort hann hefði getað verið að valda usla í bæjarferð til Reykjavíkur fyrir helgina.

En ekki virtist Skuggi líklegur að sjá til slíkra stórræða, þar sem hann lá fram á lappir sínar á Selfossi nú síðdegis.Samurai.7.4.14.

Auk hjólanna hafa brettakantarnir vinstra megin verið numdir af bílnum, allt lauslegt verið hreinsað framan af honum, ljós og grill o.fl., og hoppað ofan á þakinu á honum.

Þar með hefur hann færst í áttina að því að líkjast hinni mögnuðu Kristínu í samnefndri hryllingssögu, sem síðar var kvikmynduð og hefur Skuggi aldrei verið skuggalegri en hann er nú orðinn.

Það fór ekki vel fyrir þeim sem reyndu að tjónka við Kristínu í bílahryllingsmyndinni en engu að síður hyggst ég nú vinda bráðan bug að því að sækja Skugga, koma honum til Reykjavíkur og fara að stumra yfir honum á sæmilegum stað þar sem tryggt er að hann stundi ekki neitt skuggalegt athæfi.

Ef einhver hefur áhuga á og þorir að hjálpa mér við þetta verkefni væri ágætt að fá að vita um það.

Meðan staðið verður við þann vitnaframburð að Skuggi, bláleitur að vísu, hafi sprelllitandi valdið usla í umferðinni í Reykjavík síðastliðinn föstudag, er full þörf á því að reyna að hafa hemil á þessum draugalátum í bílkvikindinu.  

 


mbl.is Frétti af samþykkt við skýrslutöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband