Alltof oft draumur sem verður að martröð.

Allt frá ritun boðorðanna tíu til okkar dags hefur mannkynið dreymt um hið fullkomna þjóðfélag, Útópíu.

Á síðustu öld tókust á hugmyndakerfi stórvelda í mannskæðustu styrjöldum sögunnar og enn í dag er það svo þar sem svona hugmyndir skutu rótum, að draumurinn verður alltof oft að martröð.

Í hádegisfréttum var greint frá því  að afleiðingum áfengisdrykkju í Rússlandi megi líkja við drepsótt, svo mjög lækka afleiðingar hennar meðalaldur þjóðarinnar, einkum karlmanna.

Í draumaríki Sovétsins áttu allir að geta lagt skerf sinn til þjóðfélagsins eftir getu og uppskorið eftir þörfum. Allir vita hvernig þetta fór, draumaríki "alræðis öreiganna" snerist upp í andhverfu sína, grimmilega kúgun og ófrelsi.

Roosevelt Bandaríkjaforseti setti heiminum öllum markmið um fjórfrelsið, frelsi  til skoðana, tjáningar og trúarbragða og frelsi frá ótta og skorti.

Ameríska drauminum um að öllum myndi vegna best í þjóðfélagi óskerts frelsis til athafna er sífellt ógnað af vaxandi njósnum ríkisvaldsins, vaxandi misrétti þar sem örfáir eiga og njóta yfirgengilegra mikilla fjármuna, en ótrúlega stór hluti landsmanna lepur dauðann úr skel.

Í þessu landi frelsisins sitja fleiri í fangelsum en dæmi eru um annars staðar og samt eru glæpamenn þar umsvifamiklir svo af ber og trúin á mátt byssunnar í sókn og vörn hvergi meiri.

 


mbl.is Ameríski draumurinn varð að martröð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þurfti ekki auglýsingu til að éta 50 þúsund stk. -2 tonn !

Prins póló hafði þá sérstöðu áratugum saman að það þurfti að auglýsa það hér á landi. Lagið, sem Maggi Óla söng svo eftirminnilega með Sumargleðinni var ekki hugsað sem auglýsing, - þess þurfti ekki.

Það er illmögulegt að útskýra fyrir útlendingum af hverju kók og prins hefur verið þjóðarréttur Íslendinga síðan 1955.

Til þess þarf að rekja vöruskiptaverslun okkar við Breta og kommúnistaríkin þegar Kalda stríðið stóð sem hæst og við vorum með varnarlið á Keflavíkurflugvelli en ókum bílum okkar á rússnesku bensíni og eitt aðal hneykslismálið var sá kvittur að í leynileiðslu hafi bandaríska varnarliðið fengið rússneskt bensín!

Þetta gerðist vegna deilna okkar við Breta út af útfærslu landhelginnar okkar.  

Ég hef áður greint frá þeirri niðurstöðu eigin rannsóknar að frá 1955 með þeirri niðurstöðu að ég hafi innbyrt þúsund Prins póló á ári að meðaltali, eða minnst 50 þúsund stykki alls, sem hafi vegið tíu tonn samtals ef hvert stykki hefur að meðaltali verið 200 grömm !

Fékk reyndar athugasemd um að talan væri skökk, líklega fimm sinnum of há en samt eru þetta tvö tonn af Prins póló sem er álíka mikið og eitt stykki Range Rover.

Þetta súkkulaðikex með Cola-drykk flokka ég sem fíkniefni þess sem ekkert annað fíkniefni hefur. Kók og prins saman innihalda koffein, hvítasykur og fitu í nægum mæli til þess, að því fylgja fráhvarfseinkenni að hætta neyslunni.

Nú hef ég hætt Prins póló neyslunni af því að kexið er meira en 30% fita plús sykur, en fæ mér eitt stykki um hverja helgi og hlakka alla vikuna til að halda þá nautnarhátíð !

Ástæðan var líka sú að samanlögð súkkulaðineysla var alltof mikil hjá mér, alls konar súkkulaðistykki, og dökkar Góu súkkulaðirúsínur hafa verið viðloðandi síðustu 15 árin til að mýkja hægðirnar.

Þær eru eina súkkulaðið sem ég ét síðustu árin og fer varlega í það.


mbl.is Herferð um ást á Prins póló
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Anatómía lagadeildar ?

Vegna þess hve langt er síðan ég var í háskólanámi hef ég ekki fylgst með því hvort sömu "síurnar" eru notaðar þar og fyrir hálfri öld til  að skilja sauðina frá höfrunum.

Í lagadeildinni féllu menn helst á almennu lögfræðinni eða kröfuréttinum þegar ég var þar, og sitjandi yfir bókinni um kröfuréttinn ákvað ég fallegan vordag einn að þetta yrðu ekki örlög mín, stóð upp í lestraríbúðinni á Aragötunni frá opinni bókinn, gekk út og hef ekki sést þar síðan.

Eftirlætisgreinarnar mínar voru stjórskipunarréttur og stjórnarfarsréttur enda hefði ég verið í stjórnmálafræði ef sú grein hefði verið kennd við skólann.

Sumir orðuðu það svo að ákveðnar greinar í skólanum væru sérstaklega notaðar til að fella nemendur, og þegar Haukur Heiðar Ingólfsson undirleikari minn var í læknadeild nokkrum árum síðar virtist anatómían eða líkamspartafræðin gegna því hlutverki með öllum sínum aragrúa af latneskum heitum sem þurfti að leggja á minnið.

Hitt var ljóst að mikilvægt væri að læknar yrðu að kunna vel að rata um völundarhús líkamans og kunna skil á örnefnum hans.

Þriðji bekkur, busabekkurinn í Menntaskólanum var notaður sem aðalsían í þeim skóla og sumir töldu að þessi sía væri höfð svona erfið til þess að spara peninga og halda stúdentafjöldanum í skefjum, eða rétt um 100 útskrifuðum á ári.

Í mínu tilfelli fyrir 50 árum var það mitt eigið val að halla mér alfarið að leikhúsunum, skemmtikraftsstandinu og gerð skemmtiefnis og dægurlagatexta og hljómplatna auk þess sem ég þurfti að sjá fyrir sjö manna fjölskyldu.

Frásögn Huldu Hvannar Kristinsdóttur sýnir annars konar aðstæður, þar sem kerfið er erfitt við að eiga, mun erfiðara í mörgum tilfellum en var á mínum námsárum svo einkennilegt sem það kann að hljóma.  

 

 


mbl.is Að falla er að deyja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Munurinn á þýlyndi og gestrisni.

Á þessu ári verða 25 ár síðan skriðdrekum og skotvopnum var beitt gegn mótmælendum á Torgi hins himneska friðar í Peking. Peking.Mótmæli 1989

Fræg er ljósmyndin af kínverska mótmælandanum, sem stendur einn fyrir framan fjóra stóra skriðdreka og stöðvar þá í bili áður en lokið er við að valta endanlega yfir andófsfólkið og murka það niður með hervaldi.

Kínversk yfirvöld eru nú 25 árum síðar og raunar allar götur frá 1949, eða í 65 ár, einræðisstjórn sem lemur niður allt andóf með þeim mannréttindabrotum og hervaldi sem til þarf.

Kínverjar eru hins vegar annað stærsta efnahagsveldi heims og í veröld alþjóðasamskipta verður einfaldlega að fara með æðruleysisbænina, að okkur sé gefinn kraftur, vilji og hugrekki til að breyta því sem við getum breytt, lifa með því sem við getum ekki breytt og að okkur sé gefið vit til að skilja þarna á milli.

Þegar höfð eru venjuleg samskipti við Kínverja á viðskiptasviði, menningarsviði eða öðrum sviðum, verður að viðhafa almennar samskiptavenjur og hófsamlega og skynsamlega gestrisni, þegar um er að ræða gesti, sem hingað koma frá þessu fjölmennasta ríki veraldar.

Þessu var hins vegar ekki til að dreifa þegar leiðtogi Alþýðulýðveldisins Kína kom hingað í heimsókn 2002.

Ákveðið var að Íslendingar færu að meintum vilja mannréttindabrotastjórnarinnar í Kína með því að taka við forsvarsmanni hennar sem gesti, en meina hins vegar friðsömu andófsfólki kínversku, sem Falun Gong fólkið var sannarlega, að koma til landsins.

Með þessu sýndum við alræðisstjórninni í Kína óþarft þýlyndi undir yfirskini gestrisni.

Merkilegt er að sjá, 12 árum síðar, því haldið fram hér á blogginu að í því felist "dómgreindarskortur gagnvart kínverskum sértrúarsöfnuði" að vilja bæta fyrir óréttlæti gagnvart þeim árið 2002.

Ef leggja á þann mælikverða á þá, sem koma hingað til lands, að ef við samþykkjum ekki heimsmynd þeirra í einu og öllu, skuli þeir verða sviptir ferðafrelsi og komið fram við þá í sama anda og kúgunarstjórnin í landi þeirra gerir,  er illa komið fyrir þjóð, sem telur sig vera merkisbera skoðanfrelsis.

 


mbl.is Biðji Falun Gong-iðkendur afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Kill your darlings!"

Það er ekkert einsdæmi að leikarar séu "klipptir út" úr kvikmyndum, eins og það er kallað. Í allri kvikmyndasögunni finnast dæmi um slíkt, meira að segja hér á landi.

Þótt búið sé að taka upp öll atriðin í kvikmyndahandritinu er eftir að klippa myndina saman og þá getur komið að því að vegna heildayfirbragðs myndarinnar og framvindu hennar, samfelluna og tempóið í henni, sé talið nauðsynlegt að stytta sum atriðin eða jafnvel sleppa þeim alveg.

Kvikmyndahandrit er nefnilega ekki það sama og fullskrifuð bók, sem á að fara í prentun. Kvikmyndahandrit og fyrirliggjandi upptekið efni eru ígildi uppkasts að bók og þetta þekkja allir kvikmyndagerðarmenn, leikhúsfólk, rithöfunar og útgefendur.

Um þetta gilda nokkur slagorð svo sem: "Kill your darlings!", "ruslafatan er besti vinur listamannsins" og "áhorfandinn/lesandinn veit ekkert um það, hverju var hent og saknar þess því ekki."

Charlie Chaplin var þekktur fyrir vandfýsni og fullkomnunaráráttu og skipaði svo fyrir að öllum "out takes" skyldi hent eða brennt.

Þessu var ekki hlýtt og fyrir bragðið hægt að gera um þetta magnaða heimildarmynd.

Þar tróndi á toppnum frábært sjö mínútna snilldaratriði sem átti að vera í "Borgarljósunum."

Að mínum dómi var þetta atriði, sem átti að brenna, einhver mesta snilld meistarans, þar sem flækingurinn sér hvar örlítill spýtukubbur fellur af kerru niður á kjallaragluggarist á gangstétt.

Flækingurinn byrjar að reyna að fjarlægja kubbinn með staf sínum og við tekur óborganlegt sjö mínútna langt atriði þar sem einfaldleiki nauða ómerkilegs smáatviks úr daglega lífinu er spólað upp í hæstu hæðir snilldarlegs skops.

Þekkt er að góðir yfirlesarar og prófarkalesarar hafa komið tugum og hundruðum blaðsíðna úr handritum rithöfunda fyrir kattarnef.

Þetta gerði til dæmis Guðmundur Andri Thorsson, lesari síðustu bókar minnar, "Manga með svartan vanga, - sagan öll", af sinni alkunnu smekkvísi og kunnáttu, reyndar ekki nema örfáum blaðsíðum, og ég var honum afar þakklátur fyrir þetta, - bókin í heild varð betri og ég hafði fyrirfram sagt við hann að þessa kynni að verða þörf og að betur sæu augu en auga.

Þegar ég var einn af leikurum í litlium aukahlutverkum í kvikmyndinni "79 af stöðinni" var tveimur tökudögum að mig minir eytt í að taka upp atriði inni á leigubílastöðinni.

Þegar myndin var klippt var þetta skorið hressilega niður og voru sumir þeirra, sem kallaðir voru til í þessi atriði, ekki ánægðir með það. En fyrir flæðið og framvinduna í myndinni var þetta nauðsynlegt og allir fengu aukaleikararnir greitt fyrir vinnuframlag sitt.

Stundum gera menn mistök þegar verið er að stytta verk. Ég minnist sjónvarpsmynda, þar sem reynt var að stytta löng myndskeið til að þjappa heildarmyndinni saman en hefði átt að gera það öðru vísi.

Í myndinni Eyðibyggð var upphaflega 50 sekúndna myndskeið þar sem flogið er á Super Cub yfir skipsflak undir Straumnesfjalli og síðan klifrað á fullu upp hlíðina, og þegar komið er upp á brún fjallsins blasa skyndilega og óvænt við auðar rústir ratsjárstöðvar Bandaríkjamanna. Ég ákvað að klippa þetta skot niður að mestu en hefði átt að sanka þessum sekúndum til syttingar að mér annars staðar og leyfa þessu flotta myndskeiði að lifa.

Í mynd á Stöð 2 var alllangt hringflug inni í Jökulgili, sem "pródúsent" taldi of langt og var bútað niður.

Eftir á að hyggja var það eyðilegging á upplifuninni, og ég sá eftir á að við hefðum átt að stytta myndina annars staðar.

Versta dæmið sem ég þekki er það, að viðtalið við Guðlaug Friðþórsson eftir einstakt afrek hans var stytt, af því að annars hefði Kastljósið, sem það var í, orðið of langt. Eftir á að hyggja hefði ég aldrei átt að fallast á neina styttingu á viðtalinu, svo einstakt var það sem Guðlaugur sagði frá.  


mbl.is Ólafur Darri klipptur út?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vökunni haldið.

Það var hressandi að vera niður við Alþingishúsið fyrr í kvöld í vetrarsvalanum og hitta mörg hundruð áhugafólks um vörslu og vernd náttúruverðmæta hálendisis veifandi grænum fánum.  Fundur. Hálendið

Landvernd stóð að þessum fundi sem er liður í átaki um að vernda íslenska hálendið.

Þarna var hægt að horfa á stórar myndir af hálendinu, sem varpað var á vegg, taka lagið með Svavari Knúti, hlusta á stutt ávarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar framkvæmdastjóra Landverndar. Fundur, hálendið 2

Meðal fundargesta voru þingmenn sem hafði verið boðið að koma út til að skoða myndasýninguna og hvattir til að kynna sér öll þau víðtæku áform um mannvirki á hálendinu, vegi, háspennulínur, stíflur, miðlunarlón, jarðvarmavirkjanir og vatnsaflsvirkjanir sem munu gjörbreyta hálendinu og eyða töfrum þess ef af þeim verður.

Ég spjallaði þarna drykklanga stund á málefnalegum og vinsamlegum nótum við Framsóknarþingmann utan af landi, sem kom hreinlega af fjöllum varðandi þær virkjanahugmyndir í kjördæmi hans, sem tengdust einni af myndunum sem varpað var upp.

Fundurinn var tákn um nauðsyn þess að vökunni sé haldið í þessum málum á öllum tímum ársins.


Eins og menn dreymi um gamla ástandið.

Jón hjólreiðamaður á Akureyri fór með mál sitt fyrir Mannréttindadómstól Evrópu fyrir rúmum  20 árum með þeim afleiðingum að bananalýðveldið Ísland neyddist til að breyta dómstólakerfi sínu gagngert, annars hefðum við haldið áfram að vera aðhlátursefni í réttarfari.

Mál Jóns snerist um það að sami aðili stóð að því að standa Jón að verki, rannsaka  mál hans, fara með það í eigin lögsögu og dæma í því.

Sami aðilinn var "undir og yfir og allt um kring".

Samsvörun vinnubragða yfirvalda í Gálgahraunsmálinu við þetta mál er athyglisverð. Það er eins og menn dreymi um að endurvekja gamla ástandið, sem hér var við líði.   


mbl.is Sá skikkjuklæddi „undir, yfir og allt um kring“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áunnið sinnuleysi.

Hegðun þúsunda fólks í umferðinni er ekki hluti af lélegri umferðarmenningu heldur almennri ómenningu sem hefur verið landlæg hér á landi. Bílastæði 2

Hegðunin á bílastæðum er bara lítið dæmi og því hið besta mál að Hulda Dagmar Magnúsdóttir hafi rannsakað hana vísindalega.

Ef ég hefði vitað af þessari rannsókn hennar hefði getað sent henni marga tugi mynda sem ég hef tekið af því hvernig fólk leggur bílum sínum og líka af fleiri atriðum í umferðinni.

Vegna svipaðs áhuga á þessu og Hulda hef ég tekið þessar myndir að gamni mínu og rætt við fjölmarga bílstjóra á þessum bílum, til dæmis þá sem misnota stæði fatlaðra. Bílastæði

Þetta er svo áhugavert vegna þess að í heild bitnar þessi hegðun á öllum, í heild tapa allir á þessu rugli.

Ég græði oft á því, vegna þess að ég er yfirleitt á ferð á svo smáum bílum, að ég kemst inn í stæði, sem "smákóngarnir" héldu að þeir gætu fært út á næsta stæði.

Annað dæmi um áunnið sinnuleysi, sem bitnar alltaf á öllum vegna þess að enginn græðir á því: Íslendingur bíður við beygjuljós á gatnamótum og er einn af tveimur eða þremur fremstu í röðinni. Þegar græna ljósið kviknar liggur honum sko ekkert á. Hann veit að af því að hann er svona framarlega kemst hann yfir á grænu. Þegar fyrstu beygjuljósin voru sett upp á Íslandi sagði evrópski sérfræðingurinn að sjö bílar ættu að komast yfir á hverju grænu ljósi.

Reynslan varð sú að aðeins tveir komust að meðaltali yfir! Erlendi sérfræðingurinn hristi höfuðið og átti ekki orð. Það varð að lengja öll grænu beygjuljósin á gatnamótunum sem kostaði það að afköst beygjuakreinarinnar og gatnamótanna í heild skertust stórlega.

Síðan bölvuðu allir ökumenn umferðarteppum sem komu og voru algerlega sköpunarverk þeirra sjálfra.

Áfram með íslenska ökumanninn, sem liggur ekkert á, þegar hann er meðal allra fremstu á beygjuljósum og tók sér sinn tíma í þeirri stöðu á beygjuljósinu.

Á næstu beygjuljósum lendir hann hins vegar aftar í röðinni og horfir á þá fremstu hegða sér eins og bavíanar, rétt eins og hann sjálfur gerði rétt á undan. Þá leggst þessi vinur okkar á flautuna og bölvar hinum í sand og ösku, þarf kannski að bíða þrisvar í röð við ljósið í stað þess að komast yfir í kjölfar þeirra fremstu.

Eða að hann svindlar og fer yfir á rauðu, sem er furðu algengt og skapar hættu og setur umferðina í uppnám.

Þegar litið er á svona heildarmynd er hún svo arfa heimskuleg að það vekur áleitnar spurningar.

Svarið getur varla legið í almennri heimsku heldur í siðferðisbresti, sem byggist á almennri uppgjöf og sinnuleysi gagnvart ástandinu, einmitt þeim sömu atriðum og hlóðu eldivið fyrir Hrunið á sínum tíma og fjölmörgu öðru, sem gengur á afturfótunum hjá okkur.  

Fyrirbærið mætti kalla "áunna fáfræði og sinnuleysi" í stíl við áunna sykursýki.


mbl.is Breytast í smákónga á stórum bílastæðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málfarslögreglumál?

Omega sýndi víst erlent myndefni í sex daga í fyrra án þess að birta íslenskt tal eða texta með því, og fjölmiðlanefnd, sem er nokkurs konar deild í málfarslögreglunni, hefur snuprað kristniboðssjónavarpsstöðina fyrir þetta:  

 

Omega kastar ýmsu á glæ

og ekki er stöðin mjög hraust

ef of mikið gert er á þeim bæ

sem er alveg þýðingarlaust.

 

Misgörðin komst á svo magnað stig 

að málfarslöggan varð æst

og án þess að þýða það signdi hún sig

og sagði: Djísús Kræst!

 


mbl.is Omega braut gegn lögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar svitinn lak niður eftir veggjunum á Sumargleðinni.

Dauðaslys á harðkjarnatónleikum í Sviss minnir á all svakalegt atvik, sem varð á einni af skemmtunum Sumargleðinnar á Hvoli á níunda áratugnum.

Sú samkoma var sú ferlegasta, sem ég hef upplifað á ferlinum og er þó af nógu að taka. Enginn veit hve margir komu á þessa skemmtun, því að þrýstingur mannfjöldans á vegginn í fordyrinu, þar sem fólk keypti sér miða um lúgu, olli því að veggurinn hrundi og múgurinn streymdi inn.

Úti var rigning og á skemmtuninni og ballinu var svo mikill uppgufun af blautum fatnaði og svita frá samkomugestum að það var eins og að vera í gufubaði þar inni.

Ég gerði margar tilraunir til að taka myndir af þessari rófustöppu af manneskjum, en þótt ég stryki yfir linsuna og smellti samstundis af, var þoka á öllum myndunum og þær ónýtar.

Þarna gerðist margt, sem ég hef aldrei upplifað fyrr né síðar. Úðinn í salnum var svo mikill að svitinn af samkomugestum streymdi í taumum niður eftir veggjunum !

Einn kófdrukkinn samkomugestur klifraði upp á sviðið, stóð þar, sneri baki í salinn, veifaði bokku, og lét sig síðan falla þráðbeinan eins og símastaur afturábak niður í mannþröngina.

Hún var svo þétt að maðurinn féll aðeins niður á höfuð og herðar ballgesta og síðan barst hann láréttur ofan á og eftir höfðum og herðum samkomugesa eins og trjádrumbur, veifandi bokkunni allan tímann !

Þegar hann var búinn að gera þetta nokkrum sinnum voru gestir orðnir þreyttir á þessu og tóku sig saman þegar hann gerði eina tilraunina enn og urðu samtaka beint fyrir frama hann um að víkja sér örlítið til hliðar um leið og hann kom niður.

Í þetta skiptið féll hann alla leið niður á gólf, flaskan brotnaði og hann fékk mikið hnakkahögg. Ég fölnaði þegar ég sá þetta álengdar, því að hann var, auk afleiðinga höfuðhöggsins, í hættu á að vera troðinn undir og skera sig á glerbrotunum.

En allt blessaðist þetta, hann stóð upp um síðari en reyndi þetta ekki aftur.

Á þessu balli gerðist það inni inann við sviðsbrúnina á milli hljóðfæraleikaranna, að par var þar lárétt í hörku látum, sem hugsanlega hafa skilað því að tala Íslendinga hefur hækkað um einn 9 mánuðum siðar. Enginn tók eftir þessu, slík var kösin, ekki aðeins í salnum, heldur lá fólk afvelta á sviðsbrúninni í haugum.

Þegar litið er til atviksins í Sviss sést að þarna hefði getað farið illa.

 


mbl.is Lést þar sem enginn greip hann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband