Færsluflokkur: Bloggar
25.4.2014 | 20:38
Hvers vegna var hann kallaður Jói dús ?
Í gegnum tíðina hefur maður heyrt og séð margt á endalausum þvælingi um landið. Eitt af þvi var það, að um miðja síðustu öld hlaut ungur maður að nafni Jóhannes viðurnefnið "dús" vegna þess, að sem barn gekk hann óvenju lengi með snuð í munninum og var ákaflega erfitt að venja hann af því.
Snuð var ein af þessum uppfinningum manna til að búa til eftirlíkingu af náttúrulegum hlutum, en á öld tækniframfara var allt slíkt talið af hinu góða.
Því fyrr sem barnið var tekið af brjósti, gat farið að drekka gerilsneydda kúamjólk og fengið sér snuð, því betra. Og því fyrr sem hægt var að taka snuðið af barninu, því betra, þótt beita yrði það hörku.
Nú kemur í ljós í þessu eins og mörgu öðru að gamla lagið í takt við náttúruna best, ekki hið nýja og tæknilega.
Og athyglisvert er hve margar af vísindalegum uppgötvunum okkar tíma fela það í sér, að manninum líði þrátt fyrir allt best þegar hann er í sem svipuðustu umhverfi og þróaði hæfileika og hraustleika formæðra okkar og forfeðra langt aftur í aldir, en ekki í veröld tilbúnings og eftirlíkinga.
Þegar lesið er um þá uppgötvun að best sé að börn séu sem lengst á brjósti, jafnvel allt að fjögurra ára aldri, leitar hugurinn til Jóa dús.
Kannski var það eðlisávísun hans sem barns sem knúði hann til þess eftir að hafa verið sviptur móðurmjólkinni að leita eins lengi og hann gat til þess sem best hafði reynst um aldir í stað hinnar stöðluðu og geldu aðferðar sem þá var lenska.
Hann gat hins vegar ekki sótt til hins upprunalega heldur varð að láta sér snuðið nægja eins lengi og hann fékk að komast upp með það.
Eðlisávísun Jóa dús hafði sennilega rétt fyrir sér en ekki tæknifíkn hinna fullorðnu.
![]() |
Hrósa ætti konum fyrir brjóstagjöf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.4.2014 | 13:35
Minnismerki um olíuöldina.
Fyrirhugaður kílómetra hár turn í Sádi-Arabíu verður táknrænt minnismerki á hárréttum stað um öldina, sem við lifum á og mun fá heitið olíuöldin þegar fram líða stundir.
Í línuritum um orkunotkun heimsins og notkun olíunnar frá því að hún kom til sögunnar þar til að hún verður uppurin, er línan sem táknar orkunotkunina svipuð í laginu og turninn mikli.
Sádi-Arabía og fólkið sem þar býr verður einnig táknrænt fyrir skammsýni og græðgi núlidandi jarðarbúa, þar sem lykilaðstaða á olíumarkaði hefur skapað jarðveg fyrir stjórnendur sem geta komist upp með nánast hvað sem þeim sýnist í mannréttindabrotum og forneskju auk bruðls og munaðar, en halda þegnunum niðri með því dæla olíuauðnum hæfilega mikið út á meðal þeirra.
Það er raunar gamalkunnug stefna, sem rómversku keisararnir beittu undir heitinu "brauð og leikir". Hér heima kallast það að gefa þeim sem ferðinni ráða færi á "að græða á daginn og grilla á kvöldin".
Sádi-Arabar hafa verið slungnir við að koma sér í mjúkinn hjá mesta herveldi heims og staða þeirra er svo sterk, að þeir áttu ef til vill einna stærstan utanaðkomandi þátt í því að fella Sovétríkin á níunda áratugnum með því að auka framboð á olíu hæfilega mikið til að verðlækkun á heimsmarkaði bitnaði á gjaldeyristekjum Sovétríkjanna.
![]() |
Kílómetrahár turn í Sádi-Arabíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
25.4.2014 | 11:07
Er bílskúrinn jafn "óæskilegt" fyrirbæri og bíllinn ?
Hið ágæta mál þétting byggðar, sem auðvelt er að sinna á nokkrum svæðum í kringum þungamiðju íbúabyggðar höfuðborgarsvæðisins, sem er austast í Fossvogi, er að taka á sig sérkennilegar myndir.
Ég ætlaði að stinga niður penna um daginn varðandi þá starfsemi sem fer fram á Reykjavíkurflugvelli og snertir þúsundir manna. Meðal annars í Fluggörðum, sem er nokkurs konar bílskýlahverfi grasrótarflugsins, flugnáms og flugstarfsemi.
Ég ætlaði að minnast á það í hálfkæringi að bílskúrar landsmanna tækju mikið rými og að þess vegna gæti mönnum dottið í hug að útrýma þeim og reisa íbúðabyggðir í staðinn.
Ekki óraði mig fyrir því að svona hugmyndir væru í raun að komast til framkvæmda og allra á vegum fólks, sem margt hefur reynslu af því að ýmislegt fleira fer fram í bílskúrum en að þeir séu einföld geymsla fyrir bíla.
Hve margir tónlistarmenn hafa til dæmis komið undir sig fótunum og hafið feril sinn í svonefndum "bílskúrshljómsveitum"?
Hefur verið gerð könnun á menningarhlutverki bílskúra landsins?
Hve margir hafa ekki verið að dunda sér við alls kyns nytsamleg hugðarefni í bílskúrum?
Hjá fjölmennum fjölskyldum eins og var hér um árið hjá mér, var aldrei bíll í bílskúrnum hjá okkur, því að hann var nauðsynleg geymsla og staður til að sinna hugðarefnum okkar.
Eitt barna minna sem er með stóra fjölskyldu, var að flytja í nýtt húsnæði og bíllinn þeirra verður ekki inni í bílskúrnum því að skúrinn er strax orðin svipaður bílskúrnum, sem þessi dóttir mín kynntist þegar hún var ung.
Bílskúr annarrar dóttur minnar er vinnustaður tengdasonar míns, og það er hreint menningarefni sem streymir þaðan út, ef menn vilja endilega skipta vinnu fólks í "æðri" og "óæðri" starfsemi.
Fyrst hálfkæringur minn er að verða að veruleika vestur í bæ get ég bætt öðrum hálfkæringi við:
Til að þétta byggð verði sett lög, sem banna fólki að taka undir sig meira rými í íbúð en til dæmis 30 fermetra á mann.
Þetta myndi sjálfkrafa þétta byggð meira á örskömmum tíma en nokkur önnur hugsanleg aðgerð.
Og þessi hálfkæringur minn verður kannski að byrja að verða að veruleika áður en árið er liðið? Hver veit?
Bílskúrarnir í Vesturbænum eru lítið nær þungamiðju íbúðabyggðar höfuðborgarsvæðisins en golfvellirnir tveir, sem taka jafnmikið rými og flugvöllurinn.
Verður það næsta verkefni að reisa byggð á golfvöllunum? Aldrei að vita, - eða hvað?
![]() |
Ráðist á rótgróið hverfi Vesturbæjar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
25.4.2014 | 01:18
Danskir Íslandsvinir.
Í sjálfstæðisbaráttu okkar fyrr á tíð var það hluti af því að blása mönnum baráttuanda í hug að láta ýmislegt flakka í hita leiksins, sem hallaði mjög á Dani. Alhæfingar af slíku tagi geta verið varasamar.
Þannig var það danskur maður, Rasmus Kristján Rask, sem öðrum fremur stóð að því að bjarga íslenskri tungu frá því að fara hallloka fyrir dönsku eða öðrum útlendum málum.
Þótt Rask hefði frumkvæði að þessu var ekki ónýtt fyrir hann að fá Fjölnismenn og Jón Sigurðsson með í baráttusveitina, og var með ólíkindum hvað Jónas Hallgrímsson afkastaði í nýyrðasmíði og snilldartökum á móðurmálinu sem jók veg þess mjög.
Breskur maður gekkst fyrir því að íslenska hundakyninu yrði bjargað frá útrýmingu.
Danskir Íslandsvinir áttu mjög stóran þátt í því að Danir féllust á að íslensku handritin yrðu flutt til Íslands, en sá gerningur á sér enga hliðstæðu í samskiptum þjóða, þvi að bæði Danir og Íslendingar töldu handritin vera mestu gersemar sínar.
Og líklega er það einsdæmi að "herraþjóð" eða nýlenduveldi haldi helstu sjálfstæðishetju ígildi nýlendu uppi fjárhagslega, en Jón Sigurðsson starfaði í Kaupmannahöfn fyrir danska ríkið, og var reyndar ómetanlegur fyrir danska og norræna menningu vegna þekkingar sinnar á því sviði.
Þegar rýnt er aftur í aldir ófrelsis íslensku þjóðarinnar sést að á þeim öldum gat engin örþjóð á borð við okkur verið sjálfstætt ríki, - einvaldskonungar eða valdamiklir aðalsmenn réðu Evrópu.
Spurningin er einungis sú, hvaða þjóð í Norður-Evrópu réðu Íslandi, og ef Bretar eða öflug þjóð á meginlandinu önnur en Danir hefðu ráðið yfir okkur, væri áreiðanlega ekki tölu hér íslenska og ekki einu sinni víst að við hefðum öðlast sjálfstæði.
Rannsóknir sýna, að hvergi í Evrópu réði einvaldskonungur eins litlu og á Íslandi, þannig að Danir voru greinilega skásti kosturinn.
Á Íslandi réðu stórbændur og embættismenn í raun öllu sem þeir vildu og áttu meir en 90% allra jarðeigna á Íslandi.
Þeir voru ígildi íslensks aðals með svipuð réttindi og danski aðallinn varðandi frítt nám fyrir syni aðalsmanna í Kaupmannahöfn en hins vegar enga herskyldu íslensku sonanna eins og þeirra dönsku.
Stundum var það hæstiréttur í Kaupmannahöfn sem kom í veg fyrir dómsmorð eða sektardóma sem spillt íslenskt dómskerfi ól af sér.
![]() |
Verðlaun Jóns Sigurðssonar veitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.4.2014 | 14:27
Snilldardagur hjá forfeðrunum.
Val forfeðra okkar á árstíðaskiptum sumars og vetrar í almanakinu, þar sem þessar árstíðir skiptu árinu í tvennt, var hrein snilld miðað við þau gögn sem þeir höfðu í höndunum.
Þeir höfðu engar veðurfarslegar mælingar en voru komnir ótrúlega langt í stjörnufræði og tímatali að öðru leyti, vissu nokkurn veginn upp á dag hvenær væru vetrarsólhvörf og sumarsólstöður og jafndægri á vori og hausti.
En ótækt var að nota jafndægrin sem tímamörk, því að meðalhitinn við jafndægri á hausti er næstum 4 stig, þótt engar mælingar væru fyrir hendi á tíundu öld.
Það stafar af tregðulögmálinu, sem veldur því að lofthitinn fylgir ekki sólarhæðinni heldur er að jafnaði um einn mánuð á eftir. Hlýjustu dagar ársins að meðaltali eru í kringum 20. júlí, heilum mánuði á eftir lengsta og hæsta sólargangi.
Svipað er að segja um fyrsta sumardag og vetrardag, að meðalhitinn hjá báðum er svipaður, eða 3-4 stig, og báðir dagarnir eru mánuði síðar en jafndægur.
Ef einhver íslenskur hátíðisdagur á skilið að hafa forgang í stað þess að gert sé lítið úr honum, er það sumardagurinn fyrsti. Hann er ekki eini slíki hátíðisdagurinn sem vitað er um í heiminum, heldur er tímasetning hans afrek sem vert er að halda á lofti fyrir okkur sem þjóð og vera stolt af.
![]() |
Eina þjóðin sem á þennan dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
24.4.2014 | 11:10
Rétt ákvörðun.
Fyrir viku var það reifað hér á bloggsíðunni undir fyrirsögninni "þekkingar er þörf" að mikil áhætta myndi fylgja því fyrir Guðna Ágústsson ef hann færi í fyrsta sætið á lista Framsóknarmanna í Reykjavík og að mér óaði við þeirri áhættu, Guðna vegna.
Pisttillinn fjallaði um nauðsyn þess að fjölga borgarfulltrúum og fá inn í borgarstjórn fólk, ekki síst ungt fólk, sem hefði góða þekkingu á ýmsum sviðum borgarmálefna, svo sem á skipulagsmálum og umferðarmálum. Tvö nöfn voru nefnd í því sambandi um fólk, sem hefði ekki fengið brautargengi.
Nú er það svo að þekkingin ein á sérsviðum segir ekki allt. Fólk þarf einnig að hafa kjörþokka og samskiptahæfileika og þrátt fyrir að búið sé að koma vissu óorði á stjórnmál, þarf líka þekkingu, reynslu og lagni á því sviði.
Borgarstjórn með hæfilega blöndu af báðum kynjum, aldri, mismunandi reynslu og þekkingu, væri æskileg.
Hugsanlega hefði framboðslisti með reynslubolta í fyrsta sæti og unga og efnilega konu með góða þekkingu á mikilvægu sviði borgarmála reynst Framsóknarflokknum vel, - og raunar hvaða framboði sem er,- ef bæði hefðu komist að í fjölmennari borgarstjórn en nú er.
En eitt hefur gleymst í umræðunni: Í síðustu borgarstjórnarkosningum var brotið blað í Reykjavík, á Akureyri og víðar varðandi það að órói og upplausn í borgar- og bæjarmálefnum kjörtímabilið á undan að viðbættu þætti stjórnmálamanna í Hruninu skapaði vettvang fyrir alveg ný öfl að komst til áhrifa og vald.
Ég geri ráð fyrir að kannanir Framsóknarmanna á hljómgrunni meðal kjósenda fyrir uppstillingu lista með gamlan flokkshest í fyrsta sæti hafi leitt í ljós, að bylgjunnar, sem reis 2010 gæti enn.
Hins vegar hefur Guðna og Framsóknarmönnum tekist eitt með því að gera hugsanlegt framboð Guðna að einu helsta fréttaefni liðinnar viku: Þeir hafa, hvort sem sú auglýsing reynist vel eða ekki, tekist að starta kosningabaráttunni og vekja athygli á sínu fólki og málefnum þess.
Framsóknarmenn eiga enn eftir að spila úr stöðunni, sem komin er upp, og þótt þetta líti í augnablikinu klúðurslega út, nánast eins og örþrifaráð, eru enn meira en fimm vikur til kosninga og það er óralangur tími í pólitík.
![]() |
Guðni gefur ekki kost á sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.4.2014 | 00:51
Birnirnir, Boeing B-52 og Boeing 747, ódrepandi jálkar.
Hún virkar gamalkunnug, myndin af Tupolev 95 sprengjuflugvélinni, sem fylgir frétt um flug slíkra véla rétt utan við lofthelgi Bretlands. Þessir jálkar eru búnir að vera eitt af táknum Kalda stríðsins síðan fyrir hálfri öld.
Allt fram yfir miðja síðustu öld urðu griðarlegar og hraðar framfarir í gerð sprengjuflugvéla. Á tímabili úreltust þær á nokkurra ára fresti.
Þannig héldu Þjóðverjar á árunum 1936-38 að Heinkel He-111, Dornier Do-17 og Junkers Ju-88 væri svo hraðfleygar að þær gætu flogið orrustuflugvélar af sér.
Annað kom í ljós í orrustunni um Bretland sumarið 1940 þegar Supermarine Spitfire lék sér að því að fljúga þýsku sprengjuflugvélarnar uppi og Hurricane skaut raunar niður fleiri vélar heldur en Spitfire skaut niður.
Nauðsynlegt varð fyrir Þjóðverja að senda orrustuflugvélar til að verja sprengjuflugvélar sínar og berjast við Spitfire og Hurricane.
Svipað gerðist, en bara með öfugum formerkjum með sprengjuflugvélar Bandamanna gagnvart orrustuflugvélum Þjóðverja, Messershmitt Me-109 og Focke-Wulf Fw 190.
Gagnstætt því sem margir héldu þegar Bandaríkjamenn sendu B-17 "fljúgandi virkin" í árásarferðir á Þýskaland, að árangurinn væri mikill, lét árangurinn á sér standa allt fram til haustsins 1943, þegar loksins var komin til skjalanna North American P-51 Mustang, fyrsta orrustuvélin sem galt fylgt sprengjuflugvélum alla leið til Berlínar.
Hermt er að Hermann Göring hafi fölnað þegar þessar snilldarflugvélar sáust í fyrsta sinn yfir Berlín og gert sér grein fyrir þeirri ógn sem tilvist þeirra táknaði.
Til eru þeir, sem telja að Mustanginn hafi verið besta orrustuflugvél allra tíma miðað við aðrar samtíðarvélar. Það voru til liprari samtíma orrustuvélar eins og Yak 3 og kraftmeiri flugvélar eins og Thunderbolt, en fjölhæfni P-51 var einstök hvað snerti það hve langfleyg hún var, jafnframt því að vera hraðfleyg og hve miklu minna hreyfilafl og eldsneyti hún þurfti en aðrar vélar, miðað við getu, en þetta gerði rekstur hennar afar hagkvæman.
Þegar þotuöldin gekk í garð vaknaði gamalkunnur draumur um að hanna sprengjuþotur sem gætu flogið svo hátt og hratt að orrustuþotur gætu ekki ógnað þeim.
Bandaríkjamenn hönnuðu átta hreyfla þotuna B-52 og Sovétmenn Tupolev 95, "Björninn", sem var og er reyndar skrúfuþota en flýgur samt næstum því jafn hratt og B-52.
Þegar í ljós kom að bæði Rússar og Bandaríkjamenn áttu auðvelt með að smíða orrustuþotur, sem gætu haft við B-52 og Birninum var leitað að þeirri lausn að smíða enn stærri, öflugri, hraðfleygari og háfleygari sprengjuflugvélar og var Valkyrie þota Bandaríkjamanna á sjöunda áratugnum gott dæmi um slíka hljóðfráa stóra sprengjuþotu.
En í ljós kom að þessar "framtíðarsprengjuþotur" voru alltof dýra. Aftur og aftur var "kynslóðaskiptunum" frestað og smám saman kom upp úr dúrnum, að skást væri að halda endurbættum B-52 og Birninum gangandi áfram, en þróa frekar öflugar og hraðskreiðar orrustuþotur, sem fljótlega urðu hvort eð var blanda af smærri sprengjuþotum og orrustuþotum.
Þess vegna er gömlu jálkarnir enn í notkun 60 árum eftir að þær voru hannaðar og sést ekki enn fyrir endann á þjónustu þeirra. Ævinlega er kynslóðaskiptunum frestað.
Það er einnig athyglisvert að Boeing 747 breiðþotan, skuli enn vera samkeppnishæf í flokki stærstu farþegaþotnanna, nærri hálfri öld eftir að hún kom fyrst fram.
Hún var sannkallað risastökk fram á við þegar hún kom fram og undra vel heppnað risastökk þar að auki.
![]() |
Höfðu afskipti af rússneskum herflugvélum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.4.2014 | 20:02
Arabískur Aston Martin Lagonda ?
Það fer ekki mikið fyrir framleiðslu á þekktum bílum í Arabalöndunum í gegnum tíðina. Á sjöunda áratugnum var framleiddur egypski bíllinn Ramses sem var í raun NSU Prinz 4 með sérsmíðuðu grilli á framendanum sem benti til að innan við það væri vatnskassi og vél.
En þetta "grill" gegndi engu öðru hlutverki en útlitslegu, því að vélin var afturí og loftkæld í þokkabót.
NSU Prinz 4 og Ramses voru einhverjir einföldustu, minnstu og ódýrustu bílarnir á markaðnum, en nú, hálfri öld síðar, virðist olíugróðinn gefa tóninn, ef marka má fyrirhugaða framleiðslu á Lykan Hypersport.
Sumt af því sem á að prýða þennan nýja arabíska bíl minnir á breskan bíl, Aston Martin Lagonda, sem var framleiddur á árunum 1974 til 1990 og átti að veita dýrustu gerðum Rolls Royce og Bentley keppni.
Það fór á annan veg því aðeins 645 bílar voru framleiddir eða um 40 á ári að meðaltali.
Sagt er að mælaborðið á Lykan Hypersport eigi að byggja á heilmyndatækni og svo sannarlega skartaði Aston Martin Lagonda spánnýjustu tækni þess tíma.
Mun meiri peningar fóru í að þróa þessa tækni en bílinn sjálfan, en hún byggðist á mikilli tölvustýringu og því að mælaborðið var allt í þeim stíl, með stafrænum og flóknum mælum.
Mér fannst útlit bílsins flott á sínum tíma, með þetta langa, lága og flata vélarhús fremst sem var með einstaklega lágri, þunnri og breiðri frambrún, eins og sést á myndinni.
Bíllinn var með lægstu fólksbílum á þeim tíma og hliðarmynd hans sérstaklega löng og lág, en samt gátu menn setið í góðum þæginum bæði frammi í og aftur í, einkum í lengri gerð bílsins.
Skemmst er frá því að segja að þetta varð einhver mesti "verkstæðisbíll" allra tíma með stjarnfræðilegri bilanatíðni, einkum á öllu tölvu- og stafræna nýjabruminu sem að sögn var nánast aldrei í lagi.
Nú, þremur til fjórum áratugum síðar hafa virt tímarit valið bílnum hinar verstu "viðurkenningar", meðal annars að vera einn af 50 ljótustu bílum allra tíma og einnig einn af 50 verstu bílum, sem framleiddir hafa verið.
Þarf nokkuð til eins og sést á því að í árshefti Auto motor und sport fyrir árgerðina 2014 eru veittar upplýsingar um 3300 mismunandi gerðir bíla, bara af þeirri árgerð!
Ég tel hægt að finna 50 ljótari bíla en Lagonda en miðað við orðsporið gæti hann verið einn af þeim 50 verstu. Samt væri gaman að eiga einn slíkan og hafa hann á "naumhyggju-bílasafni" sem algera andstæðu við hina bílana.
Þar myndi að sjálfsögðu líka tróna Cadillac 1959 við hlið Lagonda, en Zaphoroshets 645 smábíllinn frá Úkraínu og Garant sendibíllinn frá Austur-Þýskalandi frá sjöunda áratugnum yrðu þarna líka sem verstu bílar sem framleiddir hafa verið
Vegna tæknilegra örðugleika get ég ekki sett myndir inn á bloggið um þessar mundir og set þær þess vegna inn á facebook síðu mína.
![]() |
Kostar 380 milljónir, hljómar eins og gömul drusla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.4.2014 | 11:42
Íslendingar verðfella landið sitt.
Okurverð á hótelum og þjónustu hér á landi, miðað við það sem selt er, segir ekkert til um það, hvers virði landið okkar er eða einstæð náttúruverðmæti þess heldur segir það aðeins sögu af þjóð, sem virðist heltekin af gróðafíkn, - segir okkur hins sögu um endurtekna sókn þjóðarinnar eftir skjótfengnum gróða, sem bjó til bankabóluna miklu og Hrunið en hefur nú færst af fullum þunga yfir í ferðaþjónustuna.
Mannasaur og klósettpappír úti á viðavangi á mörgum ferðamannaslóðum, alger skortur á aðtöðu og þjónustu, eða þá að sé einhver þjónusta í boði, er hún verðlögð upp úr öllu valdi, segir þá sögu, að í okkar huga er efst að ná peningunum strax af ferðamönnunum með öllu tiltækum ráðum, en gefa helst ekkert á móti og hugsa ekkert um afleiðingarnar eða framtíðina.
Á Geysissvæðinu hefur aumingjaskapur hins opinbera gagnvart yfirgangi og græðgi landeigenda skapað þjóðarskömm, sem hefur gert þá Íslandsvini djúpri hryggð, sem ég þekki og hafa sýnt landinu og þjóðinni einna mesta tryggð og vinsemd áratugum saman.
Verði svæðið gert að ríkiseign, eins og tíðkast á sambærilegum stöðum í landi einkaframtaksins, Bandaríkjunum, þar sem vel er fyrir öllu séð, er alveg eins viðbúið að áfram ríki sama kæruleysið og slóðaskapurinn og er svo landlægur hér.
Þegar sumir hinna eldri ferðamanna komu fyrst til landsins, voru þeir svokallaður "bakpokalýður" og illa séðir, af því að það var svo erfitt að plokka af þeim peninga.
Í heimsku okkar héldum við að öllu skipti að bægja slíku fólki frá en áttuðum okkur ekki á því að sumir þeirra hafa síðan komið hingað aftur og aftur, nú komnir í góðar og launaðar stöður, en upplifa þá aðrar og jafnvel enn verri hliðar á okkur sem þjóð heldur en þegar þeir voru fyrirlitnir sem óæskilegur bakpokalýður.
Nú erum við að byrja að fá hegðun okkar í bakið á okkur og jafnvel þótt sagt sé að ekki megi rugla saman Íslandi og Íslendingum er samt byrjað að gera það í erlendum fjölmiðlum.
Þar með verðfellum við verðmæti hinnar einstæðu náttúru landsins og stefnum stærsta útflutningsatvinnuvegi þjóðarinnar í hættu.
![]() |
Ísland klárlega ekki best í heimi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
23.4.2014 | 06:50
Svipað og 18. ágúst, - nema 7 stigum kaldara.
Í dag, síðasta vetrardag, er sólargangur álíka og hann er 18. ágúst. Milli sólarupprásar og sólarlags líða um 16 klukkustundir og sólin kemst upp í 38 gráðu hæð á hádegi.
Samt er enn vetur í dag, en í miðjum ágúst er enn hásumar, því að meðalhitinn þá í Reykjavík er rúmlega 10 stig, hærri en í júní og álíka hár og í júlí.
En meðalhitinn í vetrarlok slefar hins vegar rétt yfir 3 stig.
Hverjar eru þá slæmu fréttirnar varðandi þessar staðreyndir og hverjar góðu fréttirnar?
Slæmu fréttirnar: Meðalhitinn er enn svo lágur að það telst vera vetur.
Góðu fréttirnar: Sólargangurinn gefur okkur álíka tækifæri til að njóta sólar og birtu og um hásumar. Njótum þess og kveðjum veturinn með stæl.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)