16.6.2007 | 22:18
17. JÚNI, - RÍFUM HANN UPP !
Þegar ég átti þess kost að fylgjast með hátíðahöldum á Íslendingadegi Vestur-Íslendinga í Gimli, smábæ í Manitoba fyrir nokkrum árum rann það upp fyrir mér hve léleg frammistaða okkar hér heima er 17.júní. Það sem gerir gæfumuninn er skrúðgangan vestra, þetta stórkostalega þróaða fyrirbrigði í Ameríku sem á enn svo langt í land hér heima. Af hverju veita Gay Pride og Menningarnótt 17. júní harða samkeppni? Af því að við vanrækjum þá stórkostlegu möguleika sem þjóðhátíðardagurinn gefur okkur og þá einkum varðandi skrúðgönguna.
Eini aðilinn sem mér sýnist haf bryddað upp á slíku hér heima 17.júní er Fornbílaklúbbur Íslands. En í Ameríku taka allir þátt. Skrúðganan í Gimli virtist endalaus, bæðí að lengd og fjölbreytni og samt er þetta bara smábær og aðeins eitt þjóðarbrot sem stendur að hátíðarhöldunum.
Hvert einasta félag, fyrirtæki, stofnun, leikhópar, hljómsveitir, - nefnu það, - allir tóku þátt í skrúðgöngunni og höfðu greinilega undirbúið þátttökuna lengi og vandlega.
Meira að segja komu bændurnir og fólkið úr nágrannasveitunum á dráttarvélunum með heyvagna og hvers kyns tæki og tól og tóku þátt í skrúðgöngunni.
Fyrir sumum vögnunum voru hestar og jafnvel uxar og uppi á heyvögnunum voru hljómsveitir sveitamanna, sönghópar, dansarar, allir í skrautlegum búningum þar sem þjóðbúningarnir voru fyrirferðarmiklir.
Sjáið þið fyrir ykkur dráttarvélarnar úr Kjósinni og af Vatnsleysuströnd dragandi vagna með karlakórum, kvennakórum, leikhópum og hljómsveitum úr nágrannasveitafélögunum sem fara syngjandi og spilandi niður Laugaveginn, ekki bara frá Hlemmi, heldur alla leið innan frá gatnamótum Kringlumýrarbrautar.
Lúðrasveitir, harmonikkuhljómsveitir, rímnasöngvarar o. s. frv. Fjölbreytning getur verið ótrúleg.
Jafnframt þessu getum við haldið við öðrum hefðum þessa dags, blómsveigurinn, ræða forsætisráðherra og allt það.
Ég hef tillögu. Sendum nú fulltrúa frá Reykjavík eða frá Sambandi íslenskrar sveitarfélaga, sem dvelst mánuð í Ameríku og kynnir sér á hinum ýmsu hátíðarstöðum hvernig hægt er að rífa upp stemninguna á þjóðhátíðardaginn.
Við þurfum ekkert að skammast okkur fyrir að læra af Ameríkönum um framkvæmdir á skrúðgöngum. Skrúðgöngur eru hvort eð er orðnar að atriði í menningu okkar eins og Gay Pride gangan sýnir ljóslega og auðvitað á skrúðgangan 17. júní að vera lang flottust, því að þjóðhátíðardagurinn á að vera langflottastur.
Til hamingju með daginn !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.6.2007 | 00:24
HJÓNUM STÍAÐ Í SUNDUR Á EINSTÆÐRI SIGURSTUND.
Gríman er uppskeruhátíð leikhúsanna og leikhúsfólksins. Það er stór stund í lífi þessa fólks eftir þrotlaust og fórnfúst starf að fá að njóta þeirrar frábæru uppskeru sem liggur eftir í leikhúsunum eftir veturinn. Þess vegna var það sérkennilegt að standa á sviði í Borgarleikhúsinu i lok leiks á söngleiknum Ást í kvöld að verða vitni að því að Charlotte Böving stæði þar í stað þess að fá að njóta fágætrar sigurstundar með eiginmanni sínum Benedikt Erlingssyni í Íslensku Óperunni, en hann fékk þrenn Grímuverðlaun. Og Ófagra veröld sem Charlotte lék í, fékk þrenn verðlaun!
Og hvers vegna gat Charlotte ekki notið einstæðrar stundar í lífi listamanns í kvöld og hampað með sínum elskaða hvorki meira né minna en fernum verðlaunum og notið þrennra verðlauna með samstarfsfólki sínu í Ófagra veröld? Svona atburður er mjög fágætur og gerist varla nema einu sinni í lífi nokkurs listamanns.
Jú, hún varð að sjálfsögðu að hlíta listamannsskyldu sinni í söngleiknum Ást og mér var tjáð að Sjónvarpið hefði neitað að uppfylla samningsbundið ákvæði um að sjónvarpað yrði frá Grímunni 16. júní eins og ævinlega og í staðinn krafist þess að vikið yrði frá þessu og hátíðin færð fram um eitt kvöld, - annars yrði ekki sýnt frá athöfninni.
Þessi krafa hefði komið svo seint fram að ekki hefði verið hægt að hætta við sýningu á Ást, en á þá sýningu hefði þá verið búið að selja svo marga miðað að ekki hefði verið hægt að færa hana, enda hefur verið uppselt á allar sýningar.
Það er komið kvöld og ég hef því ekki hæft tækifæri til að heyra sjónarmið Sjónvarpsins, en það var ekki aðeins Charlotte sem missti af því að upplifa einstæðri sigurstund í kvöld með manni sínum, heldur tengdust tveir aðrir leikarar í Ást Grímuverðlaununum.
Þau Hanna María Karlsdóttir og Theódór Júlíusson, sem sýnt hafa frábæra frammstöðu í Ást, voru tilnefnd til verðlaunanna , - hún fyrir hlutverk í Degi vonar en Theódór fyrir afburða túlkun sína í hlutverki Tómasar Péturssonar í Ást. Hanna María var rænd þeirri stund að fagna tvennum verðlaunum samstarfsfólks síns í Degi vonar og alls sex tilnefningum.
Í staðinn stóð hún á Nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu og gaf af list sinni.
Já, bæði Theódór og Hanna urðu svo sannarlega að vera fjarri góðu gamni í kvöld og uppfylla í staðinn þá höfuðskyldu leikhússsins að "the show must go on."
Þótt tilnefning leiði ekki til alltaf til verðlauna er stemningin á uppskeruhátíð, þar sem slíkt getur gerst, slík, að mér finnst það lágmarkskrafa að þeir sem tilnefndir eru eigi frí í vinnunni til þess að vera á uppskeruhátíðinni með vinum og samstarfsfólki ef þeir óska þess.
Þetta var síðasta sýningin á Ást í vor, en söngleikurinn verður tekinn sýndur áfram í haust. Ég vil senda samstarfsfólki mínu alúðarþakkir fyrir ógleymanlega samveru og samvinnu í vetur.
Þau Charlotte, Theódór og Hanna María hafa ásamt frábæru starfsfólki í sýningunni gefið mikið af sér að mínum dómi og eiga betra skilið en að þurfa að sætta sig við svona klúður.
Ég vona að betri skýringar gefist á þessu og að hægt verði að koma í veg fyrir að maður horfi aftur upp á atvik af þessu tagi.
Þetta snertir mig persónulega. Í sýningu Leikfélags Reykjavíkur steig ég sem barn mín fyrstu, stærstu og afdrifaríkustu spor í því hlutverki leikarans að flytja skilaboð og í framhaldinu færðist þetta hlutverk inn á önnur svið í Sjónvarpi.
Fyrir þetta eru leikhúsið og sjónvarpið og samstarfsfólkið þar mér næstum eins og ástvinir og þess vegna er það svo dapurlegt að nú skuli hafa orðið þessi árekstur. Elskurnar mínar, - ekki láta þetta gerast aftur.
Á Sjómannadaginn eiga allir sjómenn að eiga frí. Á Grímukvöldinu á allt leikhúsfólk að eiga frí. Punktur.
![]() |
Benedikt Erlingsson var sigurvegari Grímunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)