16.7.2008 | 22:44
Snærið og fiskurinn.
Með lögum skal land byggja en ólögum eyða. "Es muss ordnung sein". Mál Ásmundar minnir um margt á þau lög, sem voru í landinu á sínum tíma og bönnuðu landsmönnum að versla við aðra en danska kaupmenn.
Það er auðvelt að sjá rök Dana fyrir þessum lögum: Svona lög voru alsiða í öðrum löndum og nauðsyn fyrir hverja þjóð að efla eigin verslun og atvinnuvegi innan ríkisheildarinnar.
Verslunarkerfi þessa tíma voru nokkurs konar kvótalög. Dönsku kaupmennirnir höfðu keypt "verslunarkvóta" sinn á Íslandi og með því að Íslendingar versluðu við annarra þjóða menn fóru verðmæti úr landi og verslunarkvótaeigendurnir, dönsku kaupmennirnir, voru rændir hagnaði af nýtingu kvótans, sem þeir höfðu keypt og áttu rétt á að njóta góðs af.
Verslunarlögin áttu að tryggja sem mesta hagkvæmni og öryggi verslunarinnar og hún mátti ekki við því tapi sem fólst í því að versla við annarra þjóða menn en Dani.
Danska ríkið tapaði líka á "leka" á borð við þann að snærishönk væri keypt ólöglega, því að hinn danski kóngur þurfti á öflugri og vel borgandi kaupmannastétt að halda til þess að fá frá þeim tekjur til að halda uppi á Íslandi menntakerfi, kirkjunni, opinberri þjónustu embættismanna og nauðsynlegum siglingum og verslun og lögin áttu að tryggja að Danir nytu af sanngirnisástæðum einir samskipta við þjóðina sem þeir önnuðustu um.
Á okkar tímum hafa menn haft það sem dæmi um það hvílík ólög þetta hafi verið að dæmi voru um það að menn voru látnir sæta hörðum viðurlögum fyrir það eitt að hafa keypt ólöglega snæri af Hollendingum.
En snæriskaupendurnir voru lögbrjótar rétt eins og Ásmundur er talinn vera nú. Ef Danir hefðu notið nútímaflugtækni hefðu þeir hugsanlega getað sent þyrlu út að duggunni þar sem hin ólöglega snærishönk skipti um eigendur, staðið lögbrjótana að verki og gert snærið upptækt þegar til hafnar kom.
Síðan fylgt því eftir fyrir dómstólum þar sem hinn seki hlaut refsingu í samræmi við gildandi lög.
Það er fróðlegt að rifja þetta upp núna þegar maður veltir fyrir sér því hvort ríkjandi fiskveiðistjórnunarkerfi sé réttlátara en kerfið sem gerði forvera okkar að sakamönnum fyrir að kaupa snærishönk eða brýnustu nauðsynjar af útlendingum þegar einokunarkaupmannakerfið brást þeirri skyldu sinni að hafa þær á boðstólum.
Eftir situr áleitin spurning:
Eru kvótalögin lög, sem byggja skal land með....
...eða...
ólög, sem eyða skal landi með?
![]() |
Bátur á ólöglegum veiðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
16.7.2008 | 21:59
Skrímslið í Bolungarvík.
Nú eru Bolvíkingar og gestir þeirra byrjaðir að sjá hvernig hlíðinni fyrir ofan bæinn verður umturnað til þess að búa þar til snjóflóðavörn sem líkja má við skrímsli í stað þess að aðstoða fólkið í þeim tiltölulega fáu húsum, sem töldust vera í snjóflóðahættu, til að flytja annað. Uppkaupa-og flutningalausnin í Bolungarvík hefði orðið óvenju auðveld, því að á fáum stöðum á býðst betra og öruggara byggingarland á flötu landi en þar.
Fyrir rúmum áratug fór ég í fréttaferð til snjóflóðastöðvarinnar í Davos í Sviss, talaði þar við sérfræðinginn sem fenginn var til Íslands eftir snjóflóðið á Seljalandsdal en var bannað að úttala sig um snjóflóðahættu á öðrum svæðum. Ég kom heim úr ferðinni með úttekt á því hvernig hægt væri að leysa snjóflóðamálin á fleiri en einn hátt með því að læra af langri reynslu Svisslendinga.
1. Með snjóflóðavarnir í hlíðunum. Í Sviss var sjaldnast um háa garða að ræða heldur stórar lítt áberandi girðingar eða spjöld ofarlega í fjöllunum sem komu í veg fyrir myndun þykkra snjófleka.
2. Með því að kaupa upp eignir á hættusvæðum og gera íbúum kleift að flytja sig á betri stað.
3. Með því að gera hús snjóflóðaheld með litlum tilkostnaði, svo að snjóflóð færu yfir þau eða klofnuðu um þau þannig að húsin stæðu heil, sama á hverju dyndi. Sjá mátti heilu kirkjurnar með þessu lagi. Þeim íbúum sem vildu vera heima hjá sér í slíkum húsum meðan hættuástand ríkti var gert skylt að hafa hjá sér nægar vistir og aðrar nauðsynjar til dvalar í þeim þar til hættan væri liðin hjá.
Ég get ekki varist þeirri hugsun að versti kosturinn hafi verið valinn í Bolungarvík. Hægt hefði verið að fara blandaða leið úr kostum 2 og 3 í stað þess að velja skrímslis-kostinn.
En ráðamenn þjóðarinnar voru fastir í þessu á sínum tíma og eru líklega enn. Einn þeirra flutti mér þau rök, að ef því fólki, sem ætti hús á hættusvæði, yrði borgað fyrir þau, myndi það vekja öfund hjá öðrum íbúum, sem áfram yrðu í átthagafjötrum verðlausra eigna. Þar af leiðandi yrði um mismunun að ræða, íbúum á hættusvæðunum í vil.
Sem sagt: Betra að allir séu í átthagafjötrum verðlausra eigna og fá í ofanálag ofan við bæinn forljóta og fokdýra umhverfisskemmd heldur en að fara aðra og bærilegri leið.
Svisslendingar hafa ekki látið svona rök ráða og þess vegna sá ég ekki garða- og haugaskrímsli ofan við byggðir þar í landi, - mannvirki sem skapa leiðindi og vandræði með úrrensli og jafnvel skriðuhættu þar sem vörnin sjálf getur orðið að nýrri ógn.
Þannig er það á Siglufirði og Norðfirði, en munurinn á Sigló og Neskaupstað annars vegar og hins vegar Bolungarvík er sá að stærð hættusvæðis, fjöldi húsa og takmarkað bygginarland, gera þeim fyrir norðan og austan erfitt fyrir, en öðru máli gegnir um Bolungarvík.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.7.2008 | 21:31
Óverðskuldað í skugganum.
Bogi Ágústsson nam sagnfræði og fáir eru honum fróðari um seinni heimsstyrjöldina og vopn hennar á landi, láði og í lofti. Stórgóð frétt hans í sjónvarpsfréttum í kvöld um B-17 "fljúgandi virkið" naut góðs af því.
Ég man þá tíma fyrst eftir stríðið þegar ég fékk lítið módel af "fljúgandi virki" í gjöf og lék mér af því með glampa í augum yfir því að hafa eftirmynd af svona frægri flugvél í höndum og heyra frásagnir fullorðna fólksins af henni.
Þessi glýja fylgdi mér síðan í allri umfjöllun og fréttaflutningi þar til fyrir nokkrum vikum að ég fór að lesa mér betur til um hana í tveimur nýjum bókum um sprengjuflugvélar stríðsins.
Þá hrundu allar helstu gömlu klisjurnar:
1. Fljúgandi virkið var best varða og vopnaða flugvél síns tíma. Rangt. B-24 Liberator var fremri henni að þessu leyti.
2. B-17 var hraðskreiðust á sínum tíma og hafði mest flugdrægi. Rangt. Þökk sé nýrra og fullkomnara vænglagi flaug B-24 mun hraðara og lengra með sama sprengjumagn.
3. B-17 var framleidd í fleiri eintökum en aðrar sprengjuflugvélar á þeim tíma og var af þeim sökum mikilvægust. Rangt: Af engri sprengjuflugvél fyrr né síðar hafa verið framleiddar fleiri eintök en af B-24.
Hvers vegna baðar B-17 sig þá í ljóma en B-24 ekki? Jú, B-17 kom aðeins fyrr fram á sjónarsviðið og viðurnefnið "Fljúgandi virki" svínvirkaði. Með árunum skemmdi ekki ætternið fyrir, - ekki ónýtt að vera ættingi B-29, B-52 og Boeing 707, 720, 727, 737, 747, 757 og 767.
Fleiri klisjur:
Spitfire var besta orrustuflugvél stríðsins og átti mestan þátt í sigri Breta í orrustunni um Bretland. Rangt: Messerschmidt 262 var besta orrustuvél stríðsins, og þegar Focke-Wulf FW 190 kom fram 1941 var hún betri en Spitfire á öllum sviðum nema hvað snerti beygjuhring. Rússneska flugvélin Lavochkin La-2 hafði betri flugeiginleika en aðrar orrustuvélar bandamanna í stríðinu. Fleiri óvinaflugvélar voru skotnar niður af Hawker Hurricane í orrustunni um Bretland en af Spitfire.
Af hverju þessi ljómi af Spitfire? Jú, það eru sigurvegararnir sem skrifa söguna og Spitfire var hraðskreiðari og betri orrustuvél en Hurricane. Ljóminn af sigrinum fellur því á Spitfire.
Flugvélar Sovétmanna stóðu öðrum flugvélum að baki í stríðinu: Rangt. Sovétmenn voru að vísu að mestu með úreltan flugflota í blábyrjun stríðsins en ekki þarf að kynna sér þær flugvélar sem komu fram frá og með 1940-41 til að sjá að rússarnir stóðu vesturveldunum ekki að baki. Þegar sumar af þessum vélum komu fyrst fram, svo sem Yak-vélarnar, var þýskum flugmönnum ráðlagt að forðast að lenda í orrustu við þær.
Sovétmenn hefðu ekki getað snúið taflinu við síðustu þrjú stríðsárin með lélegum flugflota. Þannig átti Il-2 Sturmovik stóran þátt í hinum mikilvæga sigri Sovétmanna í Kursk-orrustunni. Fleiri eintök voru framleidd af þeirri vél en nokkurri annarri hernaðarflugvél fyrr eða síðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)