25.10.2018 | 15:50
Enn er allt galopið.
Dæmin um það að skoðanakannanir fari fjarri úrslitum í kosningum eru mörg, enda eru skoðanakannanir aðeins mæling á fylgi á því augnabliki sem þær eru teknar og vika er mjög langur tími í pólitík.
Trump er byrjaður að spila út sínum spilum og á vafalaust fleiri uppi í erminni, sem geta snúið hlutum við á skammri stundu líkt og gerðist í blálok kosningabaráttu hans.
Frægasta dæmið um fallvaltleika skoðanakannana er frá forsetakosningunum 1948, þegar einstaka blöð voru þegar búin að birta þá stórfrétt að Dewey hefði sigrað og Truman forseti tapað.
Rúmri viku fyrir kosningar benti flest til þess að stóraukið fylgi Huberts Humpreys varaforseta Johnsons myndi duga honum til sigurs.
Það var mest að þakka því að búið var að fá fjóra deiluaðila Vietnamdeilunnar til þess að setjast að samningaborði í París.
En Richard Nixon lumaði á mótleik sem fólst í því að hafa símasamband við stjórnarherrana í Saigon og fá þá með gylliboðum til þess að draga sig út úr viðræðunum.
Johnson lét hlera símana á þessum tímum og vissi hvað Nixon var að bralla og hafði samband við hann til að fá hann til að segja hið sanna.
En Nixon átti þá, ekki síður en nokkrum árum síðar í Watergatemálinu auðvelt með að ljúga blákalt að Johnson, og Johnson vissi að hann myndi ekki getað vitnað í hleruð símtöl.
Svo fór að bragð Nixons heppnaðist og hann vann einn naumasta sigur í sögu Bandaríkjanna.
Flóttamannagangan mikla getur haft áhrif í báðar áttir núna, en sennilega á Trump meiri möguleika á að nýta sér hana sem forseti landsins fyrir repúblikana en demókratar fyrir sig.
![]() |
Líkurnar á sigri demókrata minnka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.10.2018 | 09:34
"Hún enn í dag fórna sér endalaust má...".
Það kann að vera rétt hjá dómsmálaráðherra að tölur um launamun kynjanna segi ekki nákvæmlega til um mismun á kjörum kvenna og karla.
En þegar Sigríður Andersen fer að reikna það út að munurinn sé konum í hag, yfirsést henni eitt mikilvægt atriði, en það eru hin launalausu heimilis- og uppeldisstörf sem unnin eru í landinu og hafa ætið verið unnin, án þess að þau séu reiknuð krónu virði út af fyrir sig.
Það er ansi há skekkja sem þarna myndast og fæst síður en svo leiðrétt gagnvart þúsundum kvenna, sem komið hafa heilu kynslóðum Íslendinga á legg að mestu einar, stundum stórum barnahópi, og uppskera enn, margar hverjar hrakleg eftirlaun, langt fyrir neðan framfærslumörk, sem þakkirnar frá svonefndu allsnægtaþjóðfélagi.
Að vísu hafa svonefndar barnabætur verið lengi við lýði, sem og barnameðlög feðra en í langflestum tilfellum hafa barnabæturnar verið greiddar báðum foreldrum, og greiðsla meðlaganna verið svona og svona.
Eftir stendur stærsta atvinnulega misréttið, að hið mikla verklega og andlega framlag kvenna í formi heimilis- og uppeldisstarfa og hefur í gegnum tíðina að mestu lent á þeim, sést ekki í þjóðarbókhaldinu.
Það er ekki einu sinni til sérstök krónutala varðandi þetta, sem hægt er að takast á um í kjarsamningum, enda ekki um neina launþega eða atvinnurekendur að ræða.
Þess vegna varð til dæmið um ráðskonuna, sem giftist atvinnurekandanum, bóndanum, og að við það lækkuðu þjóðartekjurnar sem nam launagreiðslunum, sem hún fékk áður.
Í ljóðinu "Íslenska konan", sem er eitt af 75 ljóðum í "Hjarta landsins", komandi ljósmyndaljóðabók okkar Friðþjófs Helgasonar, og er einnig á samnefndum safndiski, sem gefinn var út í fyrra, er hlutskipti kvenna í gegnum aldirnar allt til okkar daga, meðal annars orðað svona:
"Hún þraukaði hallæri hungur og fár.
Hún hjúkraði´og stritaði gleðisnauð ár.
Hún enn í dag fórna sér endalaust má.
Hún er íslenska konan, sem gefur þér allt sem hún há."
Að vísu hefur orðið mikil breyting til batnaðar varðandi heimilis- og uppeldisstörf, en miklu betur má ef duga skal.
Þó ekki væri nema að rétta hlut þeirra kvenna, sem komnar eru á lífeyrisaldur og upplifa mesta misrétti ævi sinnar.
Nokkuð sem virðist alveg hafa farið framhjá dómsmálaráðherra í nýjum útreikningi.
![]() |
Segir dómsmálaráðherra á hálum ís |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)