"Gamla gufan" fallin í gleymsku og dá."

Þegar Ríkisútvarpið sendi aðeins út á langbylgju á 209 var þessi eina rás kölluð "Gamla gufan." Langbylgjuútvarp.

Með FM byltingunni og fjölgun rása hefur það gleymst hve mikið öryggistæki langbylgjutæki getur verið. 

Enn eru stór svæði á landinu án útsendingar frá FM-sendum á sama tíma sem langbylgjan heyrist um allt land og langt út á miðin. 

Sú afsökun að langbylgjutæki séu ekki til sölu á markaðnum og séu alltof dýr á sér ekki stoð. 

Ég hef alla tíð geta fengið keypt slík tæki fyrir viðráðanlegt verð, það síðasta fyrir aðeins rúmu ári eftir að hið fjörgamla góða tæki mitt skemmdist á ferðalagi. 

Hið nýja tæki er handhægt, með ágætu loftneti og fjórum bylgjum, bæði hægt að knýja það með rafhlöðum og tengingu í rafmagnsdós.  


mbl.is Allir ættu að eiga batteríisútvarp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á leið til Egilsstaða í átt til Grænlands?

Þegar ég var í skóla var kennd þar landafræði, raunar allt til 15 ára aldurs. Æ oftar má sjá hve landafræðikunnáttu, jafnvel um sitt eigið land, hefur hrakað síðustu áratugi, þrátt fyrir margfaldar utanlandsferðir. 

Í fréttatíma Stöðvar 2 í kvöld var sýnt hvernig flugvél Air Iceland Connect fór af stað áleiðis til Egilsstaða áður en henni var snúið til baka. 

Er skemmst frá því að segja að meint flugleið var sýnd þannig á kortinu, að hún lá í þveröfuga átt, beint vestur Faxaflóa með stefnu á Grænland. 

Í einum fréttatíma ljósvakamiðils um daginn var tvívegis talað um Snæfellsjökul í frétt sem fjallaði um Svinafellsjökuls. 

Oftar en einu sinni heldur fjölmiðlafólk að Litla kaffistofan og jafnvel Svínahraun séu á Sandskeiðinni. 

Oft er grátlegt hvernig skortur á einfaldri stærðræðikunnáttu blandast inn í fáfræði í landafræði. 

Talað um mílur og fet, ruglað saman landmílum og sjómílum og talað eins og að enskt pund sé hálft kíló. 

Enginn fjölmiðlamaður hefur enn haft fyrir því að taka tvö núll aftan af ótal fréttum um það hve marga hektara skógareldar, flóð eða skriður hafa þakið. 

Þegar rætt er um 40 þúsund hektara er venjulegt fólk engu nær. Ef talað væri um 400 ferkílómetra væri fólk einhverju nær, því að 20 x 20 = 400. 


mbl.is Vélarbilun í vél Air Iceland Connect
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grunsamlegir menn að mæla brú.

Það er gömul saga og ný að "grunsamlegir menn" verði að fréttaefni, en niðurstaðan verði síðan að ekkert grunsamlegt hefði verið á seyði. 

Á dögum Kóreustriðsins 1950-53 færðist Kalda stríðið svo mjög í aukana, að mikill ótti og tortryggni breiddust út um allan heim. 

Í Bandaríkjunum skullu á miklar nornaveiðar þingnefndar undir forystu Joseph McCarthy öldungardeildarþingmanns þar sem hundruð og jafnvel þúsundir manna urðu fyrir miklum ofsóknum vegna grunsemda um að þeir væru með svo mikla "óameríska starfsemi" fólgna í samúð með kommúnistum, að það teldist til landráða. 

Á endanum kollsigldi McCarthy sig í látunum, og var látinn hætta. 

Hér heima birtist skondin frétt í dagblaðinu Tímanum sumar eitt eftir að bandaríska varnarliðið hafði verið sent til Keflavíkurflugvallar vegna stríðshættu af völdum Kóreustríðsins og rúmlega hálfrar aldar herseta hófst þar. 

Í fréttinni var greint frá því að "grunsamlegir menn" hefðu sést vera að mæla brú í Leirársveit, en með tilliti til þess að Bandaríkjamenn voru með starfsemi í Hvalfirði, þar sem bílar urðu að aka í gegnum öryggishlið á aðalleiðinni milli Akureyrar og Reykjavíkur, væru mælingar á brúm á þessari mikilvægu flutningaleið í hæsta máta grunsamlegar. 

Þar gætu verið útsendarar Rússa og kommúnista á Íslandi á ferð í þágu hugsanlegrar innrásar Rússa í landið og herflutninga þeirra. 

Rannsókn málsins leiddi hins vegar í ljós, að ætlunin var að flytja lítinn sumarbústað yfir brúna, brúin var mæld til að tryggja að það væri mögulegt og gengi vel og örugglega fyrir sig, og að ekkert var "grunsamlegt" við þetta athæfi.  


mbl.is Grunsamlegir menn með höfuðljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. ágúst 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband