Hve lengi tæki það nýja bylgju að fara um heiminn?

Stóra bylgja COVID-19, sem enn er að rísa í löndum, sem eru einna fjarlægust Kína, gæti kannski gefið einhvern árangur í varnarstarfi gegn nýrri bylgju frá Kína. 

Vonandi hafa menn lært nógu mikið alls staðar, til dæmis með því að loka strax útimörkuðunum, sem fóstruðu upphaf faraldusins í vetur. 

Nú þarf heldur betur að bregðast hart við og auk þess að hraða sem frekast er unnt að koma bólefni á fót.   


mbl.is Óttast nýja bylgju faraldurs í Peking
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fróðlegt að vera á ferli utan bæjar og innan þessa dagana.

Undanfarna daga hefur það verið áberandi þegar verið er á ferli bæði í borg og dreifbýli hve mikil umferð fólks er, hvar sem komið er. 

Langar biðraðir, bíla utanhúss og fólks innanhúss gefur til kynna mikla starfsemi þrátt fyrir að enn þurfi að hafa varann á vegna nálægðarreglunnar. 

Í dag stendur til að renna norður í land, og bera umferðina á þeirri leið saman við umferðina á Suðurlandsvegi sl. sunnudag og miðvikudag. 


mbl.is „Gæti sést til sólar öðru hverju“ í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kyrkingartak er ekki alltaf það sama og kyrkingartak.

Kyrkingartak er eitt af brögðunum í júdói, sem taka má, en þó er það notað svo allt öðru vísi og er svo allt annars eðlis en takið, sem hélt George Floyd niðri, að varla er um sambærilegt fyrirbrigði að ræða. 

Aðalmunurinn liggur í því, að júdómaður nær sínu taki þegar báðir glímumennirnir eru í gólfinu og sá, sem tekur takið, gerir það með armi sínum. 

Báðir, ásamt dómurunum, eru þrautþjálfaðir til þess að takið sé aðeins tekið örstutt augnablik þannig að allir sjái, hvers eðlis er, og um leið og sá sem er fastur í takinu, finnur hvernig "lásinn" er, slær hann hendi í gólfið til merkis um uppgjöf, og sleppir sigurvegarinn þá takinu samstundis. 

Kannski er þetta augnablik varla meira 1-2 sekúndur í stað 526 sekúndna langa taksins, sem beitt var á Georg Floyd og þar að auki með því að þrýsta öllum likamsþunganum með hnénu ofan á háls hins kyrkta.  


mbl.is Trump ekki alfarið á móti kyrkingataki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 13. júní 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband