Vetur konungur býr yfir ýmsum dyntum, sem skapa á stundum óvenjulegar aðstæður eins og hafa verið undanfarna daga á Spáni.
En sumir dyntirnir, sem virðast lítt skiljanlegir, er samt árleg fyrirbæri.
Einn af þeim er sú furðulega staðreynd, að fyrstu vikurnar eftir sólstöður heldur sólin áfram að rísa á svipuðum tíma; en aftur á móti seinkar sólarlaginu um hálftíma.
Lítum nánar á tölurnar í Almanaki Háskóla Íslands með ljósmynd af sólinni í dag þar sem sólin fór með naumindum upp fyrir fjallið Trölladyngju:
21. DES 10. JAN LENGD SÓLARGANGS.
Sólris. 11:22 15:30 4:08
Sólsetur. 11:05 16:07 5:02
Sólarhæð. 1,7 gráður 3,3 gráður
Samkvæmt þessu lengist sólargangur þessar þrjár vikur um 54 mínútur.
Hins vegar er lengingin furðu misjöfn, 17 mínútur á morgnana en 37 mínútur síðdegis.
Og fyrstu vikuna eftir sólstöður færist sólarupprisan EKKERT á meðan sólin sígur hægt og bítandi seinna og seinna og daginn lengir bara í þá áttina.
Það er álitamál hvort sé dýrmætara að hafa meiri birtu fyrir hádegi en eftir hádegi.
Helstu rökin fyrir því að reyna að fá meiri birtu fyrir hádegi varðar nemendur í skólum landsins.
![]() |
Stór hluti Spánar snævi þakinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.1.2021 | 18:30
Það er erfitt að keppa við Ísrael.
Sérstaða Ísraelsríkis hefur verið ansi mögunuð eftir að Gyðingum tókst að komast hjá því hroðalega takmarki Hitlers að útrýma gersamlega þessum 10,5 milljónum manna, sem skilgreindu sig sem sérstaka Gyðingaþjóð, útvalda af Guði með til að byggja fyrirheitið land.
Þótt um sex milljón Gyðingar væru drepnir, komust um fjórar milljónir af en áttu samt heima í mörgum löndum sem aðrar þjóðir voru búnar að byggja í meira en þúsund ár.
Gyðingum tókst að stofna sérstakt Ísraelsríki 1948 og vinna sigra í alls þremur styrjöldum.
1967 hernámu þeir stórt landsvæði sem Sameinuðu þjóðirnar skilgreindu ólöglegt að alþjóðalögum en Ísraelsmönnum hefur tekist að halda bæði völdum og skipulegu "landnámi" æ síðan.
Ísrael tekur þátt í Eurovision þótt landið sé ekki í Evrópu og Ísrael nýtur vaxandi verndar voldugustu þjóðar heims, Bandaríkjanna.
Landið varð kjarnorkuveldi í trássi við allar samþykktir og alþjóðasamstarf um þau mál, og hefur í ofanálag ekki þurft að standa nein skil á þessari sérstöðu sinni í Miðausturlöndum.
Það þarf því engum að koma á óvart að Ísraelsmenn tækju stöðu sína í heimsfaraldrinum föstum tökum og í stil við annað sem þeir setja á oddinn.
Nú blasir við að þeir hafa skapað sér sérstöðu, sem engin önnur þjóð geti keppt við.
Í keppninni um bóluefnið verða aðrar þjóðir að miða sig við hverja aðra og keppa að forystu á því sviði, en gleyma Ísrael, sem hefur þegar brunað fram úr öllum, líka fram úr Kára og Þórólfi.
![]() |
Ísrael tilraunaríki fyrir Pfizer |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.1.2021 | 16:42
Svartsengi er ekki "á Reykjanesi".
"Jarðskjálfti á Reykjanesi" er ansi loðin lýsing á því hvar 4,1 stigs jarðskjálfti varð í nótt.
Skjálftinn varð nefnilega ekki á Reykjanesi, sem er ferhyrnt nes yst á Reykjanesskaganum , heldur við Svartsengi þar sem Bláa lónið er.
Þetta er hægt að sjá með því að lesa það í texta fréttarinnar, að skjálftinn hafi orðið um sex kílómetra fyrir norðan Grindavík.
![]() |
Jarðskjálfti 4,1 að stærð á Reykjanesi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)