Leitun að bæ, sem ekki er "krúttlegur" eða vinalegur.

Það má setja spurningarmerki við það að reyna að velja svokallaða "krúttltegustu bæi landsins." 

Ef litið er á þá bæi sem hafa verið nefndir á Ferðavefnum, þarf oft ekki annað en að líta á næstu bæi til þess að fyllast efa um val af þessu tagi. 

Seyðisfjörður er til dæmis valinn af Austurlandi, en hvaða atriði á að taka til skoðunar?  Bæinn sjálfan einan og sér?  Eða taka næsta nágrennið með, eða jafnvel allt upp í voldugan sjóndeildarhring eins og prýðir bæjarmyndina á Höfn á Hornafirði?

Er alveg víst að Eskifjörður og Fáskrúðsfjörður komi ekki til greina?

Sem betur fer státar Ísland af fjölmörgum "krúttlegum bæjum" um allt land. 

Hvað um næstu nágranna Stykkishólms, Grundarfjörð og Ólafsvík?  


mbl.is Þetta eru krúttlegustu bæirnir á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Best að taka á á kvöldin?

Í gagnum tíðina um margra áratuga skeið hafa verið reyndir alls konar tíma dagsins til þess að taka þær 50 mínútna löngu æfingar, sem síðuhafi hefur notað til að viðhalda bærilegu líkamlegu formi og þyngd.

Aldrei var þetta þó gert á morgnana, og aðeins í um áratug í hádeginu í formi innanhússfótbolta. 

Hádegisspriklið gafst ekki vel til lengdar.

Það fer áreiðanlega mikið eftir misjöfnum aðstæðum hjá iðkendunum hvaða form er best. 

Iðkandinn í þessu dæmi hefur alla ævi verið með mun minni blóðþrýsting og hægan púls en fólk hefur að meðaltali, sem virðist hafa verið orsök þess, að syfju- og þreytu einkenni síðdegis sem fylgir slíku líkamasástandi, urðu verri en ella. 

Með árunum hefur tíminn fyrir æfingartímann færst æ meira yfir á kvöldin, minnst tveimur tímum eftir kvöldmáltíð.

Eftir hina stífu æfingu, sem krefjst að hluta til fyllstu áreynslu á viðbragð, snerpu, hraða, kraft og úthald er alveg einstaklega gott að detta á koddann og sofna strax þegar þreytan líður burtu. 

 


mbl.is Byrjaði að lyfta og hætti á svefnlyfjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. nóvember 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband