Verður upphaf hvellsins tæpum tveimur vikum fyrr einhver lærdómur?

Spá Vedurstofunnar um upphaf óveðursins, sem skall á á laugardagsmorgni 16. desember, stóðst í öllum meginatriðum, jafnvel nokkrum dögum fyrir þetta upphaf. 

Samt var eins og þetta óveður kæmi nær öllum að óvörum og sér ekki fyrir endann á því enn. 

Það var engu líkara en að menn héldu, að nóg væri að miða allan viðbúnað við að svona óveður skyllu bara á virkum degi, en ekki endilega á óheppilegasta tíma vikunnar, sem eru helgarmorgnar.DSC00317 

Nú er aftur spáð með nokkurra daga fyrirvara um svipaðan hvell, og enn er það laugardagsmorgun, sem náttúruöflin velja. 

Nú hafa menn reynsluna af helgarhvelli og verður fróðlegt að sjá, hvort einhver lærdómur hafi dregist af undanförnum tveimur vikum.   


mbl.is Kolófært á gamlársdagsmorgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. desember 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband