Skoða þarf að ívilna í virðisaukaskatti fyrir léttbifhjól, jafnvel bensínknúin.

Léttbifhjól leyna mjög á sér sem farartæki hvað snertir kolefnisspor. Það á akki aðeins við um rafknúin láttbifhjól, heldur jafnvel líka bensínknúin. Léttir við Jökulsárlón

Sem dæmi má nefna léttustu bensínknúnu léttbifhjólin, sem sex ára reynsla á ferðum um allt land sýnir, að eyði helmingi minna eldsneyti en sparneytnustu bílar, og séu fimm sinnum ódýrari, sjö sinnum léttari og margfalt einfaldari smíði en minnstu bílarnir. 

Myndin er tekið í einni slíkri ferð í kringum landið 2015. 

Hið síðastnefnda, einföld smíði og léttleiki, gerir kolefnisspor framleiðslu, rekstrar og förgunar svo lítið, að hugsanlega er slíkt hjól með minna samanlagt kolefnisspor en minnstu rafbílarnir, jafnvel þótt hluti af sporinu sé bensíneyðsla hjólsins sjálfs. Léttfeti við Gullfoss

Neðsta myndin er af rafknúnu léttbifhjóli í reynsluakstri við Gullfoss. 


mbl.is Fleiri rafbílar njóti ívilnunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hið kalda hjarta hafanna" frá 1997 fjallaði um hættuna á kólnun við Ísland.

Danskir haffræðingar hafa löngum staðið framarlega í rannsóknum á nyrsta hluta Norður-Atlantshafsins og á grundvelli þess var gerður danskur sjónvarpsþáttur um málið, sem sýndur var ytra. 

Lýsing þáttarins á áhrifum loftslagshlýnunar var ansi ólík því, sem nú er gefið út sem norsk rannsókn á þessu efni, því að niðurstaðan var sú, að hætta gæti verið á því að vegna stóraukins flæðis af fersku leysingavatni frá Grænlandshafi út í straumaskilin við Ísland myndi Golfstraumurinn að hluta til ekki ná eins langt í norður og áður, af því að saltur sjór væri þyngri en leysingavatnið. 

Í gangi er hringrás og straumakerfi, sem þeir dönsku kölluðu "Hið kalda hjarta hafanna", sem Golfstraumurinn er hluti af, en hann kemur úr suðri norður til straumaskilanna, þar sem hann sekkur og rennur suður allt Atlantshaf, austur í Inlandshaf og þaðan til baka. 

Vegna þess hve þetta efni tengist Íslandi mikið var danski þátturinn gerður að uppistöðu í íslenskum þætti, sem vakti það mikla athygli að bæði forseti Íslands og forsætisráðherra gerðu þetta að umtalsefni í áramótaávörpum sínum og voru sem oftar býsna ósammála. 

Sú sviðsmynd, að færsla drekkingar Golfstraumsins til suðurs gæti valdið staðbundinni kólnun loftslags í norðvestanverðri Evrópu var áhyggjuefni. 

Á öllum þeim ráðstefnum sem síðan hafa verið haldnar hér á landi síðan 1997 hafa verið birtar tölvulíkön með loftslagi jarðarinnar til framtíðar, og á þeim öllum eru þrjú svæði, sem skera sig úr miðað hina miklu hlýnun um alla jörðina. 

Eitt þessara þriggja svæða var í nær öllum tilfellum suðvestur af Íslandi.  


mbl.is Flæði Golfstraumsins í Norðurhöf aukist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. mars 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband