Erfiðasta leiðin skemmtilegust?

Það hefur stundum verið sagt að það sé oft eins og íslensk handboltalandslið sækist eftir því að fara erfiðustu leiðina inn á stórmót og áfram á mótunum sjálfum. 

Þetta hefur mann komið í hug á þessu móti og nú er gamall draugur við dyrastafinn, þreytan hjá lykilmönnunum sem of mikið er keyrt á.

En þótt erfiðasta leiðin sé erfiðust er hún mest spennandi, því er ekki að neita, og þess vegna kannski skemmtilegust fyrir áhorfandann.

Og ekki er hægt að kvarta núna í leikhléi í leik Íslendinga og Dana, slíkur Tivoliírússíbani sem hann hefur verið. Og hvílík skemmtun ! Þetta tekur fram flestum tegundum af sveiflum, líka þeirri skagfirsku.  


mbl.is Dönum skellt í Linz
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón

Sæll Ómar.

Ég er sammála þér að það er skemmtilegast að fara erfiðu leiðina að hlutunum.  Auðvelda leiðin er fyrir elliheimili...

Sigurjón, 23.1.2010 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband