20.11.2010 | 16:13
Meðaltöl eru vafasöm.
Til eru staðir á hverasvæðum á Íslandi þar sem renna hlið við hlið sjóðheitir lækir og ískaldir. Segjum að tveir lækir renni hlið við hlið og er annar 70 stiga heitur en hinn 4 stig.
Meðaltalið er 37 stig og samkvæmt því ætti að vera óhætt og meira að segja mjög þægilegt að vaða berfættur út í þá báða.
Annað dæmi.
Í fjölskyldu einni eru tveir ríkir menn, sem eiga 250 milljónir hvor, en átta í fjölskyldunni eru öreigar. Meðaltal eigna á hvern meðlim eru 50 milljónir og samkvæmt því hafa allir það gott, líka allir öreigarnir.
Í annarri fjölskyldu á hver meðlimur 17 milljónir.
Ef borin eru saman meðaltöl eigna í ofangreindum fjölskyldum eru eignirnar í fyrri fjölskyldunni þrisvar sinnum meiri á mann en í síðari fjölskyldunni og kjör fólksins þrefalt betri.
Ég ólst upp í fjölskyldu þar sem aðstæður voru þannig að þegar fjölskyldufaðrinn var 22ja ára var hann kominn með þrjá syni á framfæri. Síðar eignaðist hann þrjár dætur.
Þegar við bættist að hann var alveg sérstaklega fjörmikill og ungur í anda var kannski ekki furða þótt við bræðurnir segðum stundum þegar við vorum spurðir um fjölskylduhagi: "Pabbi er elstur af okkur bræðrunum."
Eða: "Við erum sjö, og svo er mamma."
Að beita einhverri meðaltalsreglu á þessa fjölskyldu var því útí hött og svipað má áreiðanlega segja um flestar fjölskyldur sem betur fer.
Elsta systkinið gáfaðast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hagfræðingar eru meistarar "meðaltalanna".......Tveir slíkir fóru á gæsaveiðar,...fundu eina gæs og miðuðu....annar hægra megin við hana,hinn vinstra megin...skutu... og hittu....að meðaltali.
manni (IP-tala skráð) 20.11.2010 kl. 21:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.