Nýtur seint sammælis.

Þegar Mikhael Gorbatsjev tók við stjórnartaumunum í Sovétríkjunum 1985 stóð hann frammi fyrir því óleysanlegu vandamáli að viðhalda heimsveldi, sem var dauðanum merkt.

Útsmogin efnahagsflétta Bandaríkjamanna í samvinnu við bandamenn þeirra í olíuríkjunum varð til þess að olíutekjur Sovétríkjanna stórminnkuðu og þegar rándýr og vonlaus hernaður þeirra bættist við, var efnahagslegt hrun heimsveldisins óhjákvæmilegt. 

Ég held að það verði ekki fyrr en eftir daga Gorbastjevs sem verk hans og líf verði metið hlutlaust og að verðleikum. 

Það hefur verið sagt að sigurvegarar skrifi söguna og vegna þess að Gorbatsjev var skipstjóri á þjóðarskútu Sovétríkjanna þegar hún strandaði og sundraðist, fær hann stimpil strandkapteinsins á sig. 

Þetta eitt nægir til þess að í heimalandi sínu mun hann seint njóta sannmælis, jafnvel þótt hann hafi á djarfan og glæsilegan hátt brugðist við með því að losa um kúgunarveldi kommúnsmans undir kjörorðunum Glasnost og Perestrojka. 

Ekki síður hélt Gorbatsjev vel á spilunum í samingum við Vesturveldin sem voru ekki aðeins afar viðkvæmir, heldur stóð hann afar höllum fæti sem forystumaður fyrir heimsveldi sem var að hrynja og liðast í sundur.

Þegar Hrafn Gunnlaugsson var í heimsókn í Sovétríkjunum á upphafstímum umbóta Gorbatsjevs var erfitt að fá fólk til að tjá skoðanir sínar, og fóru margir þá leið að segja: "Ég vil ekkert segja sjálfur um þetta, en rússneskt máltæki segir...." og síðan var viðkomandi máltæki haft yfir, án þess að tekin væri ábyrgð á því. 

Þegar Hrafn spurði einn viðmælanda sinn um það hvað hann teldi að myndi nú gerast á þessum umbrotatímum í  landi hans, svaraði hann: "Ég vil ekkert segja sjálfur um þetta, en rússneskt máltæki segir: Þegar jörðin þiðnar koma ormarnir upp." 

Rússinn reyndist sannspár að því leyti til, að upp úr frosinni jörð kommúnismans  komu ormarnir, sem höfðu makað þar krókinn í spillingu alræðisins og mökuðu áfram krókinn í glundroðanum og lausunginni sem óheftur kapítalismi færði þeim eftir hrunið.

Þessi ormar eru enn á ferð og Gorbatsjev er því nú að fást við það, sem samlandi hans spáði. 


mbl.is Gorbatsjev mátti ekki stofna flokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband