4.5.2011 | 20:02
Óreiðan í skipulagsmálunum.
Ekki þarf annað en að líta á kort, sem sýnir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu til að sjá hvílíka óreiðu skipulag þessa svæðis býður upp á.
Tjónið af völdum þessa skrímslis má vafalaust telja í hundruðum milljarða króna frá því að þau grundvallarmistök voru gerð á miðjum sjötta áratugnum að sameina ekki Reykjavík og Kópavog.
Það var skólabókardæmi um skaðlega skammsýni og sérhagsmunahyggju íslenskra stjórnmálamanna.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík máttu ekki til þess hugsa að "kommarnir" í Kópavogi yrðu teknir inn, því að þá væri hætta á að missa meirihlutann í Reykjavík.
Á sama hátt fengu sósíalistarnir í Kópavogi grænar bólur við tilhugsunina að missa sinn meirihluta þar ef þeir sameinuðust "íhaldsbænum" Reykjavík.
Óreiðan stingur í augu á svo mörgum stöðum og mörgum sviðum að allt of langt mál væri að telja það allt upp.
Góð dæmi eru byggðamörk Reykjavíkur og Kópavogs sem eru hreinn brandari á köflum og einnig það hvernig Mosfellsbær aðskilur Kjalarneshluta Reykjavíkur frá meginborginni.
Nefna má að til þess að aka á milli húsa, sem liggja 100 metra frá hvert öðru á mörkum Salahverfis í Kópavogi og Seljahverfis í Breiðholti, þarf að fara nærri fjögurra kílómetra aksturleið í heilan hring!
Höfð voru uppi fögur orð á tímabili um samræmingu í skipulagi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu en þau voru gersamlega svikin svo að ekki stóð steinn yfir steini eins og kom vel fram í fróðlegum þáttum Hjálmars Sveinssonar um þau mál í útvarpinu.
Fyrir löngu hefði verið átt að sameina öll sveitarfélögin milli Kúagerðis og Kjalarnestanga undir einn hatt þar sem einstök hverfi á borð við Grafarvog-Grafarholt, Árbæjarhverfi og Breiðholt hefðu álíka mikla stjórn eigin mála innan hverfis og Mosfellsbær, Kópavogur, Garðabær og Hafnarfjörður.
Heildarskipulagið væri hins vegar algerlega í höndum sameiginlegrar yfirstjórnar.
Það er enn hægt að gera þetta ef vilji fyrir umbótum af þessu tagi er fyrir hendi. Að vísu erfitt að bæta fyrir mistök í skipulagsmálum sem erfitt er að leiðrétta.
En viljinn til þess arna er nákvæmlega enginn. Þess vegna gerist ekki neitt.
Erfitt að skilja Kjalarnes frá Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll Ómar,
Er einnmitt nýbúinn að ljúka Bs námi í Miljøplanlægning hér í Danmörku og af "tillitsemi" við mig þá var eitt af þeim dæmum sem notuð voru við kennsluna höfuðborgarsvæðið á Íslandi. Höfuðborgarsvæðið var tekið sem dæmi um svæði þar sem gríðarlegt kaos ríkti í skipulagsmálum með miklum neikvæðum umhverfis- og samfélags- og efnahagslegum afleiðingum. Þá var bent á að erfitt myndi reynast að finna dæmi þar sem samskiptaleysi, eða að minnsta kosti árangursleysi í samskiptum, skipulagsyfirvalda væri jafn mikið á svo litlu svæði með svo augljósa sameiginlega hagsmuni af samstarfi í skipulagsmálum.
Það góða við fyrirlesturinn var þó að bent var á að ekki væri öll von úti um að hægt væri að leiðrétta þau mistök sem gerð hafa verið, en jafnframt bent á að til að svo megi verði þurfi að öllum líkindum að sameina öll sveitarfélögin á svæðinu þar sem sagan sýni að þau geta ekki fundið út úr að vinna saman að skipulagsmálum.
Hjalti Finnsson (IP-tala skráð) 5.5.2011 kl. 07:01
Vandi Sala- og Seljahverfis er æpandi eins og þú bendir á Ómar. Þessi hverfi er hins vegar ekki hægt að tengja saman með þeirri 100 metra götu sem pláss er fyrir fyrr en stofnbraut hefur verið lögð ofan byggðar í Seljahverfi frá Kópavogi og að Breiðholtsbraut. Annars myndi Jaðarselið, sem er safngata fyrir íbúðahverfi, breytast í stofnbraut fyrir þungaflutninga með öllu því ónæði og þeim hættum, sem slíkri umferðaræð fylgja.
Sigurbjörn Sveinsson, 5.5.2011 kl. 13:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.